157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:00]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Hér ræðum við frumvarp til fjárlaga, þriðji dagurinn, held ég, sem við ræðum þetta mál. Fyrstu fjárlög ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa litið dagsins ljós ásamt tengdum frumvörpum og bandormum og ekki er þar allt fallegt sem við blasir. En áður en lengra er haldið vil ég taka fram að ég tek að sjálfsögðu undir minnihlutaálit 2. minni hluta í fjárlaganefnd sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason fór svo listilega vel yfir í fyrradag.

Stefnumál ríkisstjórnarinnar eru augljóslega tvö. Hið fyrsta, sem er rauður þráður í gegnum allt, er aðlögun, linkind og undirgefni gagnvart Evrópusambandinu og allt skal gert til að fara með Ísland inn í þennan höktandi söfnuð, alveg sama hvað á gengur. Meira að segja skiptir engu máli þegar ESB setur verndartolla og undanskilur EES-ríkin Ísland og Noreg ekki og brýtur þar með EES-samninginn, þannig að Evrópusambandið grefur sjálft undan sjálfum EES-samningnum, en, nei, Viðreisn og sá ráðherra sem fer með fjármálaráðuneytið og aðrir ráðherrar og bara allur þingflokkur Viðreisnar er svo fullkomlega blindaður af ást á Evrópusambandinu og ver gjörðir þess í hvívetna, svo mikil er blindan.

Hitt stefnumál ríkisstjórnar sjáum við í fjárlögum og frumvörpum þeim tengdum. Það er að leggja sífellt meiri álögur á fólk og fyrirtæki. Þær álögur og skattahækkanir bitna ekki síst hart á landsbyggðinni og upp kemur í hugann orðatiltækið að kríta liðugt. Ríkisstjórnin krítar hér liðugt og svíkur kosningaloforð þar sem a.m.k. tveir stjórnarflokkanna, þ.e. Viðreisn og Samfylkingin, lofuðu að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning í þessu landi — skattahækkanir en ríkisstjórnin kýs að kalla þau plön sín öðrum nöfnum. Ríkisstjórnin reynir þannig að slá ryki í augu fólks með því að kalla þessar áætlanir sínar einhverjum allt öðrum nöfnum en skattahækkanir, sem þær sannarlega eru. Kannski tekur hún þennan skattpíningarséns því hún trúir þekktum álitsgjöfum hjá tilteknum fjölmiðli sem stigið hafa fram upp á síðkastið og sagt að aukið fylgi við tiltekinn stjórnmálaflokk gæti kannski verið merki þess að fólk væri illa læst. Þetta er hins vegar kolrangt mat að mínu viti vegna þess að ég veit að fólkið í landinu er eldklárt. Það sér í gegnum fals og leikrit ríkisstjórnarinnar. Fólkið í landinu sér í gegnum þetta. Fólkið í landinu sér í gegnum skattpíningaráform sitjandi ríkisstjórnar og sem betur fer.

En hvað svo sem ríkisstjórnin kýs að kalla allar þessar skattahækkanir munu þær koma niður á fjárfestingu og framleiðni fyrirtækja og þynna veski almenns launafólks í þessu landi. Skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar, ásamt því að ekki er tekið á útgjaldavexti ríkisins, eru vísbending um að stjórnarflokkarnir átti sig ekki á samspili vaxtarskilyrða í atvinnulífi og tekna ríkissjóðs. Ríkisstjórnin hefur því miður engin tök á fjármálum ríkissjóðs. Útgjöld ríkissjóðs aukast að raunvirði um tæpa 80 milljarða eða 5,4% á milli ára. Það fjármagn kemur hvergi nema úr vösum skattgreiðenda. Á sama tíma er spáð minni hagvexti á næsta ári en gert var ráð fyrir og fjölmörg nýleg áföll í útflutningsgreinum gætu reynst dýrkeypt. Svo koma stjórnarþingmenn í pontu og halda því fram að hér sé haldið aftur af útgjaldavexti þegar útgjaldavöxturinn er stjórnlaus. Ríkisbáknið þenst út sem aldrei fyrr, skattahækkanir og aftur skattahækkanir á fólk og fyrirtæki, og ríkisstjórnin reynir að slá ryki í augu fólks með því að reyna að fegra þennan ljóta leik. Verðmætasköpunarhaustið mikla, tiltektin og planið — ó mæ, segi ég nú bara.

