fjárlög 2026.
Frú forseti. Aftur varðandi erfðafjárskattinn þá þætti mér raunverulega miklu áhugaverðari umræða vera tilvist erfðafjárskatts yfirhöfuð frekar en endilega hverjir eigi að vera undanþegnir. Ef við ætlum að hafa skatt þá finnst mér eðlilegast að hann gangi yfir alla og að farið sé eins nálægt raunverulegu markaðsvirði og raunverulegu verðmæti viðkomandi eigna. Síðan erum við með þessa atvinnugrein, landbúnað, þar sem er þessi afkomuvandi, ekki síst hjá sauðfjárbændum, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, sem flækir myndina. Kannski er þetta umræða sem við ættum að sameinast um að taka í stærra samhengi.
Varðandi strandveiðarnar og þennan byggðapott þá veit ég að hv. þingmaður skilur að ég á erfitt með að standa hér og úttala mig um af hverju annar ráðherra gerir ekki eitthvað með þau mál sem undir hann heyra. Ég get hins vegar fullyrt það að hann er að skoða þetta nákvæmlega út af þessu og markmið hans, sem og ríkisstjórnarinnar, er auðvitað að nota allan þennan félagslega pott til að styrkja byggðafestu í landinu. Það er markmiðið. Ég heyri það sem hv. þingmaður segir, að menn hafi bara eitt skot í byssunni, ef svo má segja, að það sé einhver skaði skeður. En menn verða engu að síður að geta tekið einhver skref í áttina. Það gerist ekki allt í einu.
Hv. þingmaður nefnir sértæka byggðakvótann. Ég get tekið undir að það er hlutur sem hefur lukkast vel. Aðrir pottar innan þessa 5,3% potta hafa ekki endilega náð tilgangi sínum jafnvel, skulum við segja. Allt eru þetta hlutir sem eru í skoðun. Ég veit að við munum halda áfram að ræða þessi mál hér á þingi og utan. Þó að okkur greini á um leiðirnar þá held ég að við getum alla vega verið sammála því að markmiðið er þetta: Að byggðapottinum, 5,3% pottinum sem ríkið hefur yfir að ráða af kvótanum, sé ætlað að efla og tryggja byggðafestu í landinu eins og hægt er.