fjárlög 2026.
Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög fyrir árið 2026 og hér hefur verið áhugaverð umræða sem hefur staðið í þó nokkurn tíma. Það er nefndarálit meiri hluta og síðan eru þrjú minnihlutaálit og ég ætla í minni ræðu að fjalla um nefndarálit 1. minni hluta sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson fer fyrir og þingflokkur Framsóknar stendur að baki honum hvað það varðar. Ég ætla að leyfa mér það, frú forseti, að segja um nefndarálit 1. minni hluta að það sé óhætt að segja að það sé svona frekar vel í lagt. En aftur á móti þá ákváðum við í sameiningu í þingflokknum að nálgast umræðu um fjárlög á þann hátt að við færum yfir öll málefnasviðin, reyndum að rýna og greina þau markmið sem þar eru að baki og ég held að sú vinna hafi gert það að verkum, alla vega hvað þingflokkinn varðar, að við náum frekar að glöggva okkur á þeim hlutum sem um er rætt á hverju málefnasviði. Við reyndum að rýna hvert málefnasvið með þeim augum hvað væri hægt að gera betur. Vissulega er það þannig að mörg markmið innan hvers málefnasviðs eru þannig að það er svo sem ekkert hægt að bæta við, það kemur þá líka fram í nefndarálitinu. En það er nú alltaf þannig samt, frú forseti, að það er alltaf hægt að gera betur. Ég tel að í þessu nefndaráliti 1. minni hluta þá komum við þar inn á ákveðna hluti og ég ætla að fara yfir nokkur málefnasvið hvað það varðar.
Ég ætla að gefa mér það, frú forseti, að halda mig bara við fjárlög. Ég ætla ekki að reyna að fara í umræðu um vörugjöld eða kílómetragjald eða annað, heldur bara það sem er til umræðu hér og snýr að fjárlögunum og halda mig við hvert málefnasvið fyrir sig og fjalla lauslega um það og síðan fer ég inn á dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan hvers málefnaflokks. Ég held að það sé mjög mikilvægt í þessu samhengi, þegar við ræðum um fjárlög, að markmiðin sem sett eru séu þannig gerð að þeir sem bæði fjalla um fjárlögin og þeir sem ætla að vinna eftir þeim, þ.e. framkvæmdarvaldið, hafi skýr skilaboð frá löggjafarvaldinu um það hvernig það sér fyrir sér framkvæmd hvers málefnasviðs og hver vilji löggjafans er hverju sinni.
Það þarf nú svo sem fáum að koma á óvart, frú forseti, að ég byrja á því að fjalla um málefnasvið 12, sem er landbúnaður. Það er að mörgu leyti margt gott sem kemur þar fram sem snýr að markmiðum um málefnasvið landbúnaðar. En aftur á móti eru þættir sem er gott að bæta við sömuleiðis og það er mikilvægt að það sé lögð aukin áhersla í markmiðasetningu fyrir málefnasviðið á þær stefnumótandi aðgerðir sem þegar eru í gildi eða sem æskilegt er að vísa til. Má þar nefna atvinnustefnu stjórnvalda en drög að henni hafi nú verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Aðrar aðgerðir og áætlanir sem 1. minni hluti fjárlaganefndar telur eðlilegt að vísa til eru verkefni á borð við Nýjar rætur, það er verkefni og svona hugmyndabanki sem við í þingflokki Framsóknarflokksins höfum verið að vinna með sem snýr að stuðningi við jarðakaup, nýliðun í landbúnaði og fjárfestingarátak innan atvinnuvegsins, þ.e. í matvæla- og landbúnaðarframleiðslu og hvernig við nýtum ríkisjarðir sem lið í ákveðnum nýsköpunaráformum sem hafa góð áhrif. Sömuleiðis getum við horft á það hvort ekki sé æskilegt að fara í ákveðið landsbyggðarmat sem geti tryggt að ákvarðanir sem stjórnvöld taka geti tekið mið af hagsmunum ólíkra byggða.
