157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:58]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þessa fyrirspurn sem mér þykir reyndar svolítið áhugaverð vegna þess að hér var um að ræða málþing sem mér fannst rétt að boða til af því tilefni að í haust fékk ég afhendar tvær skýrslur, annars vegar um fæðuöryggi og hins vegar um neyðarbirgðir matvæla sem framkvæmdar hafa verið og unnar voru að beiðni okkar af til þess bærum sérfræðingum. Báðar skýrslurnar og þær tillögur sem þar eru og þau varnaðarorð sem þar eru höfð uppi voru þess eðlis að mér fannst eðlilegt að fremur en bara að birta skýrslurnar og vonast til og gera því skóna að áhugasamir læsu, að vera með þetta málþing þar sem þeir sem stýrðu vinnuhópunum við gerð skýrslnanna væru með framsögu og síðan málþing. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að bændur og sjómenn gegna lykilhlutverki í að afla þessara matvæla en það er langur vegur frá því að þeir séu einu aðilarnir. Hefði verið farin sú leið að tína upp hverja einustu atvinnugrein sem þar kæmi að málum þá hefði þetta ekki verið tveggja tíma málþing. Þess vegna voru þarna sérfræðingar. Þar var ritstjóri Bændablaðsins sem þekkir landbúnaðinn út og inn, þar var forsvarsmaður Samtaka iðnaðarins, þar undir heyra Samtök fyrirtækja í landbúnaði. Ég verð að viðurkenna að sjávarútvegurinn átti engan sérstakan fulltrúa en þarna voru sérfræðingar í alls kyns málefnum sem varða aðföng á borð við olíu, orku og annað slíkt. Mér þykir miður, og ég hef alveg fylgst með því, að einu viðbrögð hv. þingmanns við þessu málþingi hafa verið að hnýta í að þarna vanti einhvern tiltekinn fulltrúa sem hún hefði viljað sjá þarna frekar en að fagna því að þessi umræða sé farin af stað. Ég sé að fjölmiðlar hafa veitt þessum skýrslum töluverða athygli og þeir sem stýrðu för við gerð þeirra hafa komið fram í fjölmiðlum og rætt það. Ég óska eftir því og vonast til þess að það (Forseti hringir.) sem efnislega var rætt þar muni halda áfram og stýra för okkar þegar kemur að því að tryggja raunverulegt fæðuöryggi okkar og neyðarbirgðir og að sú umræða fari í gang fyrir alvöru.