157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Stutta svarið við þessu, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, er jú. Auðvitað eru forsendurnar farnar. Við vorum, meðan ég var enn í nefndinni, að eltast við einhverjar nokkrar milljónir hér og nokkrar milljónir þar. Þannig er nú oft þetta hlutverk, hygg ég, hjá hv. fjárlaganefnd. Síðan koma bara stóru tölurnar í fangið á mönnum og þá hefði maður haldið að við hefðum, eins og hv. þingmaður sagði hér áðan, vaxið út úr vandanum, sem er nú í takt við það sem sitjandi ríkisstjórn boðaði. Hér átti að keyra niður vexti og verðbólgu og fara í verðmætasköpunarhaust sem er reyndar að þróast yfir í frostaveturinn mikla. Auðvitað er þessi leið miklu betri gagnvart ekki bara skuldareglunni, heldur að öllu leyti betri leið. Við eigum að létta á samfélaginu þegar það er í vandræðum. Ef við eigum að fara í einfalda myndlíkingu í þessu, hv. þingmaður: Þegar maður í vatni þreytir marvaða og getur ekki lengur haldið sér á floti þá verður þú bara að velja: Ætlar þú að henda til hans blýlínunni eða björgunarhringnum? Þessi ríkisstjórn hefur valið blýlínuna. Þannig að það lítur ekki vel út fyrir manninn í vatninu, hv. þingmaður.

(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna hv. þingmenn á að ávarpa ávallt forseta og vísa til annarra þingmanna í þriðju persónu.)