157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:02]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það er til marks um óstöðugleikann í íslenskum efnahagsmálum og fjármálum ríkisins fyrir vikið, að nú í 2. umræðu fjárlaga eru forsendur fjárlagafrumvarpsins í raun brostnar. Boðað verðmætasköpunarhaust breyttist í eitthvað allt annað og mætti nefna efnahagslegan vetur, sem því miður allt útlit er fyrir að sé bara rétt að hefjast. Það er mjög sérkennilegt hversu lítil viðbrögð ríkisstjórnin hefur sýnt þeirri þróun sem við höfum horft upp á í íslensku atvinnulífi og efnahagsástandi síðustu vikur og mánuði. Þau virðast bara ætla að halda sig við fjárlagafrumvarpið þótt forsendurnar séu foknar út í veður og vind. Enn þann dag í dag, á meðan umræðan stendur yfir, fá hvorki fjárlaganefnd né efnahags- og viðskiptanefnd þær upplýsingar sem þær þurfa á að halda við vinnslu þessa máls. Hugsanlega er það vegna þess að stjórnvöld og ráðherrann viti ekki alveg hvernig þetta verður allt saman eða þau kjósi að fikra sig áfram. En við sjáum glögglega að áfram verður stefnt að því að slá öll fyrri met í útgjöldum ríkisins. Það er þrátt fyrir að þessi ríkisstjórn hafi komist til valda með loforðum um aðhald í skattamálum, þ.e. að hækka ekki skatta á almenning en um leið mæta því með sparnaði. Hvorugt hefur staðist, hvorki hefur verið ráðist í nauðsynlegan sparnað né hafa fyrirheit um að hækka ekki skatta á almenning staðist. Í staðinn eru skattar hækkaðir og útgjöld áfram aukin. Þetta kemur í framhaldi af síendurteknum útgjaldametum síðustu ríkisstjórnar sem mér varð tíðrætt um á síðasta kjörtímabili. Sú stjórn sló eigin met aftur og aftur, hvort sem varðaði hraða aukningarinnar á milli ára eða heildarútgjöldin og nú er býsna hröð aukning útgjalda. Hún nemur um 140 milljörðum kr. og samkvæmt verðlagsleiðréttingu hátt í 100 milljörðum.

Oft verður mér hugsað til þess þegar fjárlög fóru fyrst yfir 1.000 milljarða. Þetta þótti mönnum áhyggjuefni á sínum tíma og þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, lýsti því að það væri mjög mikilvægt að komast aftur undir þessi mörk, þessi 1.000 milljarða mörk. Nú eru þau hvergi í sjónmáli. 2.000 milljarða markið nálgast hins vegar. Þessi ríkisstjórn leggur sitt af mörkum í því að ná á þann stað og auka áfram útgjöld. Þrátt fyrir þetta þá hljóta menn að velta fyrir sér þessari spurningu og ég veit að margir gera það í samfélaginu: Hvað fáum við fyrir þetta allt saman? Hvað fær almenningur á Íslandi, skattgreiðendur, fyrir þessa endalausu útgjaldaaukningu? Það er ekki að sjá að það hafi skilað sér í betri þjónustu á þeim sviðum sem mestu máli skipta. Er heilbrigðiskerfið orðið betra en það var? Verður það betra með þessum fjárlögum? Menntakerfið? Þannig mætti lengi telja. Nei, þetta hefur ekki skilað sér vegna þess að ríkisstjórnir undanfarinna ára hafa ekki lagt í það að laga þau kerfi sem við er að fást. Meiri peningar eru settir í kerfin en þeir virðast nýtast verr og verr. Nú í dag sjáum við nýjustu áform þessarar ríkisstjórnar birtast í samgönguáætlun, eða frumvarpi, réttara sagt, þingsályktunartillögu um samgönguáætlun. En voru það áform þessarar ríkisstjórnar? Ja, þegar betur er að gáð er þar fyrst og fremst verið að lýsa því sem þessi ríkisstjórn gæti hugsað sér að næstu ríkisstjórnir allt til ársins 2040 framkvæmi. Óskaplega lítið virðist eiga að gerast í tíð þessarar ríkisstjórnar, lítið a.m.k. miðað við þá þörf sem hefur myndast. Einhvern veginn ætlar þessari ríkisstjórn að takast að gera alla ósátta, sérstaklega þó íbúa Austurlands sem mega sannarlega vera ósáttir út frá því sem kynnt var í dag.

