fjárlög 2026.
Forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Jón Pétur Zimsen aðeins út í það sem hann ræddi varðandi áhrif á bílaleigur. Nú sit ég í efnahags- og viðskiptanefnd og við höfum fengið fjölda gesta til okkar. Það er sláandi að heyra um áhrifin á bílaleigur og auðvitað marga aðra. Hins vegar er ég farin að óttast að þessi ríkisstjórn sem við sitjum uppi með lifi í einhvers konar efnahagslegum hliðarveruleika því ég heyrði viðtal við hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, á Sprengisandi þar sem hún talaði um að bílaleigurnar yrðu að koma með í þessa rafmagnsbílavegferð, orkuskiptin ættu að fara fram og þær eiga að koma með. Endursölumarkaður væri svo stór og þess vegna þyrftu Íslendingar sem vildu þessa bíla að geta keypt þá af bílaleigunum. Nú er það alveg á hreinu að bílaleigurnar vilja koma í þessa vegferð. Þær eru búnar að fara í þessa vegferð með ríkisstjórninni en niðurstaðan var sú að viðskiptavinurinn vill ekki þessa bíla. Hann er ekki að leigja þessa bíla. Alveg sama hver viljinn er þá er eins og það eigi bara að halda áfram og ekki taka neitt tillit til veruleikans. Bílaleigurnar eru mjög samvinnufúsar og reyna að vinna með þetta og samhliða tækniframförum þá mun þetta gerast en innviðirnir eru ekki tilbúnir. Því spyr ég: Telur hv. þingmaður að hæstv. ráðherra haldi að þessi fyrirtæki séu bara að búa þetta til eða hvað? Hver er skýringin? Það er ekki hlustað á umsagnaraðila.