157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:03]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Nú þekki ég ekki nákvæmlega þessa tillögu sem ég geri ráð fyrir að sé komin fram. (Gripið fram í: Já.) Ég árétta það að þessi vinna er í fullum gangi í atvinnuvegaráðuneytinu og víðar, þetta er auðvitað samstarfsverkefni fjölmargra aðila. Ég ætla að leyfa mér að nota tækifærið hér og benda bara á til að menn átti sig á því hversu víðfeðmt þetta viðfangsefni er, að þegar við erum að tala um það sem getur ógnað raunverulegu fæðuöryggi á Íslandi, fyrir utan ef eitthvað gríðarlega alvarlegt gerist, sem vonandi verður ekki, þá er staðan einfaldlega sú að við erum það háð orku að þær væru fljótar að fara þær hugmyndir sem við höfum um matvælaframleiðslu hér á landi ef það skortir aðgengi að orku eins og staðan er núna miðað við hvernig við knýjum okkar helstu framleiðslutæki. Áburður er annað. Fókusinn á að vera á innlenda framleiðslu á áburði ef vel á að vera. Þetta er því svo miklu stærra og það eru svo margir sem þurfa að koma að þessu máli. Að því sögðu þá fagna ég því auðvitað að hv. þingmaður sé að vinna að þessu og hafi áhuga og það er auðvitað alltaf alveg sjálfsagt að fara í samtal um það. Því lít ég svo á að þetta sé klárlega eitt þeirra fjölmörgu verkefna sem við eigum að geta sameinast um að hafa í lagi vegna þess að ef eitthvað land þarf á því að halda þá er það eyland í Norður-Atlantshafi.