Eins og ég kom inn á áðan þá gerðum við tillögur að því hvernig væri þá æskilegt að nálgast þennan þátt. Við setjum undir málefnasvið 12 tillögu frá okkur innan Framsóknar sem snýr að markmiði 1: Fæðuöryggi, heilbrigði og velferð með skýrri framtíðarsýn. Vissulega vítt hugtak og þess vegna var mjög áhugavert fyrr í dag þegar hæstv. atvinnuvegaráðherra tók til máls undir þessari umræðu og kom ágætlega inn á sýn ráðherrans á ákveðna málaflokka. Ráðherrann kom inn á t.d. verkefni sem snýr að kornræktinni, verkefni sem heitir Bleikir akrar. Í þeim lið eru 378 milljónir sem ganga til kornræktar. Vissulega er það mjög gott og jákvætt verkefni og er þegar farið að skila árangri. Við megum ekki gleyma því sömuleiðis að sá árangur hefur ekki einungis orðið til vegna þess að þessir fjármunir komi til heldur eru margir aðrir þættir sem koma þar inn sem gera þetta að verkum, t.d. með mjög hagstæðri veðráttu, útsjónarsemi og dugnaði bænda sem eiga þarna stóran þátt. En vissulega er þetta akkúrat verkefni sem er mjög mikilvægt að horfa til. Það segir okkur það að þegar ríkisvaldið kemur að verkefnum með ákveðnum stuðningi, eins og í þessu tilviki, þar sem bændur leika aðalhlutverk, þá skilar það árangri. Í markmiði 1 er talað t.d. um fæðuöryggi og stór hluti af fæðuöryggi þjóðarinnar er að reyna að vera nægjanlega sjálfbær varðandi aðdrætti, aðföng sömuleiðis til framleiðslu á landbúnaðarafurðum. Það er sömuleiðis komið inn á fleiri atriði sem hæstv. ráðherra kom inn á í sinni ræðu í dag, t.d. varðandi þá fjármuni sem ganga til arfgerðargreiningar sem snýr að því að reyna að útrýma riðu hér innan nokkurra ára. Það er vissulega þarft og mjög gott verkefni. Sömuleiðis kom hæstv. ráðherra sjálfur inn á verkefni sem snýr að söfnun á dýrahræjum þar sem, ef ég hef tekið rétt eftir, er talað um 300 milljónir á næstu tveimur árum.
Markmið 2, þar leggjum við til það sem snýr að fjölbreyttum, verðmætum og sjálfbærum landbúnaði. Ég held að þetta séu hugtök sem þarfnast í sjálfu sér ekki mikilla útskýringa. Í markmiði 3 fjöllum við um sjálfbæra nýtingu lands og auðlinda með skýrum ramma og þjóðhagslegri arðsemi. Þarna er verið að tæpa á því að við þurfum að tryggja það að við séum að nýta land. Hvernig nýtum við auðlindina? Það er náttúrlega lykilatriði hverju sinni að við erum að vinna með auðlind og það er bara eðlilegt markmið hverrar þjóðar og stjórnvalda hverju sinni, að setja sér markmið um það hvernig við nýtum auðlindir til þess að skapa verðmæti og aukna velsæld.
Í markmiði 4 förum við inn á það sömuleiðis að fjalla um stórt verkefni sem snýr að loftslagsvænum landbúnaði og stefna að kolefnishlutleysi innan einhverra ára og ég held að það sé markmið ekki bara Íslendinga heldur sé það bara markmið sem eiginlega nær allir sem koma að matvælaframleiðslu eru að horfa til. Í því samhengi þá getum við horft til þess að þingflokkur Framsóknarflokksins hefur lagt fram undanfarin þing, svo sem ekki gert það á þessu þingi, mál sem snýr að þjóðarátaki í landgræðslu og skógrækt sem, held ég, gæti vel flokkast undir það að uppfylla markmið 4 sem við setjum hérna fram.
