fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að taka fram hversu vel þingsalurinn er skipaður í dag í umræðunni, einstaklega vel setinn. (Gripið fram í: Hver öðrum betri. )Þetta hefur varla sést jafn gott. Ég vil byrja, frú forseti, ræðu mína á að vekja athygli á breytingartillögu við 6. gr. frumvarpsins sem snýr að 7.8, að hann falli brott. Í greinargerð um þann lið sem fylgir breytingartillögunni kemur fram:
„Í 2. tölul. er lagt til að felld verði brott heimild ráðherra til að afsala, í samráði við utanríkisráðuneyti, flugbrautakerfi, tengdu akbrautakerfi og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli til Isavia ohf. Með tilliti til þess hvernig heimsmálin hafa þróast á undanförnum árum telur 3. minni hluti eðlilegt að heimildin falli brott. Hér er um grunninnviði að ræða sem varða varnar- og öryggismál þjóðarinnar.“
Stutt og laggott. Þetta leggjum við inn í þessa umræðu og er hluti af breytingartillögum við 6. gr. heimildum.
Núverandi ríkisstjórn tók við góðu búi fyrir um ári síðan. Á síðustu tveimur kjörtímabilum reyndi mjög á rekstur ríkisins vegna þeirra umfangsmiklu ytri áfalla sem dundu yfir íslenska þjóð, svo sem Covid-19, jarðhræringa á Reykjanesi og gjaldþrots flugfélagsins WOW. Svo má bæta við stríðsrekstrinum í Úkraínu, innrás Rússa í Úkraínu og hvaða áhrif það hefur haft á aðfangakeðju heimsins og skapað ýmiss konar vandamál. Þegar kemur að slíkum áföllum er eðlilegt að ríkissjóður geri það sem hægt er til að milda höggið á heimilin og fyrirtækin í landinu. Um það hefur þingheimur ætíð verið sammála.
Það vekur athygli að í áliti meiri hluta fjárlaganefndar er í engu minnst á áhrif þeirra áfalla sem dunið hafa yfir. Beinn kostnaður ríkissjóðs af heimsfaraldri kórónuveiru var áætlaður 194,4 milljarðar kr. í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar um útgjöld ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug. Líkt og bent er á í svari ráðuneytisins gefa þær tölur þó ekki skýra mynd af heildarkostnaði þar sem þær ná aðeins til beinna útgjalda og taka ekki til óbeinna áhrifa á ríkisfjármálin, svo sem samdráttar í efnahagsumsvifum eða kostnaðar sem kann að falla á sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Í heildina var beinn kostnaður ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug tæpir 338 milljarðar kr. og þá fyrst og fremst á árunum 2019–2024. Til samanburðar má nefna að í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar frá 15. desember 2020 vegna fjármálaáætlunar fyrir árin 2021–2025 var gert ráð fyrir að heimsfaraldur kórónuveiru myndi kosta ríkissjóð um 1.000 milljarða kr. á gildistíma fjármálaáætlunar. Það rættist sem betur fer úr stöðunni og ekki fór eins illa og reiknað var með á þeim tímapunkti. Meðal annars var áætlað að skuldahlutfall ríkissjóðs færi úr um 30% í 60% á tímabili þeirrar fjármálaáætlunar en raunin var að skuldahlutfallið hækkaði einungis um nokkur prósentustig.
Á bls. 4–5 í meirihlutaáliti fjárlaganefndar er fjallað um framleiðnivöxt á mann sl. áratug. Þar segir m.a:
„Ein vísbending um framleiðniþróun er hagvöxtur á mann. Sérstaklega er vert að líta á hagvöxt á mann þar sem undanfarin ár hefur verið mikil fólksfjölgun á Íslandi, en árleg fólksfjölgun hefur sum undanfarin ár verið um og yfir 2%. Það er mun meiri fólksfjölgun en miðað við önnur vestræn ríki á sama tímabili og er það helst vegna fjölda aðfluttra af Evrópska efnahagssvæðinu til Íslands. […]
Á umræddu tímabili 2015–2024 var umtalsverður hagvöxtur þrátt fyrir bakslag vegna kórónuveirufaraldurs, eða um 3,1% að meðaltali. Aftur á móti ef litið er til hagvaxtar á mann er meðaltalið mun lægra, um 1,2%, en fólksfjölgun á tímabilinu var talsverð eða að meðaltali um 1,9% á ári. Til samanburðar hefur annars staðar á Norðurlöndunum á sama tímabili einungis í Danmörku verið meiri hagvöxtur á mann. Var hann að meðaltali um 1,9% en hagvöxtur annarra Norðurlanda á mann var lægri eða um og undir 1%.“
Hagvöxtur á mann hefur verið með ágætum síðastliðinn áratug á Íslandi eða um 1,2%. Góður árangur danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk hefur haft afgerandi áhrif á góðan árangur dansks efnahagslífs á þessu tímabili. Við þekkjum að þar hafi kannski komið fram ákveðin vandamál á þessu ári en vonandi fer þetta allt vel hjá vinum okkar í Danmörku.