Ég geri ekki lítið úr mikilvægi Fljótaganga, þau eru aðkallandi og rétt að ráðast í þá framkvæmd sem fyrst en að menn skuli þá nota tækifærið, ef svo má segja, og setja gangaframkvæmdir á Austurlandi eitthvert lengst inn í framtíðina í algjöra óvissu er óforsvaranlegt. Þótt það hafi hugsanlega tekist hjá hæstv. innviðaráðherra að dreifa athyglinni með því að breyta forgangsröðun í þessum framkvæmdum er staðreyndin sú að hvorugt er að fara að gerast í fyrirsjáanlegri framtíð, hvorki Fjarðarheiðargöng, né hin svokölluðu Fjarðagöng. Þegar betur er að gáð er eingöngu gert ráð fyrir að á næstu árum verði settir einhverjir tugir milljóna í rannsóknir vegna Fjarðaganganna. Ekkert annað er í hendi hvað varðar þessar aðkallandi samgöngubætur á Austurlandi. Héraðsbúar og Egilsstaðir fá að vísu hringtorg nái þessi áætlun ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Þeir fá hringtorg og eiga líklega að vera sáttir við það.

Eitt af mörgu sem ergir mig við þessa samgönguáætlun er hversu lýsandi hún er fyrir það hvernig þessi ríkisstjórn nálgast viðfangsefnið. Ekki vantar yfirlýsingarnar og sjálfshrósið um það hversu mikið eigi að gerast en því er ekki fylgt eftir. Það er ekki framkvæmt í samræmi við orð. Það er sannarlega ekki framkvæmt í samræmi við kosningaloforð og ekki heldur í samræmi við tilkynningarnar, glærusýningarnar og blaðamannafundina sem þessi ríkisstjórn heldur reglulega og boðar allt mögulegt. Hún framkvæmir svo lítið af því sem loforð eru gefin um.

Hvað varðar þessa gölluðu samgönguáætlun þá taldi hæstv. forsætisráðherra sér og ríkisstjórninni það til tekna að hér væri um að ræða fjármagnaða áætlun. Ólíkt öllum fyrri samgönguáætlunum væri hér um að ræða fjármagnaða áætlun. Hvað var átt við með því? Það var ekki alveg útskýrt þó að hæstv. ráðherra hafi misst út úr sér á einum tímapunkti á þessum blaðamannafundi að, jú, ástæðan sé sú að það eigi að stofna félag um þetta. Í það setur ríkið einhvern rúman milljarð til að koma því af stað og svo á bara eitthvað annað að spinnast út frá því. Þetta kallast fjármögnuð samgönguáætlun til ársins 2040 þrátt fyrir að fjárlagafrumvarpið minni okkur á að það sem ríkisstjórnin hefur talið fjármagnað hefur oft og tíðum ekki reynst rétt. Nýjasta dæmið er samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem ráðherrar voru nýverið afskaplega duglegir að klappa sér á bakið fyrir að lögleiða hér á þinginu þrátt fyrir ábendingar um að reyndar væri löngu búið að innleiða þetta. Þau hafa fundið nýtt tilefni til að hrósa sér fyrir þetta mál þrátt fyrir að lögfestingin hefði í rauninni ekki staðist kröfur um lagasetningu enda ekki búið að fjármagna þetta. Við sjáum það á því fjárlagafrumvarpi sem við ræðum hér. Það er ekki búið að fjármagna þetta og engin sýnileg áform um það. Snúum okkur þá ögn aftur að samgöngumálum.

