vald ráðherra í ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Svo að það fari ekki fram hjá neinum þá vissi ég ekki að viðkomandi hæstv. ráðherra væri á sjúkrahúsi og ég óska honum alls hins besta og sendi innilegar batakveðjur. Það hefði ekki verið verra ef við hefðum vitað þetta áður en dagskrá þessa þingfundar hófst. En það breytir því ekki að staðgengill hæstv. ráðherra verður að svara fyrir það sem við höfum séð í fjölmiðlum og sömuleiðis forystumenn hæstv. ríkisstjórnar, því að eins og hv. þm. Jón Gunnarsson fór ágætlega yfir þá fer þetta að verða nokkuð langur listi af hlutum sem virðulegi forseti þarf að finna flöt á að við getum rætt hér og hæstv. ríkisstjórn svari fyrir.