157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:45]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að þiggja þetta kynningarefni sem hv. þingmaður býðst til að gefa mér. Ég hef gaman af slíkum gögnum og safna þeim. Ég var kannski meira að leita eftir sögunni um hvernig það gerðist á bak við tjöldin að lausnargjaldið, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason orðaði það, var loks greitt þegar fallist var á að ríkið, undir stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, tæki að sér að greiða þetta. Það er saga fyrir betri tíma og aðra tíma, ég geri mér grein fyrir því. En ég þigg bókina, eða heftið.