vald ráðherra í ríkisstjórn.
Það er kannski rétt að minna hv. þingmenn á að hér erum við enn undir liðnum fundarstjórn forseta. Forseti hefur hlýtt á orð þingmanna og skilið þau. Það hafa komið fram skýringar um lögmæt forföll hæstv. mennta- og barnamálaráðherra. Forseta þykir miður að hafa ekki vitað af þeim áður en þessi fundur hófst. Það eru vissulega ekki góð vinnubrögð, ég tek undir þau orð þingmanna. Hér er staðgengill ráðherrans í salnum. Hér er forsætisráðherra. Hér eru tveir aðrir hæstv. ráðherrar og hér er á dagskrá óundirbúinn fyrirspurnatími um leið og þessari fundarstjórnarsyrpu er lokið. Allir hv. þingmenn vita að óundirbúinn fyrirspurnatími er einmitt fyrirspurnatími sem nýttur er til að spyrja hæstv. ráðherra í ríkisstjórn Íslands um málefni dagsins. Til þess er hann nýttur og til þess er hann á dagskrá þingfundar.