vald ráðherra í ríkisstjórn.
Frú forseti. Ég verð að gera athugasemd við það að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar komi hingað upp og misnoti þennan lið. Það er alveg ljóst að það var farið algjörlega að lögum í því máli sem hefur verið rætt. Það var enginn brottrekstur, heldur er bara farið að lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Við heyrum hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala um einhver lögbrot og brottrekstur þegar sagan segir það, frú forseti, að þeir hafa sjálfir auglýst stöður þegar fimm ára skipunartími er liðinn. Þetta er bara eðlilegt og það að vera að draga þetta upp hér sem einhverja hættulega ógn og ég veit ekki hvað — það er bara ekki við hæfi, frú forseti.