fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður hjó nú í frekar viðkvæman streng þegar kemur að lágmarksíbúatölu þótt hann hafi ekki minnst á það beint en ég skildi svo sem alveg hvað hv. þingmaður sagði. Landshlutasamtökin eru gríðarlega mikilvæg og í Norðausturkjördæmi eru tvö landshlutasamtök; þ.e. fyrir norðaustur hlutann og síðan er það Austurlandið. Það eru fjölmörg sveitarfélög sem eru á bak við SSNE, en aftur á móti eru það fjögur sveitarfélög sem eru t.d. á bak við Samtök sveitarfélaga á Austurlandi. Þar hafa verið gríðarlegar sameiningar, eins og Múlaþing og Fjarðabyggð þegar þau urðu til, og síðan erum við með Vopnafjörð og Fljótsdalshrepp.
Ég er á þeirri skoðun að það snúi í sjálfu sér ekki endilega að því hversu margir búa í hverju sveitarfélagi fyrir sig, þetta snýr að því hversu öflug stjórnsýsla er hverju sinni og hverjar tekjurnar eru innan hvers sveitarfélags. En aftur á móti held ég að það sé mjög mikilvægt í þessu samhengi ef á að fara að breyta verklagi hvað það varðar að fjárlaganefnd sé hætt að útdeila, ef við getum orðað það þannig, fjármunum í ákveðin verkefni hingað og þangað í sínu kjördæmi — það hefur oft verið þannig að þingmenn landsbyggðar hafa verið ansi duglegir í að útdeila þeim fjármunum. Þá tel ég það mjög skynsamlega leið að þessi landshlutasamtök hafi þennan kaleik og þau fái þá líka til sín almennilega fjármuni til þess en ekki að það séu einhverjir bitlingar sem verða ekki að neinu.