157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka spurninguna. Þetta er rétt, reyndar er það eiginlega verra, þau gera ekki einu sinni ráð fyrir auknum tekjum af þessu, þau komu alla vega með það núna, heldur á það að koma í gegnum erfðafjárskattinn af því að fleiri deyja og okkur fjölgar eða eitthvað svona, stutta lýsingin, og fleiri eru að greiða fyrirframgreiddan arf. En það er galli á þessu vegna þess að þetta mun hækka verulega erfðafjárskatt, og það hefur komið fram til að mynda í umsögnum frá KPMG, Deloitte og öðrum, þannig að það er galli. Við erum búin að ræða þetta mikið í efnahags- og viðskiptanefnd og það er galli á málinu að það er ekkert mat á hversu mikið skattarnir hækka við þetta. Svo er eiginlega allt annað í þessu máli gallað. Varðandi óefnislegu eignirnar, það er svolítið búið að koma inn á það. Það er líka svolítið ágæt leið þegar við erum að tala um til að mynda að það eigi að meta eitthvað í fyrirtækjum, ég hef heyrt talað um þetta með hugverkaréttindin en þetta er svo flókið að það verður ógerningur að fylgja þessu eftir. Ef þú til að mynda erfir 5% hlut í fyrirtæki, þú ert bara minnihlutaeigandi, aðrir eiga 95%, þá segir að þú eigir að meta eignir inni í fyrirtækinu öðruvísi en gert er samkvæmt bókhaldi. Í fyrsta lagi hefurðu engan aðgang að bókhaldsgögnum þannig að þú getur ekki gert það og ef þú gætir gert það með einhverjum hætti þá er þessi 5% eigandi kominn með allt annað mat á virði fyrirtækisins en 95%, eitthvað miklu hærra mat en aðrir eigendur þannig að þetta er bara eiginlega galið.