157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir andsvarið. Nú höfum við hingað til sett okkur markmið í gegnum árin varðandi losun og annað. Við settum okkur markmið um mjög marga hluti, ekki bara hluti sem snúa að loftslagsmálum. Í þessu samhengi þá hefur í gegnum tíðina, undanfarin ár, verið starfrækt verkefni sem heitir Loftslagsvænn landbúnaður sem Bændasamtök Íslands koma að. Það er mjög gott markmið að stefna að kolefnishlutleysi, að þú reynir að kolefnisjafna þinn búrekstur. Þá snýr þetta alltaf að því að fyrst þurfum við að hafa forsendurnar til þess að geta reiknað rétt út. Á meðan við erum enn þá að deila um hversu mikið landið er að losa og hversu mikið landið er að binda — við þekkjum þessa umræðu sem snýr að endurheimt votlendis og allt sem henni fylgir — á meðan við höfum ekki forsendurnar réttar, og hvað eru réttar forsendur hverju sinni, þá er mjög erfitt að setja sér markmið um það hvenær við verðum búin að ná kolefnishlutleysi. En aftur á móti eru þó nokkrir bændur að vinna eftir þessu metnaðarfulla og góða verkefni. Ég tel að innan einhverra áratuga, ég myndi segja 20 ár, þá verði umræða um kolefnishlutleysi og loftslagsvænan landbúnað á miklu hærra stigi en hún er nú í dag.