157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar.

[10:58]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Já, við höfum heyrt rætt um 100 milljarða hagræðingu. Og við höfum heyrt rætt um 15 milljarða sem eiga reyndar, held ég, að vera 13. Og hvernig er sú framkvæmd? Þeir sjást ekki augljóslega í gögnum fjármálanna. Þeim er hent inn í ramma hvers ráðuneytis fyrir sig. Það er ekkert ólíkt því og að segja bara: 2% aðhald á vöxtinn. En vöxturinn á milli ára er 143 milljarðar, 9%. Tvö prósent raunvöxtur, sagði hæstv. ráðherra, innan stöðugleikareglu. Við getum örugglega deilt um það og það á eftir að koma í ljós hvort hún haldi. Ef það er verið að skilja eftir nokkrar milljónir til að sleppa við stöðugleikaregluna þá held ég að skilaboð stöðugleikareglunnar séu röng, hún sé nýtt í botn í staðinn fyrir að nota hana sem aðhald. En 143 milljarða aukning í 4% verðbólgu með 2% aukningu — af hverju fer ríkisstjórnin að auka útgjöldin um 9% á milli ára og segir að þörf sé á frekara aðhaldi, þegar hagvöxturinn er að hrynja á þessu ári og verður augljóslega minni á næsta ári? Þar með standast tekjuáætlanirnar ekki heldur.