Frú forseti. Við veltum einnig fyrir okkur málefnasviði 12.20, sem snýr að rannsóknum, þróun og nýsköpun. Þar komum við sömuleiðis með metnaðarfull markmið sem snúa að undirstöðunni að því að við þurfum að byggja upp mun öflugri vísindagrunn í íslenskum landbúnaði. Við þurfum sömuleiðis að auka rannsóknargetu Matís og annarra samstarfsstofnana því að grunnurinn að allri nýsköpun og þróun er að við séum með mjög öflugar stofnanir sem geta stutt við vöruþróun, uppfinningu og nýsköpun hverju sinni. Við þurfum sömuleiðis, í markmiði 3, að auka þátttöku Íslands í alþjóðlegum matvæla- og landbúnaðarrannsóknum. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þeirri þróun sem hefur átt sér stað erlendis sem snýr að þróun á matvælum og landbúnaðarrannsóknum. Ég ætla að vona að ég sé ekki að halla á neinn hvað það varðar en þar getum við gert mun betur. En það gerist í sjálfu sér ekki nema í því samhengi að hið opinbera komi að því í samstarfi við atvinnurekendur, fagaðila, við getum t.d. horft til kokkalandsliðsins sömuleiðis sem hefur verið að gera gríðarlega góða hluti í keppnum erlendis og hefur reitt sig á fjármuni hingað til í gegnum fjárlaganefnd. Ef ég hef lesið fjárlagafrumvarpið rétt, frú forseti, þá sé ég ekki að þeir fjármunir séu til staðar fyrir kokkalandsliðið. Ég held að það sé vert fyrir meiri hluta fjárlaganefndar að velta því fyrir sér hvort það væri æskilegt að koma því þar inn.
Sömuleiðis, um það sem snýr að rannsóknum, þróun og nýsköpun, er mjög mikilvægt að byggja upp samræmdan gagnagrunn um landbúnað og matvælaframleiðslu. Það hefur hingað til verið í sjálfu sér akkillesarhæll okkar að við höfum ekki verið með nógu gagnsæja og góða grunna til að styðjast við. Sömuleiðis þurfum við að styrkja vettvangsrannsóknir í samstarfi við bændur, þróa nýja tækni og nýjar aðferðir sem eru raunhæfar og raunverulega til gagns fyrir matvælaframleiðslu. Við þekkjum mjög mörg atriði þar sem verið er að reyna að stuðla að einhverri góðri framþróun en þegar við höfum ekki þann grunn eða það utanumhald sem þarf til þá rennur það nú því miður oft út í sandinn. Viljinn er til staðar en ef við höfum umgjörðina ekki í lagi þá er hætta á því að svo fari að góðar hugmyndir nái ekki að þroskast og verða að öflugum afurðum eins og til var ætlast þegar lagt var af stað.
Við horfum til þess að að vera með auknar rannsóknir sömuleiðis á verðmætasköpun og öllum nýjum afurðum. Þetta er gríðarlega stórt og mikilvægt atriði í því að fylgja þeirri þróun og þeim breytingum sem verða á markaði matvæla hverju sinni. Ef við höldum ekki í við þróun á afurðum t.d. erlendis frá, þá eru það yfirleitt erlendu vörurnar sem taka yfir vegna þess að innlendu vörurnar fylgja ekki eftir. Það er fyrirtæki innan landbúnaðar hér á landi, þ.e. Mjólkursamsalan, sem hefur verið gríðarlega öflugt í nýsköpun og þróun og hefur verið að koma með nýjar vörur á markað hverju sinni eins og landsmönnum er svo sem vel kunnugt. Ég tel í því samhengi að t.d. í því sem snýr að þróun í kjötvinnslu og öðru getum við gert mun betur, að vera með vörur sem eru aðgengilegar og þjóna tilgangi þess sem markaðurinn fer fram á.