Það er mikilvægt að hafa í huga í pólitískri umræðu á Íslandi að meðalhagvöxtur á mann á tímabilinu 2015–2024 var 1,2% sem verður að teljast mjög gott miðað við þau áföll sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins. Þrátt fyrir öll þau áföll sem síðasta ríkisstjórn glímdi við skilaði hún engu að síður ríkissjóði af sér með litlum halla og með hallalausan ríkisrekstur í sjónmáli þótt slíkar fyrirætlanir krefðust áframhaldandi styrkrar efnahagsstjórnar. Þar að auki tókst að halda skuldasöfnun í skefjum en skuldir ríkissjóðs eru lágar í alþjóðlegum samanburði, gott lánshæfismat ríkissjóðs endurspeglar það meðal annars. Það er ljóst að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við góðu búi, enda virðist meiri hluti fjárlaganefndar taka undir þau sjónarmið í nefndaráliti sínu þrátt fyrir að ýmsir stjórnarliðar haldi öðru fram þegar það hentar þeim.
Auk þessa náði síðasta ríkisstjórn tökum á útgjöldum vegna hælisleitenda með nauðsynlegum og löngu tímabærum breytingum á útlendingalöggjöfinni, rauf kyrrstöðuna í orkumálum og beitti sér fyrir stakkaskiptum nýsköpunarumhverfisins á Íslandi.
Ríkissjóður á miklar eignir sem hægt er að losa um, án þess að ógna þjóðaröryggi og menningararfi, til þess að lækka skuldir og auka verðmætasköpun í landinu. Lífeyrissjóðakerfið er í allra fremstu röð. Miðað við tölur frá Seðlabanka Íslands og Eurostat eru skuldir heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum lægstar á Íslandi af Norðurlöndunum. Fram kom á fundi fjárlaganefndar með fulltrúum Hagstofunnar að vanskil heimilanna hafi aldrei verið minni.
Aðeins um skatta og gjöld. Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar byggist á því að auka skatta og álögur verulega. Stóraukin skattheimta á fjölskyldurnar í landinu og fyrirtæki mun ekki leiða til aukins árangurs við efnahagsstjórn landsins, þvert á móti. 3. minni hluti telur að einfalt skattkerfi og lágir skattar séu grunnforsenda sterks efnahagsumhverfis. Skattkerfið á ekki að draga úr einkaframtaki fólks og fyrirtækja og mikilvægt að til staðar séu skattalegir hvatar sem ýta undir nýsköpun. Fjölskyldurnar í landinu eiga ekki að þurfa að búa við þá gríðarlegu skattbyrði sem ríkisstjórnin boðar í sínu frumvarpi. Sama gildir um fyrirtækin í landinu en atvinnulíf á Íslandi má ekki búa við lakari skilyrði en tíðkast í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Jú, þetta snýst allt um samkeppnishæfni og að viðhalda henni.
Þriðji minni hluti telur ekki ráðlagt að ráðist verði í þær skattahækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar nú þegar hægja tekur á í hagkerfinu og ýmis teikn á lofti um alvarlega stöðu helstu atvinnugreina þjóðarinnar. 3. minni hluti leggur því til eftirfarandi: Krónutölugjöld standi í stað og verði ekki hækkuð milli ára. Hætt verði við hækkun vörugjalda á ökutæki. Kílómetragjald verði ekki tekið upp á bensín- og dísilbíla. Samnýting hjóna og sambúðaraðila á skattþrepum verði áfram heimil sem og nýting á ónýttum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Skattur á leigutekjur verði ekki hækkaður og skattlagningu við sölu fasteigna verði ekki breytt. Séreignarsparnaðarleiðin verði fest í sessi en auk þess þarf að hækka fjárhæðarmörk og lengja heimilaðan nýtingartíma.
