157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:22]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni. Ég er sjálfur engu nær. Ég lýsti því raunar hér í upphafi ræðu minnar að að þetta birtist mér eins og markmiðið sé að vinna með einhvers konar excel-skjal sem gengur upp svo lengi sem það sé ekki andað í áttina að því. Þetta rétt hangir á lyginni, ef maður orðar það hreint út. Þá er það einmitt þetta, sem hv. þingmaður fór yfir, það má ekki gera frekari greiningar á nokkrum sköpuðum hlut. Það má ekki koma með fleiri upplýsingar inn í þingið og það má ekki endurskoða þær forsendur sem liggja að baki excel-skjalinu, eins og til að mynda þetta með vörugjöldin sem munu ólíklega skila þeim fjárhæðum sem lagt er upp með í frumvarpinu. Þessa þætti fór hv. þingmaður yfir. Það má ekki endurskoða neitt því þá brestur þessi regla. Vissulega er það óheppilegt að þingið sé einfaldlega ekki upplýst um það hvert svigrúmið er samkvæmt reglum eða er nú þegar fyrir hendi.

Ég hjó einmitt eftir þessu, líkt og hv. þingmaður gerði sjálfur, að umfjöllunin um stöðugleikaregluna í meirihlutaáliti fjárlaganefndar er ótrúlega fátækleg, það bara er ekki neitt. Fyrst er reglunni lýst, það er verið að segja hver stöðugleikareglan er, eins og það sé verið að minna meiri hlutann á það hvað hún er. Svo kemur þessi setning hér í lokin: „Útlit er fyrir að aðhaldsstig ríkisfjármálanna verði því sem næst hlutlaust gagnvart hagsveiflunni á næsta ári.“ Það eru upplýsingarnar sem við fáum byggðar á forsendum sem við vitum því miður að eru rangar.