Plön ríkisstjórnarinnar eru því miður ekki að taka utan um fólk og fyrirtæki í þessu landi. Fjárlagafrumvarpið og frumvörp því tengd eru ekkert annað en aðför að öllu venjulegu fólki og nefni ég sérstaklega bændur, aðför að fyrirtækjum, landsbyggð, byggðafestu, ferðaþjónustu og fleira. Er þetta sleggjan sem ríkisstjórnin hefur talað svo mikið um, berja niður venjulegt fólk og fyrirtæki og möguleika til verðmætasköpunar, draga úr samkeppnishæfni Íslands? Er þetta hin margumrædda sleggja? Það eru fyrirtæki og venjulegt fólk í þessu landi sem borga brúsann. Skattahækkanir eru ekki til þess fallnar að auka verðmætasköpun nema síður sé.

Upptaka kílómetraskatts, já, ég segi kílómetraskatts því þetta er ekkert annað en skattur, er til að mynda til þess fallin að hafa verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustu sem er ein öflugasta stoð tekjuöflunar ríkissjóðs og því rétt að halda því fram að verið sé að grafa undan efnahag þjóðarinnar með upptöku þessa skatts. Þetta er einnig landsbyggðarskattur því víða um land þurfa íbúar að sækja sér þjónustu, jafnvel lögbundna, um langan veg sem kallar á aukinn kostnað verði kílómetraskatturinn að veruleika. Já, rökin, vel á minnst, fyrir tvöföldun veiðiskattsins voru einmitt að hann yrði nýttur í vegakerfið. Einmitt. Tvöföldun veiðiskattsins getur dregið úr skatttekjum af sjávarútvegi eins og fjölmörg sveitarfélög bentu á á síðasta þingvetri og stuðlað að minni skatttekjum til lengri tíma.

Hið sama má segja um hækkun fjármagnstekjuskatts á leigutekjur, ýti undir hækkun á húsaleigu sem kemur fyrst og fremst leigjendum illa. Við teljum þannig að ekki sé hugað nægilega að breyttum forsendum sem skapast við hækkun skatta og því fyrirséð að forsendur fjárlagafrumvarpsins, og þar með stöðugleikareglunnar, séu brostnar ef ekki er dregið jafnframt úr útgjöldum. Margir hafa varað við skattstefnu ríkisstjórnarinnar sem raunar virðist vera hreinræktuð vinstri stjórn. Talsmenn atvinnulífsins hafa varað við afleiðingum af skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Stórauknar skattgreiðslur sem sækja á í ferðaþjónustu og sjávarútvegi munu koma niður á getu greinanna til fjárfestinga og nýsköpunar og hvetja til samþjöppunar, t.d. í sjávarútvegi. Þetta er gert á sama tíma og samdráttur er á verðmætustu mörkuðum ferðaþjónustunnar. Íslenskur iðnaður keppir á heimsmarkaði og nú sætir mikilvægur hluti hans sérstökum tollum af hálfu Evrópusambandsins sem kaus að brjóta ákvæði EES.

Við upptöku kílómetraskattsins mun Ísland vera eina landið í Evrópu sem notast við slíkt kerfi, sem aðrar þjóðir hafa ekki tekið upp eða horfið frá því, líklega sökum flækjustigsins og ósanngirni sem því fylgir. Regluverkið og umfangið við eftirlit, álagningu og hátt hlutfall leiðréttinga veldur því að fyrirséð er að utanumhaldið mun valda fjölda einstaklinga og fyrirtækja, ekki síst í ferðaþjónustu, bæði erfiðleikum og kostnaði. Á það ber að líta að bifreiðaeigendur greiða um 78 milljarða í skatta vegna bifreiða sinna en innan við 50 milljarðar fara í að viðhalda og byggja upp vegakerfið.