Ég mun fara aðeins betur í gegnum þessar tillögur og ræða séreignarsparnaðarleiðina hér á eftir. Þetta er eitt af helstu kosningamálum okkar Sjálfstæðismanna frá því í kosningunum 2013, gríðarlega vel heppnuð aðgerð sem hefur skilað íslenskum heimilum miklum ábata.
Auk þess verði ráðist í viðbótarskattalækkanir enda sé rými til þess samhliða þeim hagræðingartillögum sem lagðar eru til í áliti þessu. Breytingunum er ætlað að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki, uppbyggingu húsnæðis og auðvelda fólki að eignast eigið heimili. Þá vísa ég svolítið í frumvarp sem Tryggvi Másson lagði fram á þingi í haust og ég kem betur að því á eftir.
Við leggjum einnig til að tekjuskattur 16–18 ára verði lagður af. Útvarpsgjald verði lækkað um helming. Kolefnisgjald verði lækkað um þriðjung. Endurgreiðsla virðisaukaskatts á byggingarstað hækkuð í 60% og vonandi með tíð og tíma fari hún í gamla farið, upp í 100%, sem er mikilvægt og var mjög gott fyrir byggingariðnaðinn og okkur öll að hafa 100% endurgreiðslu. Við þurfum að komast þangað aftur. Við leggjum einnig til afnám stimpilgjalds af kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði.
Til viðbótar verði veðmálastarfsemi gefin frjáls og skattar innheimtir af starfseminni líkt og annarri starfsemi. Á móti leggur 3. minni hluti til að helmingur þeirra tekna sem renna í ríkissjóð vegna þessa skuli fara í eflingu meðferðarúrræða og forvarna.
Samtals gera tillögur 3. minni hluta ráð fyrir skattalækkunum upp á rétt 31,5 milljarða til handa heimilum og fyrirtækjum í landinu. Skattalækkanir þessar mynda aðeins fyrsta skrefið í skattalækkunartillögum Sjálfstæðisflokksins sem kynntar verða á næstu misserum.
Það er líka rétt að hafa í huga að það er vel mögulegt að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs og af öllu framangreindu er ljóst að við þær aðstæður sem voru til staðar í upphafi þessa kjörtímabils var kjörið tækifæri til að stefna að því að ná fram hallalausum fjárlögum. Engin ástæða er til þess að leggja þá gríðarlega auknu skattbyrði á almenning og fyrirtækin í landinu sem ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að ná fram þvert á gefin loforð. Rétta leiðin nú er að greiða niður skuldir, lækka skatta og hagræða í ríkisrekstri. Samanlagt skila tillögur 3. minni hluta rekstri ríkissjóðs réttu megin við núllið.
Þriðji minni hluti telur mikilvægt að verja fjölskyldurnar í landinu fyrir íþyngjandi skattbyrði en það markmið næst m.a. fram með því að falla frá skattpíningarstefnu ríkisstjórnarflokkanna sem mun birtast í hækkuðu verði bifreiða, hækkun leiguverðs, hækkun kílómetragjalds á bifreiðar og hækkun krónutölugjalda. Þá telur 3. minni hluti ótækt að vega að fjölskylduforminu með þeim áformum að afnema samsköttun hjóna og sambúðarfólks og telur rétt að festa séreignasparnaðarleiðina, sem Sjálfstæðisflokkurinn innleiddi, eins og kom fram áðan í þessari ræðu, í sessi og hækka bæði fjárhæðarmörk og lengja í nýtingartímanum. Þessar tillögur munu nýtast nær öllum fjölskyldum landsins. Að auki er sanngirnismál að börn njóti skattfrelsis að 18 ára aldri. Lækkun útvarpsgjalds mun koma bæði einstaklingum og fyrirtækjum til góða sem og tillögur 3. minni hluta um lækkun kolefnisgjalds. Skattalegur frádráttur vegna heimilishjálpar mun hafa þau áhrif að auka skattskil og bæta hag þeirra sem vinna við slík störf. Gríðarlega mikilvægt er að stuðla að lækkun húsnæðisverðs og tryggja að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið en tillaga um hækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað mun hafa mikil áhrif þar á.