Frú forseti. Ég hef verulegar áhyggjur af því að þessi tilhneiging ríkisstjórnarinnar til að hrósa sjálfri sér og tala um mikilvægi þess að hér sé sterk verkstjórn, en kynna svo allt mögulegt, muni valda stöðnun í samgöngubótum á Íslandi langt umfram það sem þó birtist í þessari samgönguáætlun. Allt hitt er upp í loft líka. Þá hlýtur maður að spyrja sig: Mun þetta ekki þýða að samgöngumálin verði látin víkja að einhverju leyti, þar verði sparað þegar ríkisstjórnin stendur frammi fyrir næstu fjárlagagerð því að ekki hefur tekist að spara annars staðar? Þetta eru stórir útgjaldaliðir. Skattheimtan á þessu sviði er miklu meiri en nemur framlögum til málaflokksins og maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hvort þarna sé fyrst og fremst um það að ræða að verið sé að fresta vandanum og svo verði útskýrt að aðstæður kalli á sparnað enda ætli stjórnin sér að ná hallalausum fjárlögum árið 2027, sem ekkert útlit er fyrir. Þau staglast hins vegar stöðugt á því.

Þetta leggst allt á eitt, frú forseti, hvernig þessi ríkisstjórn nálgast fjármál ríkisins og peninga almennings. Þar má endalaust taka meira af fólki en mjög erfitt er að sjá að þetta skili sér í betri þjónustu, betri vegum, fleiri göngum og þar fram eftir götunum. Leiðirnar að tekjuaukningu eru nokkuð fjölbreytilegar og hafa menn nefnt ófá atriði í umræðunni fram að þessu. Ég tel ástæðu til að nefna nokkur þeirra aftur af því að þessi framganga gagnvart almenningi og þessi grófu svik á kosningaloforðum kalla á það að við sem alþingismenn minnum ríkisstjórnina á loforð sitt og hvað hún er að svíkja. Þar hafa menn nefnt samsköttun hjóna og þar er reynt, eins og í svo mörgu, að pakka því inn í einhverjar umbúðir og halda því fram að þetta bitni bara á fámennum hópum sem öllum eigi að vera sama um.

Svo berast álitin og umsagnirnar og það er dregið fram að þetta sé ekki alveg eins og ríkisstjórnin hafi lagt upp með. Þetta bitni á fólki í hinum ýmsu aðstæðum og dragi úr vilja fólks til að vera yfirleitt í hjónabandi eða dragi jafnvel úr getu fólks til að eignast börn og reka heimili. Hins vegar er bara ekki hlustað. Það var búið að ákveða þetta. Við kynntum þetta á þann hátt sem við gerðum. Þetta er bara eins og með skattana á sjávarútveginn. Þetta eru bara einhverjir auðmenn einhvers staðar annars staðar. Þegar sannleikurinn kemur í ljós loka menn bara eyrunum. Það er búið að ákveða þetta og við þurfum þessa peninga, segja hæstv. ráðherrar, af því að þeir eyða svo miklu. Þeir hafa enga stjórn á útgjöldum ríkisins eins og ég gat um í byrjun. Þeir eru að slá öll fyrri met í þeim efnum og þess vegna er leitað að matarholum um allt, m.a. í því að gera hjónum erfiðara að reka heimili og sjá fyrir börnum. Erfðafjárskatturinn er annað mál sem leiðir til óæskilegra samfélagslegra áhrifa, sérstaklega fyrir bændur. Sú nálgun sem þar birtist mun að óbreyttu gera það mun erfiðara fyrir bændur að skila jörðum til næstu kynslóða og halda byggðum landsins á lífi, viðhalda landbúnaði og matvælaframleiðslu. Hæstv. fjármálaráðherra má eiga það að hann nefndi að þetta kæmi kannski helst illa við bændur. Um leið benti hann á það að hann hefði sagt þinginu að það gæti þá lagað þetta ef það vildi.

