varamaður tekur sæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu, Anton Sveinn McKee, en 1. varamaður hefur boðað forföll. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 1. þm. Suðvest., muni vera fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir hana 3. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Viktor Pétur Finnsson, en 1. og 2. varamaður á lista hafa boðað forföll.