Hér er rétt að vekja athygli á því að raunhækkun fjárlaga milli áranna 2025 og 2026 er 143 milljarðar, sem er ríflegt. Þetta er raunverulega rúmlega tvöföld sú upphæð sem fjárlögin í fyrra hækkuðu á milli ára þannig að það eru ótrúlegar skattahækkanir í þessum fjárlögum og raunhækkun í fjárlögum sem er vissulega fjármögnuð með skattahækkunum. Hér þarf að gera miklu betur. Það er ekkert aðhald og það er gríðarleg hækkun útgjalda á milli ára.
Ég hef oft í fjárlagaumræðu og umræðu um fjármálaáætlun rætt um skort á fyrirsjáanleika. Það hefur verið ákveðið leiðarstef hjá þeim sem hér stendur og langar mig í þessu samhengi að minnast á fyrirhugaða hækkun á vörugjöldum af bifreiðum og fleiru. Ég hef oft á síðustu misserum talað um þetta í tengslum við innviðagjöld á skemmtiferðaskip og tollfrelsi á leiðangursskip. Það er ánægjulegt að það eigi að lengja í tollfrelsi á leiðangursskip. Ég tel enga ástæðu til að fara í þann leiðangur að leggja það af og þessi aðgerð frá 2012 hefur sannað sig og gert mikið fyrir ferðaþjónustu víða á kaldari svæðum landsins og haft mikil áhrif á hafnarsjóði og umsvif á viðkomandi stöðum.
Sá sem hér stendur taldi ekki nægilega vel staðið að innviðagjöldum í fyrra, að hækka þau svo mikið, og það er ánægjulegt að það er verið að lækka þau hér og með viðbótarframlagi frá fjárlaganefnd fer gjaldið að lokum niður í 1.600 kr. í staðinn fyrir 2.500 kr. Vörugjöld á bíla, það er nákvæmlega það sama, snýr að fyrirsjáanleika. Það er náttúrlega enginn bragur á því að við séum hér á þingi að samþykkja vörugjöld í desember, kannski tveim vikum fyrir áramót þegar ný vörugjöld eiga að taka gildi. Þetta er óþekkt í Evrópu. Þegar menn eru að skipta, breyta eða bæta í vörugjöld eða hvað sem er, hvort sem það eru innviðagjöld eða vörugjöld á bíla eða hvað það er, þá er aðlögun að því. Ég sá t.d. frétt núna að Bretar voru að taka upp einhvers konar kílómetragjöld í síðustu viku og það er reiknað með að þau taki gildi 1. janúar 2028. Þetta er munurinn, við sjáum í nágrannalöndunum að það er yfirleitt mjög góður aðdragandi að slíkum breytingum.
Frú forseti. Er þetta örugglega rétt, hef ég bara 20 mínútur, klukkan byrjaði bara með 20 mínútur?
(Forseti (BHar): Forseti biðst afsökunar á því. Það virðist vera rangt. Það er fjárlagaumræða og þá er tvöfaldur ræðutími þannig að hv. þingmaður á góðan tíma inni.)
