fjárlög 2026.
Frú forseti. Það kemur ekki á óvart að hv. þm. Dagur B. Eggertsson sé ánægður með að þessi borgarlína sé þarna inni. Einhvern tíma hef ég nú svona hálfpartinn hrósað hv. þingmanni, ef hrós er rétta orðið í þessu tilviki, fyrir það einstaka afrek að hafa boðað þessa hugmynd um borgarlínu án þess að Reykjavíkurborg hefði nokkurt ráð á því að ráðast í þetta verkefni, enda borgarlínan ekkert sérstaklega hagkvæm nema síður sé, hvað þá þegar raunverulegur kostnaður birtist. Engu að síður tókst hv. þingmanni að fara í gegnum tvennar kosningar til borgarstjórnar með þetta fyrirheit og fá svo Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn til að fjármagna það fyrir sig. Einhvern tímann segir hv. þingmaður kannski þá sögu, hvernig hann fór að því. En það er afrek og ég ætla ekki að gera lítið úr því. Almennt er nú langmesta hagkvæmnin í þessum samgöngusáttmála, er lýtur að höfuðborgarsvæðinu, auðvitað Sundabrautin og ástæða til að fagna því að vonandi — enn og aftur verð ég að gjalda varhuga við því, frú forseti, að það fer iðulega ekki saman það sem þessi ríkisstjórn segist ætla að gera og það sem hún gerir — sé sú framkvæmd að fara af stað. Ég held að mér sé óhætt að segja að hv. þm. Dagur B. Eggertsson hafi ekkert endilega alltaf verið sérlega hrifinn af þeirri framkvæmd, eða ekki ýtt eins mikið undir hana og borgarlínuna, en vonandi er hv. þingmaður þó sáttur við það að af þessu verði og sem allra fyrst.