Nú erum við í 2. umræðu fjárlaga og meiri hluti þings hefur ekki lagað þetta enn sem komið er. Hæstv. fjármálaráðherra virðist ekki hafa beitt sér fyrir því enn sem komið er. Við verðum að vona að það breytist og við verðum að vona að öll þessi áform um ruglinginn á erfðaskattinum verði tekin til endurskoðunar. Þar stangast allt á. Ekkert gengur upp í röksemdafærslu hæstv. ráðherra um það mál. Eins og fjölmargar umsagnir benda á yrði þetta svo stórskaðlegt á fjölbreytilegan hátt að ég hef ekki tíma til að rekja það hér. Það hefur þó verið ágætlega gert í fyrri ræðum, nú síðast hjá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur sem fór þannig yfir þetta að ég held að mönnum sé ekki stætt á öðru en að draga þetta til baka. Hvað sparnað varðar hefur hann allur verið á sömu bókina lærður. Þetta er allt spurning um einhverja ímynd, einhverjar umbúðir. Ríkisstjórnin hafði ekki starfað lengi þegar hún tilkynnti að nú yrði ráðist í þennan sparnað sem boðaður hefði verið fyrir kosningar og það yrði gert með aðkomu almennings. Auglýst var eftir sparnaðarráðum frá almenningi og ekki stóð á viðbrögðum. Mörg hundruð eða mörg þúsund sparnaðartillögur bárust. Nú liggur fjárlagafrumvarp fyrir. Hvað var gert við allar þessar sparnaðartillögur? Þær hurfu bara enda var þetta bara auglýsingabrella eins og menn gátu gefið sér. Að lokum voru kynnt nokkur tiltölulega óljós sparnaðarráð en látið fylgja sögunni að menn hefðu ákveðið að sleppa eða líta fram hjá því sem væru pólitískar ákvarðanir. Hvert er hlutverk þessarar ríkisstjórnar ef hún vill ekki taka ákvarðanir sem eru pólitískar? Mörg þúsund manns hafa sent inn sparnaðaráform og gert ráð fyrir einhverri pólitískri forystu; þetta yrði vel þegið og brugðist við. Nei, þá ætla menn ekki að ráðast í sparnaðaraðgerðir sem teljast pólitískar. Þetta er náttúrlega allt einhver eintóm hringavitleysa.

Frú forseti. Annað sem hefur verið nefnt til sögunnar sem leið til sparnaðar eru væntingar um fækkun hælisleitenda á Íslandi. Það kemur hins vegar á móti að fram að þessu hafa stjórnvöld ekki getað, þar með talið ráðherrar þessarar ríkisstjórnar, svarað því hver útgjöldin vegna málaflokksins eru. Þau hafa ekki getað svarað því hver raunveruleg útgjöld vegna stjórnleysis í útlendingamálum eru. Um þetta hafa verið lagðar fram skýrt orðaðar fyrirspurnir og svörin eru einfaldlega: Við höfum ekki þessar tölur. Við vitum ekki hversu mikið fé fer í þetta en það er a.m.k. ljóst að það nemur mörgum tugum milljarða, örugglega yfir 100 milljörðum þegar allt er talið. Áhrifin á heilbrigðiskerfið, menntakerfið og löggæsluna eru óumdeild. Stjórnvöld hafa ekki metið þetta en ætla engu að síður að spara með vísan til væntinga um fækkun hælisleitenda. Nýjustu tölur af þeirri þróun lofa hins vegar ekki góðu um að þessi sparnaðaráform muni bera árangur. Nú á haustmánuðum hefur hælisumsóknum á Íslandi snarfjölgað og hátt í tvöfaldast á þeim síðustu tveimur mánuðum sem tölur liggja fyrir um. Allt í einu eru hátt í 400 manns í mánuði hverjum að sækja um hæli hér, 13 manns á dag. Lengi vel frá árinu 1995 þegar tekin voru uppi lög í útlendingamálum og fram að gildistöku nýrra útlendingalaga árið 2017 tóku Íslendingar að jafnaði á móti 24 kvótaflóttamönnum á ári. Öðrum var varla til að dreifa, 24 á ári. Nú mæta jafn margir á tveimur dögum. Allir sem fá hér hæli eða annars konar dvalarleyfi eiga rétt á álíka mikilli þjónustu og þessir 24 kvótaflóttamenn á árum áður. Allt tal um sparnað vegna væntinga um fækkun hælisumsókna virðist fokið út í veður og vind.