Þá er það ljóst og fagnað í salnum yfir því. En mig langar að koma aðeins inn á séreignarsparnaðarleiðina, frú forseti, og skýra nokkuð mikilvæg atriði varðandi hana sem hefur verið nýtt á Íslandi. Hún var samþykkt í fjárlögum 2014, ef ég man rétt. Þetta var eitt af kosningaloforðum okkar Sjálfstæðismanna fyrir kosningar 2013. Þessi leið hefur verið mikilvæg stoð í fjárhagslegu öryggi íslenskra heimila síðan þá og hefur á undanförnum árum sýnt sig sem eitt áhrifaríkasta úrræðið sem stjórnvöld hafa komið fram með til að styrkja stöðu fólks á húsnæðismarkaði án þess að skapa óhóflegan þrýsting á ríkisfjármál eða raska stöðugleika í hagkerfinu. Séreignarsparnaðarleiðin er fyrst og fremst hvatning. Hún hvetur einstaklinga og fjölskyldur til að byggja upp eigið fé í sínum eignum, nýta sparnað sinn markvisst og greiða niður húsnæðisskuldir hraðar en ella. Það dregur úr vaxtabyrði, minnkar fjárhagslega áhættu og skapar betri og öruggari stöðu gagnvart sveiflum á markaði. Þetta er skynsamleg og ábyrg leið sem styður við sjálfstæði fólks í eigin fjármálum. Þetta mikilvæga mál var, eins og ég kom inn á áðan, kosningamál okkar Sjálfstæðismanna fyrir kosningar 2013. Ég vil sérstaklega nefna mikilvægi úrræðisins fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Þegar fasteignaverð og vextir eru háir getur verið langt í land að safna nægilegu eigin fé. Séreignarsparnaður sem rennur beint inn á kaupin eða til niðurfærslu lána flýtir verulega fyrir þeirri vegferð og gerir fleirum kleift að stíga sín fyrstu skref inn á húsnæðismarkaðinn.
Frú forseti. Það er mikilvægt að við sem löggjafi sendum skýr skilaboð um að séreignarsparnaðarleiðin sé ekki tímabundin tilraun sem hægt er að taka af fólki með stuttum fyrirvara, hún á að vera fyrirsjáanlegt úrræði. Til skamms tíma væri það eina rétta í stöðunni að lengja úrræðið úr tíu í ellefu ár og huga að því á næsta ári hvernig við viljum sjá úrræðið þróast á næstu árum og gefa skýr skilaboð um hvernig eigi að standa að málum. Við eigum að efla úrræði sem draga úr skuldsetningu, styrkja eignamyndun og skapa raunverulegt fjárhagslegt svigrúm fyrir íslensk heimili. Séreignarsparnaðarleiðin er ein þessara leiða og hún hefur sannað gildi sitt og hún á að halda áfram að gera það. Það er ekki nægilegt að mati þess sem hér stendur að festa hana við tíu árin. Þá er raunverulega stór hluti þjóðarinnar að ganga út úr þessu kerfi, þessari leið, bara núna um áramótin og á næstu misserum. Þetta er stór og mikilvægur þáttur í séreignarstefnunni á Íslandi sem langflestir Íslendingar vilja búa við. Það er einn helsti styrkur íslensks samfélags hversu hátt hlutfall eigna sem fólk býr í er í eigu þess. Það er kannski einn helsti styrkleiki í okkar landi ásamt lífeyrissjóðakerfinu, það er einmitt þetta, séreignarstefnan.
Það eru fleiri hlutir, frú forseti, sem er rétt að minnast á í þessum fjárlögum. Núverandi ríkisstjórn ætlar að leggja af samsköttun hjóna. Það er annað mál sem gengur gegn fjölskylduforminu og að styrkja það. Hér er raunverulega farið gegn því og verið að veikja rekstur heimilisins og fjárhag samsköttunaraðila.
Aðeins um erfðafjárskattinn. Það er enn einn skatturinn og kannski einn sá allra versti. Hér er verið að tvískatta. Ein afleiðingin sem hefur verið bent á að undanförnu og sá sem hér stendur hefur töluverðar áhyggjur af, er hvaða áhrif þetta hefur á ættliðaskipti í landbúnaði í sveitum landsins og hvernig kynslóðaskipti eiga að geta átt sér stað þegar reynir á þessar hugmyndir sem hafa komið hér fram um erfðafjárskatt. Það er gríðarlega mikilvægt að finna út úr því hvernig best er að standa að þeim málum. Sá sem hér stendur hefur a.m.k. ekki séð að það hafi verið metið í þessu máli hvaða áhrif þetta getur haft á t.d. landbúnað, gert eitthvert áhrifamat.
Í grunninn hlýtur það alltaf að vera höfuðskylda okkar sem sitjum á Alþingi að verja fjölskylduna og fjárhag hennar. Það er ekki verið að gera það í þessum fjárlögum. Það eru margar árásir raunverulega á fjölskylduna boðaðar hér. Ég er búinn að fara efnislega í gegnum nokkrar af þeim hugmyndum og það verður að segjast að í þessum fyrstu fjárlögum nýrrar ríkisstjórnar hefur ekkert skort á hugmyndaauðgina í að bæta á sköttum og fara gegn fjölskyldum landsins.
