fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi spurninguna sem snýr að skattahækkunum og atvinnulífinu þá hefur það lengi verið mín skoðun að til að aðstoða atvinnulífið þá þarf að létta álögum af atvinnulífinu. Síðan koma skattar sem nýtast ríkissjóði í framhaldinu, þannig að þau geti vaxið út úr vandræðunum. Varðandi þá leið sem hv. þingmaður kom inn á áðan í sínu seinna andsvari þá er það nú þannig að þau áföll sem hafa dunið á okkur upp á síðkastið hafa svo sem ekki endilega snúið að núverandi stjórnvöldum eða fyrrverandi stjórnvöldum, heldur eru það ýmsar utanaðkomandi aðstæður sem hafa skapað það. Aftur á móti er það stjórnvalda hverju sinni að beita ákveðnum verkfærum til þess að reyna að aðstoða, byggja undir eða koma með ný verkfæri á staðinn, verkefni sömuleiðis til að reyna að skapa atvinnu. Það var akkúrat það sem ég kom inn á í minni ræðu að við þurfum að vera með fjölbreytta atvinnustefnu. Við þurfum að vera með fjölbreytt tækifæri fyrir fólk sem býr á landsbyggðinni vegna þess að þær uppsagnir sem hv. þingmaður minntist á hér áðan eru fyrst og fremst á landsbyggðinni. Hvort það sé eingöngu í kjölfar ákveðinna skattahækkana skal ég ekki segja til um en því miður óttast ég að þau veiðigjöld sem voru samþykkt í vor fari að hafa veruleg áhrif á atvinnu vítt og breitt um landið.