Margt er minnt á þessa dagana. Við hv. þingmenn Miðflokksins höfum reyndar reynt að gera það árum saman en ég heyri að hæstv. dómsmálaráðherra minnir á að það megi ekki bara líta til hælisleitenda í málinu og það er svo sannarlega rétt. Ef menn ætla að líta á heildarmyndina í þeim efnum þurfa þeir líka að líta á efnahagsleg áhrif af innflutningi vinnuafls á lágum launum. Hættan er sú, eins og við höfum séð koma í ljós, að þar sé um að ræða lánshagvöxt, ef svo má segja, innfluttan hagvöxt sem svo breytist í andstæðu sína. Ef við lítum til hagvaxtar á síðustu árum hefur hann enda verið sáralítill á Íslandi. Af hverju segi ég það? Var ekki hagvöxtur hér undanfarin ár, jafnvel nokkur prósentustig? Ef við lítum á hagvöxt á mann, sem er eðlilegt viðmið, þá hefur hann verið sáralítill af því það er ekki hægt að reka hagkerfið eins og píramídasvindl. Því fylgir mikill kostnaður að flytja mikinn fjölda fólks inn á skömmum tíma og það þarf að taka það með í reikninginn, ásamt raunverulegum hagvexti á mann. Í slíku felst sjálfbært efnahagslíf.

Ég ætla að nefna Pólland sem dæmi. Pólverjum hefur heldur fækkað af því að margir þeirra hafa farið til annarra landa að vinna og skila eflaust margir einhverju til heimalandsins. Þrátt fyrir það og þrátt fyrir mjög lágt hlutfall innflytjenda í Póllandi er Pólland að taka fram úr flestum ef ekki öllum Evrópulöndum í hagvexti,í efnahagslegri uppbyggingu og árangri með sjálfbært hagkerfi.

Nefnum nú aðeins lánamarkaðinn á Íslandi. Það er bara sorgarsaga hvernig þau mál öll hafa þróast og hversu erfitt það er, ekki síst fyrir ungt fólk, að eignast íbúð. Það tengist auðvitað því sem ég talaði um áðan þegar landsmönnum eða Íslendingum fjölgar sáralítið. En hvers vegna er húsnæðisskortur? Það er vegna þess að menn hafa ekki stjórn á landamærunum. Aðrir þættir hjálpa ekki til og nú er lánamarkaðurinn í uppnámi, sérstaklega hvað varðar húsnæðislán. Því eru svekkjandi vonbrigði að sjá í morgun að Seðlabankinn skuli enn herða að og gera fólki erfiðara um vik að eignast heimili. Þar er löggjafanum að talsverðu leyti um að kenna því Seðlabankinn er að vinna eftir lögum og reglum, ekki síst þeim reglum sem settar voru hér eftir bankahrunið þegar áhyggjur vöknuðu af því að fólki væri ekki treystandi til að taka húsnæðislán á eigin forsendum. Það er ekki að sjá í þessu fjárlagafrumvarpi að ríkisstjórnin geri sér grein fyrir vandanum á því sviði eða ætli að bregðast við honum. Hins vegar lætur hún mikinn um að verkin tali og hún ætli sér að gera hlutina. Aftur og aftur erum við minnt á að þetta sé ríkisstjórn sem lætur verkin tala en framkvæmdin er svo allt önnur. Eftir höfðinu dansa limirnir, er stundum sagt, og við sjáum að enn stækkar báknið og m.a. forsætisráðuneytið sjálft. Mér skilst að það sé núna orðið meira en tvöfalt fjölmennara en það var þegar ég var þar. Stöðugt er bætt við nýju aðstoðarfólki og það sett í ný hlutverk í því ráðuneyti. Það sama má segja um mörg ráðuneyti og stofnanir. Vöxturinn er stöðugur og ekki að sjá að ríkisstjórnin ætli sér að byrja í eigin garði þegar kemur að sparnaði.