Kolefnisgjöld eru síðan annar hlutur sem við þurfum að fara miklu betur í. Í sumar fékk ég svar við fyrirspurn, sem ég bendi hv. þingmönnum á að lesa, sem ég sendi á hæstv. efnahags- og fjármálaráðherra sem snýr að þeim. En ég vil koma aðeins inn á það, ég komst að því í sumar þegar við vorum hér í umræðu, að við norðanvert Atlantshaf þegar horft er til samkeppnislanda okkar í sjávarútvegi, erum við eina landið í dag sem með beinum hætti rukkar kolefnisgjöld af fiskiskipaflotanum. Það er áhugaverð staðreynd. Það er meira að segja þannig að í febrúar á þessu ári þá hætti eða breytti danska ríkisstjórnin þessum reglum gagnvart sínum fiskiskipaflota þannig að skipin borga áfram kolefnisgjöld en ríkið styrkir raunverulega bara útgerðina í Danmörku um sömu upphæð til að bæta samkeppnisstöðu danska fiskiskipaflotans. Norðmenn eru með annað kerfi en þeir fá endurgreitt líka. Kanadamenn, Bandaríkjamenn og aðrar útgerðarþjóðir við Norður-Atlantshaf greiða ekki kolefnisgjöld. Það er rétt að hafa þetta í huga þegar við ræðum kolefnisgjöldin. Þarna er ákveðin sérstaða hjá okkur, við sjáum þetta ekki í nágrannaríkjunum. Þetta leiðir til þess að Landhelgisgæslan og íslensk útgerð tekur olíu í Færeyjum. Það er dæmi um hversu neikvæð áhrif kolefnisgjöldin hafa á olíukaup, menn sækja til Færeyja þar sem ekki eru kolefnisgjöld. Það verður líka að segjast að það hefur náðst gríðarlegur árangur hjá fiskiskipaflotanum varðandi útblástur CO2, það er gert með nýjum vélum og betri nýtingu á orkunni. En að sama skapi hafa hugmyndir um rafeldsneytisnotkun í skipum, eins og með ammoníaki eða metanóli — þeirri þróun hefur seinkað verulega á undanförnum árum. Það virðist vera eitthvað lengra í að það verði almennt. En það er einmitt hvatinn sem var hugsaður með kolefnisgjöldum. Almennt er hugmyndafræði þeirra að ýta við orkuskiptum en í þessum málum eru engin orkuskipti til staðar vegna þess að það er ekki alveg búið að finna leiðina að því hvernig eigi að standa að málum. Það er því réttast að endurskoða það sem snýr að þessu, t.d. sem snýr að fiskiskipaflotanum og öðrum skipum á Íslandi. Það hefur náðst mikill árangur í að minnka olíunotkun á sóknareiningu í fiskiskipaflota landsins, eins og ég kom inn á áðan, ótrúlegur viðsnúningur sem hefur orðið á undanförnum 10–20 árum.
