hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Ég ætla að beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra vegna þeirrar umræðu sem við erum í þessa dagana og allt snýst um. Stærsta verkefnið okkar er að lækka verðbólgu og vexti fyrir skuldug heimili, fyrirtæki og fyrir alla sem finna fyrir þrengri kjörum. Heimilin og fyrirtækin eru nú þegar að gera sitt besta. Þau hagræða, þau fresta, þau forgangsraða vegna vaxtabyrðarinnar og sívaxandi skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Seðlabankinn hefur um leið verið skýr um að frekari skref í vaxtalækkunum ráðist af því að verðbólga færist nær markmiði. Þá hlýtur ríkið líka að vera þátttakandi í því verki, eða ætti að vera, enda leika ríkisfjármálin þar lykilhlutverk. Aukning fjárlaganna milli ára var 125 milljarðar. Svo bætti meiri hluti fjárlaganefndar 18 milljörðum við. Það er 143 milljarða aukning á milli ára af 1.600 milljarða veltu, eða tæp 9% aukning á milli ára í 4% verðbólgu. En það sést ekki í fjárlagagerð ríkisstjórnarinnar að ríkisstjórnin sé að hagræða. Almenn aðhaldskrafa er aðeins 1%. Ég segi aðeins 1% þegar aukningin er um 9% á milli ára. Ég er að tala um markvissa hagræðingu, þar sem hún er raunhæf, í stoðrekstri, innkaupum, ráðgjöf, húsnæði, verkefnum sem má fresta án þess að skaða þjónustu við fólk. Við erum ekki að tala um niðurskurð. Einmitt þegar ríkisvaldið á að senda skýr skilaboð um aðhald gerist hið gagnstæða. Útgjöld hækka verulega.
Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra: Á meðan heimilin og atvinnulífið hagræða af nauðsyn vegna vaxtabyrðarinnar og skattahækkana ríkisstjórnar virðist ríkisvaldið ekki sýna sama aga í eigin rekstri. Af hverju er aðhaldskrafan ekki meiri, t.d. 2%? Hvernig samræmist það markmiðum um aðhald að útgjöld hækki milli umræðna um 18 milljarða? Hefur ráðherra ekki áhyggjur af trúverðugleika fjárlaganna (Forseti hringir.) þegar tekjuáætlanir byggjast á forsendum sem eru bersýnilega mjög viðkvæmar fyrir markaðsviðbrögðum líkt og við þekkjum með vörugjöldin af bifreiðum (Forseti hringir.) sem munu augljóslega ekki skila þeim tekjum í ríkissjóð á næsta ári sem ríkisstjórnin er að teikna upp í fjárlögunum?