vald ráðherra í ríkisstjórn.
Frú forseti. Að sjálfsögðu sendum við batakveðjur til hæstv. ráðherra. En það er ástæða til að fjalla um efni máls sem er lykilatriði í okkar stjórnskipan. Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Við hér inni gegnum tvíþættu hlutverki, að setja lög og hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Liður í því er auðvitað að ráðherrarnir komi fyrir þingið og svari fyrirspurnum okkar þingmanna. Það skiptir öllu máli. Einstaka ráðherrar ríkisstjórnarinnar geta beðist undan eða tekið þá persónulegu ákvörðun að ræða ekki við einstaka fjölmiðla eða þáttastjórnendur, en hingað í þingsal ber þeim að koma og svara spurningum okkar. Þannig á lýðræðið okkar að virka.