Samtök ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið og að það feli í sér jafn íþyngjandi áform fyrir íslenska ferðaþjónustu og raun ber vitni. Samtökin benda á í sinni umsögn að upptaka kílómetraskattsins sé ekki aðeins íþyngjandi kostnaður og aukið flækjustig vegna innheimtunnar fyrir ökutækjaleigur heldur muni hafa neikvæð áhrif á eftirspurn einstaklinga eftir ferðalögum til Íslands í ljósi þeirra verðhækkana sem gjaldið hefur í för með sér á útleigu ökutækja. Það hefur áhrif á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu í heild sinni og verðmætasköpun landsins. Óhóflegar hækkanir skatta og gjalda sem og nýjar álögur geta dregið úr komu erlendra ferðamanna og innlendri neyslu meðan á dvöl þeirra stendur. Það segir sig sjálft. Þá gagnrýna samtökin einnig í umsögn sinni hækkun vörugjalda á ökutæki og benda á að hækkað verð á ökutækjum muni bitna á ferðaþjónustufyrirtækjum og valda verðhækkunum til viðskiptavina þeirra.

Athygli vekur að skattar eru einnig hækkaðir á þá sem síst skyldi, fjölskylduna. Samnýting skattþrepa á milli hjóna og sambúðarfólks hefur gagnast fjölmörgum þar sem tekjur hjóna geta verið mismunandi. Að loka fyrir þann möguleika að ónýtt skattprósenta í lægra skattþrepi þess tekjulægri nýtist þeim sem eru með hærri tekjur rímar afar illa við þá staðreynd að ábyrgð hjóna á skattskuldum hvors annars verður áfram við lýði. Enn og aftur er verið að gera atlögu að hjónafólki og þar með þeirri fjölskyldueiningu sem þjóðfélagið hefur verið byggt á um langan aldur.

Fjármagnstekjuskattur á leigutekjur einstaklinga er hækkaður um 50% en þar er um að ræða þá sem til að mynda eru að leigja út eigin eign eða aukaíbúð í eigin húsi og létta þannig undir með greiðslu áhvílandi lána. Jákvæðir hvatar eru minnkaðir sem er afskaplega sorglegt.

Það er lítið talað um landbúnað í nefndaráliti meiri hluta nema hvað varðar förgun dýrahræja og auðvitað er það í samræmi við áhugaleysi stjórnarinnar á þeim grunnatvinnuvegi. Landbúnaðurinn býr við það að samningar eru lausir og ekki að finna neinn metnað hjá ríkisstjórninni til að tryggja innlenda matvælaframleiðslu og fæðuöryggi með nýjum búvörusamningi eða sérstökum aðgerðum, á meðan undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar mega ásamt íslenskum almenningi þola óhófleg útgjöld ríkisins til ómarkvissra loftslagsaðgerða þar sem ekkert liggur fyrir um hvert féð hefur runnið, hverjir séu viðtakendur eða hvaða árangri fjárausturinn hefur skilað í loftslagsaðgerðum.

Hver eru heildargjöld og -skattar af akstri og ökutækjum á næsta ári samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi? Við sjáum að hækkunin er 11 milljarðar á milli ára. Um er að ræða gríðarlega hækkun á þessum sköttum og gjöldum á milli ára sem leggst auðvitað á heimili landsins og fyrirtæki af fullum þunga, venjulegt fólk sem ríkisstjórnarflokkarnir, í það minnsta Samfylkingin og Viðreisn, sögðust fyrir kosningar ekki ætla að hækka skatta á en hér eru sko massífar skattahækkanir hægri vinstri úti um allt.

Hér hefur hæstv. ráðherra lýst því að ná eigi markmiðum fyrri ríkisstjórnar um 1,7% skattlagningu á akstur og ökutæki af vergri landsframleiðslu á grundvelli stefnumörkunar fyrri ríkisstjórnar.