Það er ekki nóg að setja fram ákveðin markmið heldur þurfum við sömuleiðis að meta áhrifin á fjárheimildir og hvaða áhrif þessar hugmyndir sem við setjum fram, eða þessi markmið sem 1. minni hluti setur fram, hafa á fjárheimildir málefnasviðsins. Hérna bregðum við að vísu út af vananum og gerum ekki tillögu um aukningu fjárheimilda. Er það fyrst og fremst vegna þess að innan þessa eru þættir innan þar sem hugsanlega eru fjármunir til staðar í dag og þetta snýst þá fyrst og fremst um að við förum þá leið að nýta fjármunina mun betur. Við getum svo sem horft til þess að það eru þarna þættir eins og t.d. verkefnið Nýjar rætur, uppbygging á nýjum gagnagrunnum, aukin áhersla á loftslagsaðgerðir, jarðvegsvernd og vistkerfi og fjölbreyttari ræktun og matvælavinnslu á landsbyggðinni og síðan þessi landnýtingarverkefni sem krefjast þá frekar langtímafjárfestinga. Í sjálfu sér á það við um þetta allt en við verðum að gera okkur grein fyrir einu hvað þetta varðar: Allt það sem að framan er talið hér, í þeim markmiðum sem ég fór yfir sem tengjast landbúnaði — þessi verkefni eru meira og minna til staðar. En það sem vantar upp á er fyrst og fremst það að við þurfum að sameina og samtvinna þau verkefni til þess að þau nýtist mun betur en þau gera í dag.
Því næst ætla ég, frú forseti, að fara í málefnasvið 08.20, sem snýr að byggðamálum. Við höfum svo sem heyrt þá umræðu sem hefur verið undanfarið að hv. þingmenn í meiri hluta og minni hluta greini á um það hvort verið sé að setja næga fjármuni eða hvort þeir hafi verið að hækka eða lækka til byggðamála. Miðað við þau gögn sem við unnum út frá er rétt að hafa í huga að framlög til byggðamála lækka um 12% í þessum fjárlögum sem fellur engan veginn að því málefnasviði sem er verið að fjalla um, þ.e. um byggðamál, og alls ekki fer það saman við yfirlýsingar hlutaðeigandi ráðherra um eflingu landsbyggðarinnar. 12% lækkun er töluverðir fjármunir. Þó svo að hér hafi verið rætt um að það sé verið að stórauka fjármuni til landshlutasamtaka þá gleymist að það er verið að breyta allverulega verklagi sem hefur verið hér til staðar til fjölda ára, þ.e. fjárlaganefnd hefur verið að útdeila fjármunum í hin ýmsu verkefni. Núna er því verklagi breytt og það er þá landshlutasamtakanna að sjá um það. Síðan fylgja einhverjir fjármunir til landshlutasamtakanna í gegnum sóknaráætlanir. En ef við horfum á heildarfjármunina sem runnu út í fyrra og miðað við það sem við sjáum að er að gerast núna, þá er þetta lækkun upp á ein 12% og er engan veginn í samhengi við það sem þeir sem tala fyrir málaflokknum segja, það fer ekki saman hljóð og mynd hvað það varðar.
Við getum sömuleiðis séð að það hafa verið töluverðar breytingar þegar kemur að markmiði um að jafna aðgengi að þjónustu. Þetta er vissulega mjög metnaðarfullt og gott markmið. En einhvern veginn hefur mér fundist það renna töluvert út í sandinn og er það álit okkar í þingflokki Framsóknar að það sé ekki nóg að markmiðin eigi fyrst og fremst að einblína á stuðning við dagvöruverslanir, greiningu á þjónustusókn, því svo er það bara þannig að það kemur í sjálfu sér ekkert annað fram. Og síðan bara rétt á eftir erum við að fjalla um stórt frumvarp sem snýr að sameiningu sýslumannsembætta og annarrar ríkisþjónustu, sem í sjálfu sér veikir óhjákvæmilega það þjónustustig sem er í dreifðum byggðum og vinnur gegn markmiðum stjórnvalda um að jafna aðgang og viðhalda þjónustukjörnum. Sömuleiðis það sem snýr að markmiði um að jafna tækifæri til atvinnu, það er mjög óafmarkað markmið. Vissulega er mikilvægt að fjölga störfum og efla fjölbreytni atvinnulífsins en markmiðið er fram sett sem viljayfirlýsing frekar en að eitthvert árangursmarkmið búi þar að baki. Það sést ekki í þeim markmiðum sem eru undir á málefnasviði 08.20, sem snýr að byggðamálum.
