157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:29]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni fyrir spurningarnar og gott samstarf í fjárlaganefnd. Nú var ég að leita að blöðunum en ég fann bara eitt sem gæti aðeins hjálpað mér, en ég man ekki alveg tölurnar bak við útreikningana því ég fann ekki tölvuna. Til dæmis bara að selja eignarhlutinn í Landsbankanum. Þetta er auðvitað, eins og við þekkjum öll, áhættufjárfesting. Það er umtalsvert að borga niður skuldirnar vegna þess að það gleymist oft hvað vaxtagjöldin lækka á móti með að selja Landsbankann og koma honum í svona eðlilegri rekstur gagnvart samfélögum. Við þekkjum það að bankakerfið á Íslandi gagnvart ríkiseigninni, eða hvað ríkið á mikið og hefur haft mikið, hefur verið án samjöfnuðar í Evrópu. Það er ekkert annað Evrópuland sem hefur verið með þessum hætti. Ég ætla ekki að koma með tölurnar, ég þori því ekki, þó að ég muni nú ýmsar tölur þá vil ég ekki koma með rangar tölur um nákvæmlega þennan þátt. Það hefur líka verið t.d. með eignir í eigu Framkvæmdasýslunnar, mig minnir að eignir Framkvæmdasýslunnar séu um 530.000 m², svona tveir fermetrar á hvern fullorðinn á Íslandi sem eru í eigu hennar. Það verður að segjast eins og er að þar er umtalsvert fjármagn. Það verður að benda á, hvort sem það eru sveitarfélögin eða ríkið, að við sjáum það í gegnum öll þessi mygluvandræði sem hafa verið að hrjá Reykjavíkurborg og fleiri aðila, að það virðist ekki henta hinu opinbera að eiga fasteignir og gæta aðhalds þar. (Forseti hringir.) Þetta er bara ein sorgarsaga sem við getum farið í gegnum sem hefur kostað íslenskt samfélag alveg gríðarlegar upphæðir. Þarna erum við að tala um að losa (Forseti hringir.) um eignir og vonandi getur einkaframtak tekið við eignunum. En það virðist ekki vera hvati hjá hinu opinbera að eiga fasteignir og reka þær. (Forseti hringir.) Ég skal reyna að halda síðan áfram með einhvern lista hérna en ég er ekki með tölur á bak við sem er kannski vandamálið.