157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

ábyrgð forsætisráðherra í ríkisstjórn.

[11:15]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hvað eiga Kína, Tyrkland og Ísland sameiginlegt? Í fjölmörgum löndum sem við berum okkur ógjarnan saman við nota stjórnmálamenn völd sín og áhrif með óæskilegum hætti, m.a. til að hafa áhrif á fjölmiðla og störf embættismanna. Með áhrifum á fjölmiðla er dregið úr frelsi þeirra og gagnrýni á stjórnvöld, sem er þó eitt mikilvægasta hlutverk fjölmiðla. Í slíkum löndum reyna stjórnmálamenn að stýra fréttaflutningi í opinberri umræðu. Í sömu löndum eru skoðanir og gagnrýni opinberra starfsmanna ekki liðnar og pólitískar hreinsanir algengar. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru æðstu valdhafar framkvæmdarvaldsins og þeir sitja í okkar skjóli. Hæstv. forsætisráðherra er verkstjóri ríkisstjórnarinnar og aðrir ráðherrar sitja í hennar skjóli. Ábyrgð hennar er mikil.

Hæstv. forsætisráðherra veit auðvitað upp á hár hvert ég er að fara með þessari fyrirspurn. Hún fylgdist með því og aðhafðist ekkert þegar stjórnarliðar kröfðust lækkunar á styrkjum til fjölmiðla sem þeir töldu halla á sig. Formaður Blaðamannafélagsins og raunar hæstv. ráðherra málaflokksins mótmæltu slíku orðfæri, en niðurstaðan varð engu að síður sú að óþekki fjölmiðillinn fékk á baukinn frá ríkisstjórninni.

Ég ætla ekki að eyða löngum tíma í aðkomu hæstv. ráðherra að stóra strigaskóamálinu, en skólastjóranum sem þar kom við sögu hefur nú verið sparkað af fyrrum varaformanni Samfylkingar. Og hver skyldi hafa fyrirskipað það? Þetta er einn reynslumesti skólameistari landsins, sem hefur reyndar líka verið gagnrýninn á stjórnvöld. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra, og vona að ég sjái ekki undir hælana á henni hér aftur, að því hversu langt hennar ríkisstjórn mun ganga fram með viðlíka hætti og ég hef lýst og er ekki sæmandi fyrir lýðræðisríki. Og fyrst hún svaraði ekki hv. þm. Ólafi Adolfssyni hér áðan: Hafa siðareglur ráðherra ekki verið brotnar að mati hæstv. ráðherra? Já eða nei. Og þar getur hæstv. ráðherra ekki skorast undan því að vera dómari í því máli.