fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég er hér með framsöguræðu vegna 2. umræðu um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 og af því að það er að ákveðnu leyti óhefðbundið þegar frumvarp er að koma úr meðförum þingsins þá langar mig bara rétt að rifja upp að ástæða þess er sú að ég átti ekki heimangengt við 1. umræðu þegar aðrir ráðherrar voru með framsögu um helstu atriði á sínum málefnasviðum og óskaði því eftir svigrúmi til að vera fjarverandi. Það var góðfúslega veitt en það þýddi líka að þeirri hugmynd var fleygt að ég kæmi þá frekar hér í samtal við 2. umræðu og mér var auðvitað ljúft og skylt að verða við því. Þess vegna er ég nú hér og mun í stuttu máli gera grein fyrir helstu atriðum fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2026 hvað varðar þau málefnasvið sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið en það eru málefnasvið 12, 13, 14 og síðan að hluta málefnasvið 7, 16 og 21. Í ljósi þess að við erum við 2. umræðu ætla ég líka að gera stuttlega grein fyrir helstu breytingum sem lagðar eru til við 2. umræðu frumvarpsins á þessum málefnasviðum.
Samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi liggur fyrir að heildarfjárheimildir til þeirra málefnasviða sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið nema tæpum 39 milljörðum og þar munar mest um tæpa 26 milljarða til málefnasviðs landbúnaðar, um 9 milljarða til málefnasviðs sjávarútvegs og fiskeldis, 2,4 milljarðar heyra undir málefnasvið ferðaþjónustu og 1,3 milljarðar undir málefnasvið markaðseftirlits og neytendamála. Í 2. umræðu frumvarpsins er síðan gert ráð fyrir, eftir meðferð nefndar, að fjárheimildir málefnasviða atvinnuvegaráðuneytisins verði hækkaðar um 464 milljónir.
Á málefnasviði sjávarútvegs og fiskeldis er í frumvarpinu lögð áhersla á að bæta skilyrði þessara greina til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi og í því skyni er í fyrsta lagi gert ráð fyrir 220 millj. kr. hækkun á framlagi til eflingar hafrannsókna. Í öðru lagi er gert ráð fyrir 99 millj. kr. hækkun til eflingar Fiskeldissjóðs og er markmiðið með hækkun framlagsins að stuðla enn frekar að uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Í þriðja lagi er gert ráð fyrir 50 millj. kr. hækkun til að styrkja verkefni Hafrannsóknastofnunar á sviði burðarþolsmats, fjarðakerfa, þar með talið eldissvæðaskiptingu, mat á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis, áhættumat erfðablöndunar og rannsóknir á dreifingu laxa- og fiskilúsar. Í fjórða lagi er gert ráð fyrir 50 millj. kr. hækkun til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja. Að lokum má nefna, í fimmta lagi, 30 millj. kr. hækkun til eflingar fiskveiðieftirlits. Öll þessi verkefni sýna skýra forgangsröðun ríkisstjórnarinnar við að efla rannsóknir og styrkja eftirlit og innviði.
Á málefnasviði landbúnaðar er m.a. lögð áhersla á að efla fæðuöryggi og skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi. Þar má nefna að 378 millj. kr. verður varið á árinu 2026 til eflingar kornræktar með það að markmiði að auka innlenda framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Það er gaman að geta sagt frá því að fyrsti framleiðslutengdi styrkurinn til eflingar kornræktar verður greiddur út á næstu dögum fyrir árið 2025. Þetta er sérstaklega mikilvægt verkefni þegar kemur að fæðuöryggi þjóðarinnar, líkt og kom skýrt fram á málþingi atvinnuvegaráðuneytisins um fæðuöryggi og neyðarbirgðir matvæla í liðinni viku. Þá verður 120 millj. kr. varið á árinu 2026 til að mæta kostnaði við arfgerðagreiningu til hraðrar innleiðingar verndandi arfgerða í íslenska sauðfjárstofninum. Þetta er afar mikilvægt verkefni fyrir bændur og fyrir samfélagið allt og það finnst í þessu verkefni mikill ávinningur fyrir alla hlutaðeigandi. Þá verð ég að segja …
(Forseti (): Ég bið hæstv. ráðherra forláts. Ég ætla aðeins að biðja fólk í hliðarsölum og í sal að hafa hægt um sig. Það er allt of mikill óróleiki hér svo að hægt sé að hlýða á mannsins mál. Gjörðu svo vel.)
