157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

vald ráðherra í ríkisstjórn.

[10:51]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Af því tilefni að hv. þm. Sigurjón Þórðarson vék að því hér áðan að við værum að misnota þennan lið í þingstörfunum þá vil ég bara hafna því. Ég kom hingað upp til að vekja athygli forseta á því að það er ákveðinn grundvallarbrestur hér í gangi þegar kemur að því að Alþingi geti rækt þetta meginhlutverk sitt sem er eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Það er alvarleg staða sem ég man ekki eftir að hafi áður komið upp með þessum hætti. Ég rakti hér mörg mál sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, Umboðsmaður Alþingis eða aðrar eftirlitsstofnanir þurfa að koma að, öll sem snúa að óeðlilegri stjórnsýslu. Þetta er alvarlegt mál, virðulegur forseti. Þetta er ekki bara áhyggjuefni fyrir framkvæmdarvaldið, fyrir ríkisstjórnina, þetta er áhyggjuefni fyrir Alþingi Íslendinga vegna þess að hér er meginhlutverk Alþingis undir.