fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Varðandi fyrri spurninguna um þessi væntu áhrif erfðafjárskattsins eða breyttrar útfærslu á bændur vegna þeirra áhrifa sem það hefur á jarðirnar, og þar með möguleika á nýliðun, þá get ég alveg að ákveðnu leyti tekið undir þessar áhyggjur sem hv. þingmaður viðrar. Grunnurinn að því er auðvitað sá afkomuvandi sem bændur búa við, nokkuð sem við erum að skoða mjög náið í þeirri vinnu sem er rétt svo hafin við endurskoðun á búvörusamningnum eða styrkjaumhverfi bænda. Ég held að það sé kannski grunnurinn þarna þó svo að ég sé alveg á því að þessi breyting sé skynsamleg og sé ekki grunnurinn að þeirri hækkun, heldur annar liður þar í, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur útskýrt hér.
Varðandi þessi áhrif þá get ég alveg tekið undir það að mér þyki vert að skoða það við vinnslu nefndarinnar á þessu hvort ástæða sé til, í ljósi þess afkomuvanda sem bændur búa við og þess hve nýliðun er erfið, að taka þetta út fyrir sviga. Ég ætla bara að vera mjög opin fyrir því að slík endurskoðun verði í meðförum nefndar.
Varðandi síðan spurninguna um byggðapottinn, eins og hv. þingmaður kemur inn á, þá var byggðahluti kvótakerfisins, þessi 5,3% hluti sem ríkið hefur, sameinaður undir innviðaráðuneytinu þar sem Byggðastofnun er með boltann. Ég veit að hæstv. innviðaráðherra hefur verið vakinn og sofinn í að fara yfir þá hluti. Það er sannarlega ekki ætlunin með þeirri breytingu að valda einhverjum búsifjum hjá smærri útgerðum og vinnslu víðs vegar um landið, þvert á móti. Ætlunin er auðvitað að reyna að festa þetta í sessi sem raunverulega byggðaaðstoð. Ég held að það sé bara nákvæmlega það sem hæstv. ráðherra er að vinna eftir og við munum bara eiga í því samtali eins mikið (Forseti hringir.) og ég get aðstoðað hæstv. ráðherra við það og ég veit að þingið gerir það líka og ekki síst þeir þingmenn í kjördæmum sem eru undir.