fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka svarið og vek athygli á því að það þarf að taka 82 milljarða í lán á næsta ári. Langhlaup, sagði hv. þingmaður. Vissulega er þetta langhlaup og við eigum alltaf að vera að spara og gera betur. Hins vegar var loforðið um að það væri plan, það ætti að fara í tiltekt, þessa tiltekt er ekki sjá. Þó að þið séuð að miða við fjármálaáætlun þar sem þetta átti að vera verra þá fór hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson mjög vel yfir að þetta hefðu verið 19 milljarðar. Þið boðið 26 milljarða halla. Ég brýni hv. þingmann til góðra verka og ég ætla að taka viljann fyrir verkið. Við erum sammála um það sem þarf að gera. Við erum ósammála um hvort það hefði verið hægt að skila hallalausum fjárlögum núna eða ekki. Það hefði verið hægt að mínu mati. Spurningin er: Treystir hv. þingmaður sér til að brýna sitt fólk í að hlaupa aðeins hraðar?