Það er gömul saga og ný að margar byggðir hringinn í kringum landið hafa staðið frammi fyrir fólksfækkun. Það er mjög misjöfn aðstaða fólks varðandi aðgengi að orku, aðgengi að þjónustu og rekstrarkostnaður er misjafn sömuleiðis. Það eru verulega margir agnúar á því að reyna að jafna aðstöðu fólks og öll þekkjum við umræðuna sem hefur átt sér stað í kjölfar þess að stórar verksmiðjur hafi verið að loka, hvort sem það sé Elkem á Grundartanga eða PCC á Bakka. Sömuleiðis heyrum við fréttir af lokun Vélfags. Bara t.d. á Ólafsfirði eru fimm fjölskyldur að missa fyrirvinnuna. Þetta er allt svo viðkvæmt í þessum minni byggðarlögum, það má svo lítið út af bregða. Þá verður það að vera þannig að stjórnvöld geti brugðist við og aðstoðað til þess að reyna að viðhalda jákvæðri byggðaþróun. Einhvern veginn hefur það verið þannig að við höfum hingað til ekki borið gæfa til þess að stíga inn í nógu snemma til að stuðla að því að geta skapað fjölbreytta og öfluga atvinnustarfsemi. Við þekkjum það öll að það hefur verið í gegnum tíðina mjög einhæft atvinnulíf á mjög mörgum svæðum. Sem betur fer hafa á sumum svæðum komið inn nýjar atvinnugreinar sem hafa liðkað til og hjálpað en við getum gert mun betur.
Frú forseti. Þótt ég hafi ekki ætlað að fara að tala um bandorma í þessari ræðu þá get ég ekki annað, þegar ég er að fjalla hérna um byggðamál, en að tala um erfðaskattinn. Það hefur svo sem komið fram í ræðum hjá þó nokkrum hv. þingmönnum, ekki bara þingmönnum úr stjórnarandstöðu heldur sömuleiðis þingmönnum stjórnarmeirihluta, að hann verðum við að endurskoða. Það gengur ekki upp að farin verði sú leið að breyta mati á jörðum. Í dag er verðmyndun yfirleitt bundin af því að miðað er við fasteignamat, ekki matsverð, og á því er gríðarlegur munur. Og talandi um það að reyna að liðka fyrir ættliðaskiptum í landbúnaði þá er þessi aðgerð, ef af verður, rothögg á ættliðaskipti í landbúnaði. Það er alveg ljóst. Ég held að allir hv. þingmenn hafi fengið tölvuskeyti frá formanni Landssambands veiðifélaga í gær eða fyrradag, þar sem lýst er áhyggjum af þessu máli, sömuleiðis nýleg grein framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, var birt á Vísi, held ég, alla vega var það á samfélagsmiðlum, fésbókinni, þar sem hún lýsir áhyggjum sínum af þessu máli. Við þingmenn höfum fengið gríðarmörg skilaboð og símtöl um að þarna verðum við að hægja á.
En það er ekki nóg að gagnrýna heldur þurfum við líka að tala í lausnum. Í áliti 1. minni hluta er farið sömuleiðis inn á tillögur að nýjum markmiðum innan þessa málefnaflokks. Þá horfum við náttúrlega til — þetta er setning sem við höfum heyrt mjög oft: Jafnt og tryggt aðgengi íbúa að grunnþjónustu í öllum byggðarlögum. Við erum öll búin að heyra þetta margoft og við notum þetta enn og aftur. Góð vísa er aldrei of oft kveðin, en þetta er grunnstefið í því hvernig við sjáum fyrir okkur að þetta eigi að þróast. Hvernig ætlum við að skapa grunn fyrir íbúa þessa lands til að búa annars staðar en þar sem þéttbýli er og á stórhöfuðborgarsvæðinu? Það hefur því miður ekki tekist en þetta er gott markmið og því eigum við að fylgja. Sömuleiðis setjum við hér fram markmið sem snýr að því að hafa öflug og fjölbreytt atvinnutækifæri í öllum landshlutum. Eins og ég kom inn á áðan er mjög mikilvægt að við mótum ákveðna atvinnustefnu sem tekur þá sérstaklega mið af landsbyggðinni. Við verðum að horfa á landsbyggðina þó að okkur langi til þess að tala um okkur sem eina heild, þjóðina sem eina heild, við verðum að taka það skref og horfa til þess hvernig við ætlum að efla atvinnu á landsbyggðinni.
