157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Forseti. Í umræðu á opinberum vettvangi hefur borið á því undanfarið að málsmetandi fólk hafi talað þannig um lögregluna að hún sé á slæmum stað og innan hennar þrífist spilling. Er þá vísað til mála sem eru til rannsóknar og varða háttsemi fyrrverandi og starfandi lögreglumanna. Þegar valdir eru einstaklingar til að starfa í lögreglu er mikilvægt að valið sé vandað, heiðarlegt og áreiðanlegt fólk og ef og þegar lögreglumenn eru grunaðir um refsiverða háttsemi séu ferlar vegna slíkra mála þekktir og gegnsæir. Refsiverð háttsemi lögreglumanna eru jaðartilvik og skyldum við öll fara varlega í að gera því skóna þegar upp koma mál af þeim toga að þau þurfi að rannsaka að lögreglan sé spillt og ekki á góðum stað. Slíkt tal veikir lögregluna til skemmri og lengri tíma að nauðsynjalausu, enda eru slík jaðartilvik alls ekki mælikvarði á spillingu innan lögreglunnar. Það hefur verið búið þannig um hnútana um mál er varða grun um refsiverða háttsemi lögreglumanna að þau eru rannsökuð hjá deild innan embættis héraðssaksóknara. Þá er starfandi nefnd um eftirlit með lögreglu, sem stundum er skammstöfuð NEL, sem er óháð stjórnsýslunefnd sem tekur við kærum og kvörtunum vegna starfa lögreglumanna. Ákvæði um bæði þessi úrræði er að finna í lögreglulögum, nr. 90/1996. Það má alltaf gera betur og þekkt er umræða um að heppilegast væri að rannsóknir vegna gruns um refsiverða háttsemi lögreglumanna færu fram annars staðar en hjá lögreglu eða ákæruvaldi. Án þess að ég ætli að fjalla hér og nú um það atriði má benda á að sé um það að ræða að lögreglumaður sé grunaður um refsiverða háttsemi þá fer um slíka rannsókn eftir ákvæðum sakamálalaga en lögreglumenn hafa þjálfun, þekkingu og reynslu af slíkum rannsóknum og þær verða ekki framkvæmdar svo vel sé af hverjum sem er.

Frú forseti. Nú um stundir eru lausar stöður tveggja lögreglustjóra, annars vegar ríkislögreglustjóra og hins vegar lögreglustjórans á Suðurnesjum. Það er von mín og trú að til þessa embætta veljist fólk sem er þeim vanda vaxið að leiða stór og viðamikil embætti þar sem sinnt er flóknum og oft viðamiklum og viðkvæmum verkefnum. Öllum lögreglustjórum ber að vekja athygli héraðssaksóknara á ætluðum brotum starfsmanna sinna, samanber ákvæði lögreglulaga þar um (Forseti hringir.) og verður að gera ráð fyrir því að þeir sinni þeirri skyldu sinni og hafi gert hingað til. Ég leyfi mér að fullyrða að lögreglustjórar og lögreglumenn sé vandað og valinkunnt fólk.