Af því að ég sé að hv. þm. Dagur B. Eggertsson er kominn hér í salinn þá stenst ég ekki mátið að nefna besta sparnaðarráðið, hið auðveldasta og aðgengilegasta, sem er að hætta við áform um borgarlínu. Enn eitt svekkelsið kom í morgun, frú forseti, í kynningu hæstv. ráðherra á samgönguáætlun. Þar á að festa þessi áform í sessi og sagt frá því að 42% útgjalda til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu eigi að fara í borgarlínuna. Önnur 42% eiga svo að fara í að bæta stofnvegi. Með öðrum orðum eiga 42% að fara í að þrengja að umferðinni og svo ónotuð 42% í viðbót í að reyna að liðka fyrir henni á móti. Nettóniðurstaðan er meiri umferðarteppur og enginn árangur, eins og af svo mörgu þegar menn taka ekki ákvarðanir út frá heilbrigðri skynsemi, heldur auka útgjöld. Já, þeir geta það, en að meta það hvernig menn fá mest fyrir peninginn virðist vera stjórnvöldum algerlega ókleifur múr.

Frú forseti, ég biðst afsökunar á hversu upptekinn ég hef verið af samgöngumálunum. Ég er í nokkru uppnámi eftir þennan blaðamannafund í morgun og verð að bæta því við hér varðandi þann málaflokk að þær óljósu leiðir sem boðaðar hafa verið til að fjármagna framkvæmdir, hvort sem staðið verður við þær fremur en aðrar, virðast mér aðeins farnar til að útvíkka áform um skattlagningu á bifreiðaeigendur. Við vitum af áformum um hækkun veggjalda. Við vitum af loftslagsáhuganum og refsisköttunum vegna loftslagsmálanna. Við vitum af þeim ótrúlegu áformum sem hafa töluvert verið rædd hér og ég þarf ekki að fara náið út í. Áform voru um vörugjöld sem komu til umræðu í þinginu áður en ríkisstjórnin og hæstv. fjármálaráðherra höfðu gert sér grein fyrir því hvernig þetta yrði allt innheimt. Það bara lá fyrir að það ætti að finna 7,5 milljarða hjá bifreiðaeigendum, ná einhvern veginn 7,5 milljörðum af ökumönnum. Niðurstaðan varð á endanum sú að gera þetta með veggjöldum.

Þetta verð ég að nefna í samhengi við samgönguáætlun, annars vegar vegna þess sem ég gat um hér áðan að með þessu er verið að gefa til kynna að það eigi bara endalaust að taka meira til að standa undir þeim framkvæmdum sem verður ráðist í en einnig vegna þess að þetta bitnar alveg sérstaklega á landsbyggðinni, þessi gjaldtaka öll. Hún leggst hlutfallslega mjög þungt á landsbyggðina og þar með talið á ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Bílaleigubílar á Íslandi verða enn dýrari en nú er. Óhjákvæmilegt er að það muni draga úr ferðum fólks á eigin vegum á bíl um landið. Það er óhjákvæmilegt að hækkunin mun draga úr ferðum fólks um landið og þar með talið kaupum á þjónustu í hinum dreifðari byggðum landsins. Þarna hafa menn nefnilega ekki, eins og svo oft, reiknað dæmið til enda. Það var ekki reiknað til enda með skemmtiferðaskipin. Þó kom á daginn, eins og getið var um hér áðan, að sú ríkisstjórn sem innleiddi það viðurkenndi að það hefðu verið mistök. Núverandi ríkisstjórn sér enga ástæðu til að vinda ofan af því. Hún segir bara: Síðasta stjórn gerði þetta. Við vitum að þetta var óskynsamlegt. Svo því þá ekki að laga? Af hverju ekki að laga þetta, heyrum við ítrekað. Síðustu ríkisstjórn er kennt um allt mögulegt og ég geri ekkert lítið úr því, frú forseti. Hún gerði nú eitt og annað af sér í efnahagsmálum, ekki hvað síst er varðar fjármál ríkissjóðs. En ef núverandi stjórn ætlar að halda áfram að kenna síðustu stjórnum um allt mögulegt þá hljóta menn á einhverjum tímapunkti að spyrja: Af hverju er haldið áfram að gera það sama og meira af því? Af hverju heldur ríkisstjórnin áfram að eyða peningum umfram efni, taka enn þá meiri lán ef hún á sama tíma bendir stöðugt á að síðasta ríkisstjórn hafi eytt svo miklum peningum? Þetta ætti eiginlega að virka öfugt, að síðasta stjórn hafi farið fram úr sér í útgjöldum ríkisins og reynslan af því ætti frekar að gefa þessari stjórn tækifæri til að skera niður og spara þann óþarfa sem síðasta stjórn kann að hafa varið peningum í.

