157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir ræðu sína. Nú hef ég aðeins tekið eftir því í ræðum sem hér hafa verið fluttar að rætt er um bjartsýni fjárlagafrumvarpsins. Ég verð nú að viðurkenna að það kemur mér aðeins á óvart í ljósi þess að fjárlagafrumvörp byggjast á mati á efnahagshorfum frá Hagstofu Íslands og ég kannast ekki við að til séu betri mælikvarðar en það. Hv. þingmaður nefnir í þessu samhengi áföll sem riðið hafa yfir, svo sem Covid og Grindavík, en í báðum tilfellum var lánsfé notað til að fjármagna aðgerðir. Það er raunar alveg örugglega besta leiðin til að tryggja viðnámsþrótt íslenska samfélagsins að skuldir ríkisins séu hóflegar þannig að það geti brugðist við og hafi svigrúm til að bregðast við ef illa árar.

Ég tek undir orð hv. þingmanns, sem kom raunar fram í máli hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar í gær, varðandi mikilvægi þess að fylgja eftir markmiðum og árangri og vil í þessu samhengi benda á mælaborð sem Stjórnarráðið kynnti þar sem hægt er að fara yfir árangursmælikvarða og árangur. Ég velti síðan aðeins fyrir mér þeim ábendingum sem komu fram í ræðu hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar um þróun þeirra markmiða en ég er þeirrar skoðunar að þar sé augljóslega snertiflötur við þingið. Það væri áhugavert að taka örlítið samtal við hv. þingmann um hvernig hún sæi fyrir sér að slík þróun árangursmælikvarða gæti haldið áfram þannig að á henni væri pólitísk leiðbeining.