157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

samskipti ráðherra í ríkisstjórn við embættismenn.

[11:08]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Það er kannski rétt að koma hér upp og benda á að það er alveg ljóst af umfjöllun fjölmiðla að það á ekki að endurskipa manninn. Hann upplifir það mjög skýrt og fær alveg skýr skilaboð um það, eins og hann lýsir því, að það liggi ekki fyrir áhugi af hálfu ráðherrans á því að hann starfi þarna áfram þótt honum sé auðvitað frjálst að sækja um einhverja stöðu. Það eru mjög skýr skilaboð send með þessu og það er ekki hægt að láta eins og þetta sé ekki tiltölulega afdrifarík ákvörðun gagnvart manninum sem hefur starfað þarna. Það er ekkert óeðlilegt við að menntamálayfirvöld taki ákvörðun um að fara í ákveðna átt með ákveðnar stöður ef menn sinna ekki starfinu með ákveðnum hætti eða ef um er að ræða málefnalegar eða faglegar ástæður. Það er hins vegar annað þegar ráðherrar í ríkisstjórn virðast vera komnir í persónulega herferð gagnvart embættismönnum, sem er ásýnd þessa máls.

Það er ekki eitthvað sem er að spilast út í fjölmiðlum, eins og hæstv. forsætisráðherra lýsir því. Það er bara verið að lýsa mjög undarlegum samskiptum hæstv. félagsmálaráðherra og skólameistara, með leyfi forseta: „Inga hringdi í janúar, ég fékk bara símann frá skiptiborðinu, og hún var ekki í neinu jafnvægi; byrjaði strax að hella sér yfir mig, ákaflega reið og bókstaflega öskraði í símann að það væri búið að stela glænýjum Nike-skóm af barnabarninu.“ Hún krafðist þess svo að fá að vita hvernig á því stæði að starfsfólkið væri ekki búið að finna skóna, hvort þar ynnu letihaugar sem ekki nenntu að vinna vinnuna sína. Svona er þessu lýst og ráðherrann á í þokkabót að hafa sagt að hún gæti hringt í lögregluna, enda hefði hún ítök þar. Og svo er jafnvel ýjað að því í þessu viðtali — skólastjórinn segir að ef hann hefði verið spurður hefði hann haldið að hún væri drukkin. Þetta eru því mjög alvarlegar ásakanir sem eru bornar á borð gagnvart hæstv. ráðherra.

Ég velti fyrir mér hvort verkstjóri ríkisstjórnarinnar geti gert grein fyrir því hvort hann hafi haft aðkomu að þessu máli og áttað sig á því, eða haft upplýsingar um, að ekki stæði til að ráða þennan skólastjóra áfram. Ég spyr í ljósi þess að verkstjórinn, hæstv. ráðherra, hefði kannski mátt átta sig á því hver ásýnd málsins yrði eftir þessi samskipti, þ.e. að ráðherra úr sama flokki fari svo og geri manninum ljóst að hans krafta sé ekki óskað, eins og honum var gert ljóst.