Mig langar að koma aðeins meira inn á skattahækkun á akstur og ökutæki. Hækkunin á milli ára er 11 milljarðar í aukna gjaldtöku á akstur og ökutæki. Það segir í töflu 4.2 á bls. 121, annars vegar er það kílómetragjald vegna notkunar bifreiða upp á 3,3 milljarða og endurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis upp á 7,5 milljarða. Þetta mun auðvitað bitna mest á þeim hlutfallslega sem lægstar hafa tekjurnar og léttustu bifreiðarnar. Það er nú bara þannig. Eðlilega hafa þeir sem geta brugðist við áður en þetta skellur á almenningi í landinu og innflutningur á bílum hefur verið mikill síðustu mánuði, hefur hækkað um mörg hundruð prósent, þannig að mér er það mjög til efs að áætlanir hæstv. fjármálaráðherra muni standast hvað þetta varðar.

Því skal haldið til haga að því hefur verið flaggað hér áður að kílómetragjaldið yrði bara kerfisbreyting á núlli. Það yrði ekki viðbótargjald á almenning og fyrirtæki vegna þess. En nú hefur allt önnur mynd birst, 11 milljarðar á ári í aukna skatta og gjöld af akstri og ökutækjum. Það verður þessu tengt að segjast eins og er að það hefur auðvitað verið dálítið sérstakt að hlusta á hæstv. ráðherra lýsa því yfir að núverandi ríkisstjórn sé einhvern veginn bara áframhaldandi handlangari í verkefnum fyrri ríkisstjórnar, jafn ómöguleg og hún var nú stundum á köflum.

Það vekur sérstaka athygli mína að ökutæki í eigu erlendra sendiráða eða erlendra sendiráðsmanna erlendra ríkja eru undanskilin kílómetraskattinum. Hvers vegna að undanþiggja þessa aðila því að greiða kílómetragjald? Jú, það er vegna þess að þetta er skattur. Þetta eitt er staðfesting á því að þetta er skattur og aftur skattur. Væri þetta eitthvað annað en skattur væru ökutæki í eigu erlendra sendiráða eða erlendra sendiráðsmanna erlendra ríkja ekki undanþegin. Ég hef búið í nokkrum löndum sem útsendur starfsmaður utanríkisþjónustunnar íslensku. Hvergi þar sem ég hef í það minnsta búið hafa erlendir sendiráðsstarfsmenn verið undanþegnir því að greiða fyrir notkun á vegakerfi landanna, hvergi, og ég bjó síðast í Noregi, þannig að hættið að slá ryki í augu almennings og kallið þetta kílómetraskatt og vöruskatt á bifreiðar.

Tekjuskattur einstaklinga lækkar um 1,6 milljarða kr. vegna minni umsvifa á vinnumarkaði, auk þess sem hækkun verðbólguspár leiðir til hækkunar persónuafsláttar og þrepamarka tekjuskatts. Á móti vegur að ætla má að afnám samnýtingar skattþrepa muni auka tekjur um 2,8 milljarða kr. Endurmat á innheimtu erfðafjárskatts í ljósi þróunar á þessu ári leiðir til 2,1 milljarðs kr. hækkunar á innheimtu á næsta ári. Ég mun koma talsvert mikið inn á erfðafjárskattinn seinna í þessu innleggi mínu en hvernig menn fá þessa tölu út er mér raunar hulin ráðgáta. Einnig er áætlað að tekjuskattur lögaðila hækki um 1,5 milljarða kr. en aðrar tekjubreytingar vega minna.

