vald ráðherra í ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Ég er hér til að ræða fundarstjórn forseta. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að fréttir gærdagsins eru þess eðlis að sá ráðherra sem ber ábyrgð á þeim verkum þarf að svara fyrir þinginu. Ég vek athygli á því að í gær átti sá ráðherra að vera hér í dag til að svara óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Um leið og fréttir bárust af þessari embættisfærslu þá fór sá ráðherra af listanum. Þetta snýr beint að fundarstjórn forseta. Við hljótum að fara fram á það að hér komi skýringar á þessum gjörðum hæstv. ráðherra. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að hann eins og aðrir ráðherrar hafa skrifað undir siðareglur ráðherra. (Forseti hringir.) Ég fer fram á það að forseti sjái til þess að við getum fengið skýringar á þessum gjörðum hæstv. ráðherra.