Sömuleiðis er mjög mikilvægt að efla aðdráttarafl byggða fyrir ungt fólk, frumkvöðla með nýjar hugmyndir. Þá kemur að verkefninu Nýjar rætur, sem hefur svo sem verið til umræðu áður. Það er þingsályktunartillaga þingflokks Framsóknarflokksins og er fyrst og fremst ætluð til að að styðja við jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni til aukinnar verðmætasköpunar. Þetta snýst allt um aukna verðmætasköpun. Hvernig nýtum við þær auðlindir til þess að auka verðmæti? Það er alveg ljóst að ef af þessum breytingum á erfðafjárskatti verða, sem snúa að mati á landbúnaðarjörðum, þá erum við að leggja stóran stein í þá götu að efla og auka áhuga og styðja við jarðakaup frumkvöðla eða ungs fólks á landsbyggðinni. Það er alveg ljóst.
Markmið 4, enn og aftur horfum við til landsbyggðarinnar og setjum hér fram mjög metnaðarfullt verkefni sem snýr að nýsköpunarsjóði eða tilraunasjóði landsbyggðarinnar, fyrir landsbyggðina. Við þekkjum öll hvernig það gengur fyrir landsbyggðina að sækja í ákveðna sjóði, nýsköpunarsjóði. Það hefur bara gengið erfiðlega. Hérna þurfum við að gera mun betur. Við teljum það best til þess fallið að vera með sér nýsköpunarsjóð. Þetta yrði sjóður sem gæti verið með jafnvel smærri styrki á bilinu 500.000 kr. upp í 1,5 millj. kr. til einstaklinga og teymisverkefna sem eru á ákveðnu frumstigi. Það er vísað til þess í þessum texta hjá okkur í þessu áliti og er mjög ítarleg umfjöllun um það hvernig við viljum útfæra þetta á málefnasviði 07, fyrir þá sem vilja ólmir lesa sér til um frekari útfærslu Framsóknarflokksins á því.
Nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar er aðeins eitt dæmi um viðbót við núverandi vistkerfi nýsköpunar og byggðaþróunar. Sjóðurinn hefði skýrt og afmarkað hlutverk; að virkja nýjar hugmyndir, draga úr byrjunarhópum og skapa raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar í ólíkum byggðarlögum landsins. Þarfirnar eru mjög misjafnar á milli landshluta og milli byggðarlaga sömuleiðis þannig að ég held að það þurfi að vera mikill sveigjanleiki hvað þetta varðar. Við erum með ákveðna kostnaðargreiningu á því hvað við teljum að þessi nýsköpunarsjóður sem um er rætt geti kostað. Það kemur fram í breytingartillögu 1. minni hluta að þetta séu um 150 millj. kr. sem fari til stofnunar á þessum nýja nýsköpunarsjóði og þá með samsvarandi þjóðarátaki fyrir árið 2026.