Hér hefur verið getið um hversu óljóst er hvað verður um peninga, þá tugi milljarða sem renna til loftslagsmála. Ég vil draga það fram hér við 2. umræðu fjárlaga. Óljóst er um ráðstöfun fjármagns á hinum fjölbreytilegustu sviðum, jafnvel þegar skriflegar fyrirspurnir koma frá þingmönnum um ákveðin svið. Vita menn ekkert hvað varð um alla þessa peninga? Þetta er náttúrlega algjörlega ótækt. Ný ríkisstjórn sem hafði boðað það að hún ætlaði að nálgast hlutina öðruvísi, spara og hækka ekki skatta, virðist ekki hafa gert sér grein fyrir því í hvað peningarnir fara og þá er náttúrlega ekki von á góðu. Þau geta hins vegar ekki tekið skynsamlegar ákvarðanir. Það virðist vera skortur á því að greina vandann. Einn af göllunum við nálgun þessarar núverandi hæstv. ríkisstjórnar á fjárlög er að þau munu óhjákvæmilega leiða til aukinnar verðbólgu. Á þetta hefur verið bent varðandi til að mynda vörugjöld og fleiri þætti. Sama á við um áform um hinar ýmsu gjaldhækkanir sem er brotthvarf frá þeirri nálgun sem við lögðum upp með hér fyrir um áratug, að ríkið ætti ekki að vera leiðandi í verðhækkunum á nýju ári. Nú er þetta allt fyrir bí og hefur reyndar verið í nokkur ár og ríkið ætlar enn að taka að sér að leiða verðhækkanirnar og við sjáum hverjar afleiðingarnar eru. Um leið og fjárlög eru samþykkt fara fyrirtækin að tilkynna um hækkanir á verði sinnar vöru og þjónustu með vísan í hinar ýmsu gjaldhækkanir og skattahækkanir. Í stað þess að fá ríkisstjórn sem ber niður verðbólgu með sleggju hefur hún tekið ákvarðanir sem kynda undir verðbólgu með síhækkandi ríkisútgjöldum og hækkandi sköttum og gjöldum. Þetta er megineinkenni þessarar ríkisstjórnar. Hún segir eitt og gerir svo eitthvað allt annað. Þetta fjárlagafrumvarp ber sannarlega vitni um þann stöðugleika. Regla var kynnt um alvöru ríkisstjórnarinnar um að taka á fjármálum ríkisins. En hverjar voru afleiðingarnar af þessari reglu? Í framkvæmd virðist hún a.m.k. eiga að tryggja það að útgjaldabrjálæðið geti haldið áfram ef menn hækka skatta til samræmis við stöðugleika. Reglan þýðir í raun stöðugar skattahækkanir. Það er það sem við sjáum birtast í fjárlagafrumvarpinu og bandorminum sem því fylgir.

Ég ætla að láta þetta nægja að sinni, frú forseti, en mun í næstu ræðum mínum fara nánar út í einstaka þætti fjárlagafrumvarpsins. Það fór dálítill tími hjá mér í samgöngumálin núna því að mér er mikið niðri fyrir í þeim efnum og kannski er alveg þess virði að verja einni af seinni ræðum sérstaklega í þann málaflokk. Ég hef hvergi nærri náð að fara yfir allt landið hvað samgöngumál varðar þótt ég hafi komið hér inn á ófremdarástandið í Reykjavík og á Austurlandi. Að því sögðu bið ég yður, frú forseti, að setja mig aftur á mælendaskrá.