157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Nú þegar 2. umræða um fjárlagafrumvarpið fer fram hér á Alþingi hefur erfðafjárskatt talsvert borið á góma. Bent hefur verið á að lagt hafi verið fram frumvarp sem muni hækka erfðafjárskatt á lóðum og lendum umtalsvert og koma einkum illa niður á bændastéttinni. Flóknar útskýringar á eðli máls hafa fylgt í kjölfarið sem leiðir einmitt hugann að því hve óréttlátur þessi skattur er. Það er byrjað að skattleggja sömu fjármunina eða tekjurnar tvisvar. Erfðafjárskatturinn var hækkaður hér á landi úr 5% í 10% árið 2010 undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur og sú ríkisstjórn sem nú starfar minnir með hverjum deginum sem líður einmitt meira og meira á þá vinstri stjórn og nú ætlar hún að gera gott betur, hækka erfðafjárskattinn í þessum tilvikum þegar við eigum frekar að vera að ræða að lækka þennan óréttláta skatt. Það var eitt af stefnumálum Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar að lækka skattinn um helming og hækka frítekjumörkin meira en gert hafði verið en í mínum huga ætti að afnema erfðafjárskatt með öllu. Af hverju þarf ríkið að skattleggja tvisvar sömu tekjurnar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát? Erfðafjárskattur var hækkaður árið 2010 og, já, eins og kom fram hérna áðan, fyrir fimm árum var frítekjumarkið fimmfaldað og er nú rúmar 6 millj. kr. Hvaða réttlæti er t.d. í því að einstaklingur sem sjálfur leigir húsnæði erfi íbúð eftir foreldra sína en neyðist til að selja hana til að eiga fyrir erfðafjárskatti eða að systkini þurfi að selja lítil fjölskyldufyrirtæki af sömu ástæðu? Það væri til mikillar einföldunar, drægi úr skattundanskotum og auðveldaði fjölskyldureknum fyrirtækjum að starfa áfram. Fyrst og fremst er hér um óréttláta tvísköttun að ræða og það (Forseti hringir.) mætti alveg fyrir mér kalla þá breytingu leiðréttingu, ef við náum saman um það. Svíar afnámu erfðafjárskatt (Forseti hringir.) — afsakið, virðulegur forseti — árið 2004 í þverpólitískri samstöðu og Norðmenn afnámu skattinn tíu árum síðar eða árið 2014 og hafa áhrifin verið jákvæð í þessu. (Forseti hringir.) Tökum frændur okkar til fyrirmyndar.