Takk, frú forseti. Það er fagnaðarefni að fjárlaganefnd hafi brugðist við ósk minni um að veita 300 millj. kr. tímabundið framlag í þrjú ár til að fjármagna rekstrarkostnað á samræmdu söfnunarkerfi fyrir dýraleifar en frá árinu 2013 hefur ESA rekið mál gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innviða til förgunar á aukaafurðum dýra og var Ísland dæmt brotlegt með dómi EFTA-dómstólsins vegna þessa hinn 29. júlí 2022. Það er nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld bregðist við hið fyrsta í ljósi athugasemda og úrskurðar ESA, auk mikilvægis þess fyrir útflutning matvæla frá Íslandi. Það er unnið að útboði verkefnisins en í ljósi þess hve brýnt málið er þá er fyrirhugað að ríkið fjármagni söfnunarkerfið til næstu þriggja ára, þ.e. árið 2026 til og með árinu 2028. Um 19,4 milljarðar kr., eða um helmingur af heildarfjárheimildum atvinnuvegaráðuneytisins, eru bundnir í búvörusamningum. Framlög til þeirra samninga lækka í frumvarpinu um 125 millj. kr. að raungildi samkvæmt ákvæðum samninganna en á móti hækka framlög til þeirra um 600 milljónir í samræmi við verðlagsforsendur frumvarpsins.
Á málefnasviði ferðamála er við 2. umræðu frumvarpsins 100 millj. kr. veitt tímabundið til flugþróunarsjóðs til að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða og koma á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og á Egilsstöðum. Til að sækja ný verkefni og styrkja ferðaþjónustu á Norðausturlandi, heilsársferðaþjónustu og dreifingu ferðamanna um allt land er mikilvægt að flugþróunarsjóður fái aukið fjármagn eins og hér er lagt til. Það verður nýtt til að styrkja enn frekar flug til Akureyrar sem og að laða ný verkefni að, bæði til Akureyrar en ekki síður Egilsstaða. Í því ljósi er vert að nefna að í nýkynntri samgönguáætlun er einmitt lagt til að ný akbraut og flughlað verði tekið í notkun á Egilsstöðum og aðflugsljós bætt. Allt miðar þetta að því að styrkja Egilsstaðaflugvöll sem alþjóðaflugvöll.
Forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er skýrt kveðið á um sterkt samkeppniseftirlit og aukna neytendavernd. Í því skyni er gert ráð fyrir 200 millj. kr. auknu framlagi sem m.a. verður nýtt til að mæta auknum verkefnum á sviði neytendamála ásamt því að styrkja starfsemi Samkeppniseftirlitsins, m.a. til að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar. Að auki er nú við 2. umræðu frumvarpsins áformað að veita tímabundið 50 millj. kr. framlag til Neytendasamtakanna til að styðja við réttindavernd leigjenda á leigumarkaði. Eins og hv. þingmenn þekkja þá setti ríkisstjórnin af stað hagræðingarvinnu á sínum fyrstu mánuðum og voru 18 verkefni tiltekin sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið. Öll þau verkefni eru komin í vinnslu og munu klárast á tíma fjármálaáætlunarinnar. Mig langar kannski helst að nefna þar fyrirhugaða sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs og samræmingu eftirlits og einföldun ferla þvert á stjórnkerfið.
Ég er þá búin, frú forseti, með þessa yfirferð og hlakka til að fylgjast með frekari umræðum um fjárlög og afgreiðslu þess merka plaggs.