Síðan langaði mig rétt að ræða og koma inn á varaflugvallargjaldið svokallaða sem ég hef rætt töluvert mikið, það var tekið upp 1. nóvember 2023 eða fyrir réttum tveimur árum. Það var sett á til að styrkja alþjóðaflugvallakerfi landsins eftir að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af í maí 2011. Þegar varaflugvallargjaldið var sett á og tekið í notkun og fór að virka hefur það tekið inn einhverjar 1.400–1.500 millj. kr. á ári eftir að farið var að innheimta það. Það var farið í það til að styrkja alþjóðaflugvellina þrjá, fyrir utan Keflavíkurflugvöll, sem eru Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur. Þessir fjórir vellir skapa þetta alþjóðaflugvallakerfi og eru mjög mikilvægir fyrir hvern annan út frá varaflugvöllum. En það sem er nýtt í dag og er hægt að gera athugasemdir við — það stendur í þeirri samgönguáætlun sem kom fram í dag á bls. 65:
„Varaflugvallargjald sem innleitt var árið 2023 var sett á til að fjármagna nýframkvæmdir sem myndu auka öryggi stærstu flugvallanna en nú er það nýtt í allar framkvæmdir í innanlandsflugvallakerfinu.“
Nú þarf að afla upplýsinga um hvort það fjármagn sem var til staðar í innanlandsflugvallakerfinu sé örugglega enn þá til staðar vegna þess að eftir að varaflugvallargjaldið kemur inn þá voru inni í þjónustusamningi flugvalla landsins enn þá 400–500 millj. kr. í framkvæmdir sem áttu að auka getu annarra valla í landinu, í innanlandsfluginu, og lendingarstaða. En nú er greinilega komið eitthvert babb í bátinn, hvernig eigi að fara með þetta, þar sem varaflugvallargjaldið á að fara eitthvað í minni vellina. Þetta er algerlega ný hugmyndafræði sem snýr að þessu og verður fróðlegt að sjá hvernig þessi umræða verður og hvort það sé búið að taka allt fjármagn út úr því sem hefur verið í þjónustusamningnum til flugvallakerfisins, þ.e. innanlandsflugvallakerfisins. Þessu verður að svara. Þetta hefur sá sem hér stendur bent á undanfarin misseri, ég hef haft áhyggjur af því að þetta myndi gerast og eins og þetta hljómar núna virðast það vera réttmætar áhyggjur í þessu máli.
Ég er svo sem búinn að renna aðeins í gegnum það sem varðar tollfrelsi og innviðagjöld. Vonandi jafnar þetta sig á einhverjum árum og þessi neikvæða umræða sem hefur verið um þessi mál, það tekur sjálfsagt tvö, þrjú ár að laga þetta aðeins til eftir þessa þróun sem var á þessu ári þar sem skipin hættu að boða komu sína á sérstaklega minni hafnir landsins, leiðangursskipin, næsta ár, 2026. Það tekur væntanlega tvö, þrjú ár að jafna sig.
Svo ætla ég að fagna því að bætt er í flugþróunarsjóð, um 100 milljónir, til að styrkja millilandaflug um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll og er gríðarlega mikilvægt. Í fjárlögum núna voru settar 248 milljónir og ef það hefði staðið myndi það ekki duga fyrir þeim samningum sem eru nú þegar til staðar fyrir komandi ár og þeim hugmyndum sem geta bæst við í þeirri vinnu sem er í gangi núna og það flug sem er þegar í gangi. Þegar sjóðurinn var settur á, minnir mig 2014 eða 2015, voru þetta 300 milljónir sem að raungildi í dag væru 450 milljónir, þannig að það er svolítið eftir til að ná þeirri tölu að raungildi. En þetta hjálpar auðvitað og vonandi heldur þetta áfram að þróast svona. Það er fátt sem hefur haft eins jákvæð áhrif fyrir norðan og þetta, og reyndar bara norðurhluta landsins, en einmitt þetta flug sem Easyjet hefur verið með til t.d. Manchester og London, Gatwick, og fleiri flugrekendur hafa komið inn í styttri tíma á veturna eins og Transavia og Edelweiss, líka yfir sumartímann. Þetta hefur haft gríðarleg áhrif og það er líka rétt að hafa í huga að það eru öll lönd að gera þetta og Keflavíkurflugvöllur er með miklu stærra prógramm heldur en flugþróunarsjóður til að auka flug um Keflavíkurflugvöll. Það hafa heyrst tölur um jafnvel milljarð á ári og það er verið að gera lengri samninga. Það er kannski eitt af því sem þarf að breyta varðandi flugþróunarsjóð, að það megi lengja í styrktartímabilunum, gera a.m.k. sambærilegt eins og það er til og frá Keflavíkurflugvelli. Það er mikilvægt.
