fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka fyrir. Það skrýtna er að þau eru enn þá að segja að þetta sé minni háttar breyting. Ég er að vona að við náum að henda þessu út og bind enn þá vonir við að þessi tillaga hverfi af yfirborði jarðar. Ég er ekki úrkula vonar af því að hún er mjög gölluð og í staðinn fyrir að hlusta á þingmenn í meiri hluta sem segja að þetta sé ekkert mál, að þetta sé eiginlega engin breyting, þá ætla ég að leyfa Deloitte og KPMG að hafa orðið. Það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir vísar til um óefnislegar eignir er í c-lið 11. gr. frumvarpsins. Hér segir í umsögn frá Deloitte, með leyfi forseta:
„Fyrirhugaðar breytingar skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins um hækkun á skattstofni óskráðra félaga fela í sér gróft frávik frá almennum meginreglum skatta- og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.“ — Þetta getur ekki verið mikið skýrara.
Ég ætla síðan að vitna, með leyfi forseta, til umsagnar KPMG:
„Umsögn þessi snýr þó einungis að þeim hugmyndum fjármála- og efnahagsráðherra um að auka við skattlagningu vegna arfs. Lagðar eru til nokkrar breytingar á lögum nr. 14/2004, um erfðafjárskatt. Sé litið til textans í frumvarpinu hvað þetta varðar má ætla að um sé að ræða minni háttar breytingar, en svo er ekki. Verði frumvarpið samþykkt þá er ljóst að ákveðinn hluti framkvæmdar erfðamála verður í uppnámi og veruleg óvissa mun skapast í málaflokknum auk þess sem verulega íþyngjandi kröfur verða lagðar á herðar þeim sem njóta arfs.“ — Skýrara verður þetta ekki.