Þá ætlar fjármálaráðherra að koma í gegn verulegri hækkun á erfðafjárskatti samkvæmt frumvarpi sínu um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld og fleira. Í 11. gr. frumvarpsins er skotið inn nýjum málslið þar sem segir að land skuli miða við markaðsverð. Efnisgreinin snýr að mestu að breytingu á hvernig eignir skuli verðmetnar. Þær ríma á engan hátt við önnur lög og reglur um verðmat eigna. Frumvarpið mun til að mynda gera kynslóðaskipti bújarða erfiðari og dýrari með tilheyrandi afleiðingum. Uppgjör dánarbúa verður mun flóknara og dýrara og í sumum tilfellum verður ógerningur að framfylgja lögunum ef þau fara í gegn óbreytt. Það er reynt að lauma þessu í gegn í seinni bandormi milli 1. og 2. umræðu, já, laumað inn. Í frumvarpi til fjárlaga þar sem yfirlit er yfir áætlaðar lagabreytingar vegna tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins er hvergi minnst á breytingu á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004. Það er hægt að sjá þetta á bls. 165 og 166 í fjárlagafrumvarpinu. Mér finnst þetta ógeðfelld vinnubrögð og renna stoðum undir að leitað var dyrum og dyngjum að möguleikum til að hækka skatta, líklega til að brjóta ekki stöðugleikareglu eða til hvers? Mér er spurn, ég hef ekki svarið sjálf en þetta er allt saman undarlegt.

Svo hefur komið á daginn að umsagnarfrestur var átta dagar en ekki tvær vikur líkt og venja er. Svo stórt mál hefði auðvitað átt að fara í samráðsgátt áður enda um afdrifaríka skattbreytingu að ræða. Þetta er meiri háttar skattbreyting.

Svo finnst mér afskaplega varhugavert og ámælisvert hversu bein lína virðist vera milli Skattsins og fjármálaráðuneytisins. Ef Skatturinn bíður lægri hlut í dómsmálum er lögum breytt. Mér finnst þetta ógeðfellt. Er það í alvöru svo að til standi að veita Skattinum heimild til að fara inn í erfðamál í allt að sex ár frá því að dánarbússkýrslu er skilað en í dag er sá frestur 40 dagar, að mig minnir? Svarið er já. Þessu er laumað inn í áætlaða breytingu á lögum um erfðafjárskatt þannig að Skatturinn gæti t.d. komið eftir, segjum fimm og hálft ár og sagt: Nei, heyrðu, við ætlum að endurmeta. Okkur finnst að þið hefðuð átt að greiða 30 millj. kr. en ekki 15, eða þrjár milljónir en ekki eina. Þetta er fullkomlega galið og ég hreinlega skil ekki hvernig mönnum dettur í hug slíkt dellumall.

Fjöldi mjög alvarlegra umsagna hefur borist um þessa fyrirætlan fjármálaráðherra en neikvæðar afleiðingar þessarar skattahækkunar eru fyrirséðar. Þetta mun leiða af sér hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bújarða, eða bænda, án þess að raunverulegt verðmæti eða fjármagn sé fyrir hendi til að greiða skattinn. Þetta kemur m.a. fram í umsögn Deloitte Legal um frumvarpið og ég ætla aðeins að leyfa mér að fara inn í þá umsögn. Í umsögninni er einnig gagnrýnt annað ákvæði í sömu lagagrein þar sem er mælt fyrir um að telja skuli fram eignarhluti í óskráðum félögum á markaðsvirði sem Deloitte segir fela í sér, með leyfi forseta, „gróft frávik frá almennum meginreglum skatta- og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.“

Þetta segir í umsögninni. Segir Deloitte að umræddar breytingartillögur muni fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti. Þær gætu einnig skapað talsverða óvissu um skattalega meðferð vegna annarra skatta. Þannig sé tillagan um hækkun á skattstofni óskráðra félaga gölluð að því leyti að ekki sé tekið tillit til tekjuskattsskuldbindinga sem hvíla á félögunum sjálfum. Þá segir Deloitte að tillagan muni leiða til óskýrleika í framkvæmd því lagt verður í hendur sýslumanns og skattyfirvalda að meta hvenær um sé að ræða óverulegan mismun á bókfærðum verðmætum samkvæmt ársreikningum og markaðsvirði eigna. Líkur séu á að sama eign yrði tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eigna vegna arftöku. Einnig sé líklegt að erfingjar þurfi að leggja út í kostnað við öflun verðmats eða sérfræðiaðstoðar til að verðmeta óskráð félög. Þá séu allar líkur á því að erfingjar þar sem arfláti var eigandi minni hluta hlutafjár fái hreinlega ekki nauðsynlegan aðgang að bókhaldi eða eignum viðkomandi félaga til að láta verðmeta eignir þess.