Ég ætla rétt að minnast síðan á sóknaráætlanir og þær breytingar sem boðaðar eru af hálfu meiri hluta fjárlaganefndar, í áliti meiri hlutans. Þær snúa að því að auka fjármagn í sóknaráætlanir, úr 120 millj. kr. í 400 millj. kr., bæta inn 280 millj. kr., en taka út á móti þær styrktarupphæðir sem hafa komið beint út úr fjárlaganefnd á undanförnum árum þar sem fjöldi aðila hefur sótt um. Það er áhugavert að skoða þennan möguleika en ég hef áhyggjur af því að þessar 280 milljónir sem bætt er þarna inn í séu umtalsvert minni upphæð heldur en hefur verið að koma inn í ýmis verkefni vítt og breitt þar sem aðilar hafa sótt um beint til fjárlaganefndar. Það sem hefur verið einkennandi í gegnum árin, a.m.k. þau ár sem ég hef setið í hv. fjárlaganefnd — nú hef ég ekki haft tækifæri til að skoða þetta, spurði aðeins um þetta í gær en það kom ekki fram í andsvörum hvort það hafi verið skoðað hversu háar þessar upphæðir eru sem sótt hefur verið um núna í haust til fjárlaganefndar og síðan kannski hvað hefur verið til viðmiðunar á síðustu árum. Það er ljóst að þegar 280 milljónum er dreift niður á landshlutasamtökin — það hefur ekki komið almennilega fram, er miðað við mannfjölda á viðkomandi svæðum eða er sama talan á öll landshlutasamtökin? Ef það er bara dreift á landshlutasamtökin sem eru í Norðvesturkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi þá eru þau sjö talsins þannig að við sjáum að hækkun um 280 milljónir í sóknaráætlun er 40 milljónir á hver landshlutasamtök sem fá þetta til úthlutunar. Mín tilfinning er náttúrlega að þetta séu umtalsvert minni upphæðir heldur en hafa komið inn í þessi samfélög. En það sem hefur einkennt þetta kannski í gegnum tíðina er að fjárlaganefnd hefur sögulega einmitt frekar komið til móts við styrktarbeiðnir aðila sem eru kannski fjærst höfuðborginni, borgríkinu. Það er stóra atriðið. Það hefur oft og tíðum verið erfitt að ná athygli ráðuneytanna á þessi svæði og þá hefur þetta verið svona neyðarbrauðið. Þetta eru oft mjög lágar upphæðir en hafa gert gríðarlega mikið til að styrkja viðkomandi viðkvæm svæði, sveitir og þorp og slíkt. Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast og líka skipulagið.
Því er nú þannig háttað í fjárlaganefnd að álitið er bara til eins árs, það er bara um næstu fjárlög fyrir næsta ár, fjárlaganefnd getur ekki ákveðið að setja 280 milljónir næstu fimm árin eða eitthvað þannig. Nú þurfa stjórnvöld, ríkisstjórn, ráðuneytin, að koma með svolítið plan á næstunni, upp á fyrirsjáanleikann, þannig að það sé skýrt sem allra fyrst hvernig eigi að haga málum og taka þessi skref sem snúa þessu þannig að við lendum ekki í því næsta haust þegar fjárlögin eru kynnt að það komi kannski bara aftur 120 milljónir, sem reyndar hefur ekki verið vegna þess að sóknaráætlun hefur alltaf verið fjármögnuð í gegnum fjárlaganefnd frá því að þessi vinna fór af stað, minnir mig, 2012, sem er síðan annað mjög sérstakt. Ég held að við öll í fjárlaganefnd og allir og ráðuneytið líka þegar það kemur fyrir nefndina séum sammála um að þetta háttalag geti ekki verið svona til lengri tíma. Það eru náttúrlega komin 12 ár af þessu sem er eitt það lengsta tímabil sem hefur heyrst um að fjárlaganefnd sé alltaf að bæta við einhverju í einhver verkefni. Ég beini því til formanns fjárlaganefndar sem situr hér í salnum, hv. þm. Ragnars Þórs Ingólfssonar, að fara í málið og hafa það í huga í byrjun næsta árs að ná utan um þetta. Það er ekki boðlegt gagnvart landshlutasamtökunum og því starfi sem þar fer fram að hafa alltaf áhyggjur af því hvert einasta haust eða þegar líður á árið hvernig verður staðið að fjármagni með sóknaráætlunum. Nú er greinilega verið að stækka hlutverk sóknaráætlana með þessu þannig að þær verði meiri um sig og því enn þá mikilvægara að koma þessu í lag.
Ég held að ég verði að hætta, frú forseti, að svo stöddu og lýk hér máli mínu.