Ég sé það, frú forseti, að tíminn hleypur frá mér, aldrei þessu vant. Tíminn er aldrei nægur, þó að menn byrji í 40 mínútum eru allt í einu bara sex og hálf mínúta eftir og maður er rétt hálfnaður og farinn af stað. En ég ætla í lokin, frú forseti, að fara inn á málefnasvið 14, sem er ferðaþjónustan. Þar eru mjög margar áskoranir. Það vafðist töluvert mikið fyrir þingflokki Framsóknarflokksins að velta fyrir sér og reyna að greina núverandi markmið málefnasviðsins um ferðaþjónustu. Þau taka ekki nægilega mikið mið af þeim áskorunum sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir í því alþjóðlega samhengi sem hún starfar í. Það eru spár um hægari hagvöxt, óvissu í kaupmætti helstu markaða, aukinn rekstrarkostnað og harðnandi alþjóðlega samkeppni. Það kallar á að það þarf að uppfæra þau markmið sem verið er að vinna eftir. Núverandi markmið vísa almennt til verðmætasköpunar og/eða endurskoðunar á regluverki en án þess að taka á grunnforsendum samkeppnishæfni eða þeim þáttum sem tryggja fyrirsjáanleika og stöðugleika fyrir fyrirtæki sem á þessum markaði starfa. Þá skortir markmið sem varða samhæfða markaðssetningu og uppbyggingu beins alþjóðlegs flugs til landsbyggðar en dreifing ferðamanna er ein stærsta viðvarandi áskorun greinarinnar. Þótt dregið hafi verulega úr þessari áskorun miðað við hvernig var hér áður fyrr þá er þetta viðvarandi átak sem við megum ekki gefa tommu eftir í.
Þau markmið sem við höfum sett fram sem snúa að því hvað við teljum vera æskilegt að fara í, svona rýni og endurbætur, eru þá bara þau að við verðum að reyna að tryggja skýrt og einfalt samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustuna. Enn og aftur kemur að því hver gjaldtakan er og ramminn um hana, skattlagning, leyfisveitingar og öryggismál. Þetta eru mjög stórar áskoranir fyrir þessa mikilvægu atvinnugrein okkar. Það þarf að vera ákveðinn fyrirsjáanleiki í rekstri, samræmdar reglur og samkeppnishæfni gagnvart löndum sem Ísland er að keppa við. Við þekkjum þá umræðu sem t.d. hefur verið núna í tengslum við vörugjöldin og ég vænti þess að ég komi inn í umræðuna um vörugjöld hér á seinni stigum. Markmið 2 er þá skilvirk og samhæfð stjórnsýsla ferðaþjónustu og það er nú frekar skilvirkt, held ég, og auðskiljanlegt markmið sem er sett fram.
Síðan er markmið 3, að styrkja sjálfbærni, öryggi og dreifingu ferðamanna með samræmdri áfangastaðastjórnun og faglegri uppbyggingu innviða. Þarna þarf verulegt átak að reyna að dreifa ferðamönnum um landið. Eitt best heppnaða og best lukkaða verkfærið sem við höfum hingað til haft sem snýr að ferðaþjónustunni er flugþróunarsjóður og þau verkefni sem snúa t.d. að uppbyggingu á millilandaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum. Ég held að eitt öflugasta verkfærið sem við höfum til að dreifa ferðamönnum um landið sé flugþróunarsjóður og hvernig hann hefur starfað. Það er verulega jákvætt að fylgjast með því, búandi við Eyjafjörð, þegar þotur lenda á Akureyrarflugvelli, ætli það sé ekki fjórum fimm sinnum í viku orðið, alla vega það, í áætlunarflugi. Það hefur verið mjög áhugavert sömuleiðis að hitta þá erlendu aðila sem hafa komið að því. En lykillinn að því að það verkefni tókst svona vel og þetta fór af stað, er flugþróunarsjóður. Við þurfum að horfa til þess að til að þau markmið sem þingflokkur Framsóknarflokksins setur hér fram, undir forystu hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar, og snúa að málefnasviði 14, nái fram að ganga, er að standa vel að flugþróunarsjóði.
Frú forseti. Ég held að ég láti staðar numið. Umræðan um fjárlög sýnist mér verða nú hér eitthvað áfram en ég held að það sé mjög mikilvægt í því samhengi að við þingmenn sameinumst um það, hvort sem við erum í meiri hluta eða minni hluta, að reyna að koma með leiðbeiningar. Við getum gagnrýnt og komið fram með leiðbeiningar vegna þess að það er verkefni okkar allra hér inni að stuðla að því að um þau fjárlög sem verða samþykkt núna fyrir jólin verði sem mestur og öflugastur samhljómur. En ég læt hér staðar numið.