Og hvað varðar skattlagningu lands og jarða segir Deloitte að þegar slíkar eignir skipti um hendur við arfleiðslu kveði frumvarpið á um að eignirnar skuli meta til markaðsverðs, öndvert við það sem núverandi lög kveði á um, þ.e. að miða skuli við fasteignaverð. Nú eru hins vegar jarðir teknar út fyrir sviga og erfingjum ætlað að láta meta markaðsverð þeirra. Af þessu leiðir að erfingjar þurfa að leggja út í aukinn kostnað við að afla verðmats frá fasteignasala til að meta virði jarða í stað þess að nota hið opinbera skráða markaðsverð þeirra í Landskrá fasteigna eins og gildir um allar aðrar fasteignir. Áhrifin verða eflaust gríðarlega kostnaðarsöm fyrir erfingja íslenskra bænda því að nú þarf við arfleiðslu að fara að meta jarðir þeirra og hlunnindi til einhvers óþekkts markaðsverðs þegar reksturinn einn og sér er kannski ekki sérstaklega arðbær.

Þetta segir Deloitte sem telur mjög varhugavert að hækka erfðafjárskattsstofninn með þessum hætti því raunverulegt markaðsverð á jörðum sé almennt verulega óljóst. Ég verð að segja að ég get varla trúað því sem haft er eftir hæstv. fjármálaráðherra á mbl.is 1. desember síðastliðinn, með leyfi forseta:

„Bændur eru sennilega þeir einu sem verða fyrir einhverjum verulegum neikvæðum áhrifum af þessum breytingum. Annars eru þær aðallega tæknilegar.“

Svo mörg voru þau orð. Bændur eru sennilega þeir einu sem verða fyrir einhverjum verulegum neikvæðum áhrifum af þessum breytingum. Ef rétt er eftir haft, sem ég veit ekki, virðist hæstv. fjármálaráðherra hafa verið algjörlega með það á tæru að þetta hefði slæm áhrif á bændur. Sú sem hér stendur mótmælir þessum áformum harðlega því ef þetta fer í gegn þá dregur breytingin verulega úr möguleika á eða kemur hreinlega í veg fyrir kynslóðaskipti í landbúnaði og eykur líkur á samþjöppun jarðaeigna með neikvæðum áhrifum á landsbyggð, byggðafestu, landnýtingu og langtímaábúð á jörðum. Ef skattstofn hækkar verulega við arftöku án þess að greiðslugeta fylgi er hætt við að erfingjar neyðist til að selja, skuldsetja eða skipta upp landi til að standa skil á greiðslu. Það myndi í reynd ýta undir að jarðir færist í auknum mæli til fjársterkra aðila, fjárfesta og/eða fjárfestingarfyrirkomulags í stað þess að haldast í fjölskyldum og virkri nýtingu. Það getur dregið úr nýliðun og gert áframhaldandi búsetu ólíklegri á þeim svæðum sem treysta á sjálfbært eignarhald og nýtingu.

