samskipti ráðherra í ríkisstjórn við embættismenn.
Frú forseti. Hér er verið að vitna í tveggja manna tal. Það er verið að vitna í tveggja manna tal og ég hef ekki forsendur til að meta hvað nákvæmlega fór þarna fram. Það liggur alveg fyrir. Hún hefur lýst þessu með öðrum hætti. Ég ætla ekki að vera dómari í því máli. Ég hef hins vegar sagt og sagði það hér í upphafi árs að það skiptir máli með hvaða hætti maður á í samskiptum við fólk, bæði á faglegum grunni en líka í persónulegum samskiptum af því að það er þannig í lok dags að það getur reynst vera ákveðið flækjustig í því að ráðherrar eru líka einstaklingar með fjölskyldu. Þetta er ákveðið einstigi sem þarf að feta. Hún hefur beðist afsökunar og gerði það í upphafi árs, í upphafi síns ferils í þessu embætti og áttaði sig á að hún hefði kannski átt að tala með öðrum hætti. Enn og aftur: Ég hef einfaldlega ekki forsendur til að meta það, enda get ég ekki verið dómari í því máli en hún hefur gert athugasemdir við þessa frásögn. Ég get ekki tekið afstöðu til þess.
Varðandi það hvernig er talað um hvort eigi að endurskipa eða ekki endurskipa og hvað standi til þá, enn og aftur, ætla ég ekki að draga í efa eða fara að segja umræddum aðila hvernig viðkomandi eigi að líða með þessar fréttir. Það sem ég veit einfaldlega er að þessi ákvörðun er tekin á faglegum forsendum. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að umræddur aðili, eins og allir aðrir embættismenn í kerfi sem starfar samkvæmt lögum og reglum um opinbera starfsmenn þar sem af og til er verið að ræða um, og reyndar oft í þessum sal, hvort auglýsa eigi oftar, hvort það eigi að gera hluti með öðrum hætti í ráðningum — þessum aðila er frjálst að sækja aftur um. Ég hef ekki frekari forsendur. Varðandi það hvort ég hafi verið upplýst um að þetta stæði til þá vissi ég af því. (Forseti hringir.) En ég sé ekki ástæðu til þess að forsætisráðherra sé að grípa inn í faglega ákvörðun, bara vegna mögulegrar ásýndar í pólitíkinni.