157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[23:21]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Mig langaði að fá að ræða í seinni hlutanum aðeins um erfðafjárskattinn. Hv. þingmaður kom með góð dæmi. Mig langar að koma með annað dæmi: Segjum að þrjú systkini erfi fyrirtæki, lítið fjölskyldufyrirtæki sem á kannski fasteign. Þá á allt í einu núna að fara að meta þessa fasteign allt öðruvísi heldur en hún er metin í bókum félagsins í dag og allt öðruvísi en rímar við önnur lög og reglur. Þetta er því alger ómöguleiki. Hins vegar ef þessi þrjú systkini lenda í því að skatturinn kemur núna, þeir ætla að gefa sex ár og endurmeta þetta, þá getur kannski staðan verið breytt. Einnig kannski kennari sem óvænt er sagt upp af einhverjum ráðherra, hver veit, missir tekjur, viðurværi sitt óvænt. Einhverjir aðrir geta lent í einhverju öðru og einn stendur uppi og af því að þetta er samábyrgt þá þarf hann að borga allan skattinn. Er þetta sanngjarnt?