Ég bara trúi ekki öðru en að fallið verði frá þessum áformum vegna þess að þetta hefur svo rosalega víðtækar neikvæðar afleiðingar. Ég spyr: Ef menn ætla að þröngva þessu í gegn, er þá plan Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar að tæma sveitir landsins og gera út af við innlenda matvælaframleiðslu, gera út af við bændur og íslenska bændastétt? Ég trúi því ekki að þetta séu áformin og mér finnst eiginlega með ólíkindum að láta sér detta þetta í hug. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta sé hluti af ESB-plani Viðreisnar, að veikja svona undirstöðuatvinnugreinar landsins og jafnvel rústa. Hverjum nema Viðreisn dettur svona dellumall í hug, Viðreisn sem nú seilist út fyrir gröf og dauða við að draga líf og tennur úr bændum og sveitum landsins, draga þannig úr getu til innlendrar matvælaframleiðslu, minnka fæðuöryggi og kannski þjónka sérhagsmunavinum sínum? Hvað veit ég?

Ég minni á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti og vinna gegn samþjöppun jarða. Svona breyting á erfðafjárskatti gengur í gagnstæða átt í framkvæmd, fyrir utan að almennt finnst mér erfðafjárskattur ekki eiga rétt á sér. Af því sem erfist hefur verið greiddur skattur alla tíð og mér finnst hreinlega að það eigi að leggja þennan erfðafjárskatt af. Mér finnst þetta ósanngjarn skattur, svo ekki sé meira sagt.

En ég segi: Nú er að standa við stóru orðin, og beini orðum mínum í gegnum forseta til hæstv. forsætisráðherra. Ég er minnug þess að á fundi með bændum í Borgarnesi fyrr á þessu ári sagði hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, að Samfylkingin sé pólitískt skuldbundin því að hafa blómlegan landbúnað. Ég endurtek: Að Samfylkingin sé pólitískt skuldbundin því að hafa blómlegan landbúnað. Þessi ummæli hljóta að merkja að engar laga- eða tollabreytingar verði gerðar sem koma bændum og landbúnaði illa. Aftur langar mig að beina orðum mínum til hæstv. forsætisráðherra í gegnum forseta þingsins: Hæstv. forsætisráðherra, þessar áætlaðu breytingar á erfðalögum hafa svo slæmar afleiðingar fyrir bændur á svo margan hátt. Verði þessi áætlun fjármálaráðherra Viðreisnar ekki stöðvuð eru það svik við bændur. Það eru svik við bændur og svik við byggð í þessu landi.

Síðan langar mig að fjalla aðeins um í fjárlagafrumvarpinu sjálfu, á bls. 18, 19 og 20 undir Samningum um framkvæmdir og rekstur um afmörkuð verkefni, það er liður 6.3, þar sem segir, með leyfi forseta:

„Að ganga á grundvelli útboðs til samninga um varnarbúnað og þjónustu tengda honum fyrir starfsemi lögreglunnar til allt að 10 ára.“

Ef hæstv. fjármálaráðherra væri staddur hér í salnum þá gæti hann kannski svarað því en ég bara held áfram og kannski getur hæstv. forseti upplýst ráðherra um að það eru atriði sem ég myndi vilja fá upplýsingar um, hvort sem það er hérna eða í samtölum eftir fundinn eða hvað.

Síðan er það liður 7.15 á bls. 19, með leyfi forseta:

„Að auka hlut Íslands í Alþjóðaframfarastofnuninni (IDA) fyrir allt að 749 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar stofnunarinnar um aukin stofnfjárframlög aðildarríkja Alþjóðabankans.“

Mér finnst þetta rosalega mikil hækkun á framlagi og ég myndi vilja vita hvaðan þetta kemur. Er þetta tekið af þróunarsamvinnupeningum eða hvað er þetta?

Síðan er það liður 7.18, með leyfi forseta:

„Að veita bakábyrgð vegna þátttöku Íslands í InvestEU fyrir allt að 2,6 ma.kr.“

Ég hreinlega mótmæli þessu. Ég er ekki tilbúin til að gefa út hálfgerða óútfyllta tékka í eitthvað sem ég ekki veit hvað er. Síðan er það liður 7.20, með leyfi forseta:

„Að auka hlut Íslands í Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) fyrir allt að 600 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins.“

Aftur, mér finnst þetta mjög mikil hækkun og ég spyr mig hvaðan þetta komi. Er þetta tekið af þróunarpeningum eða hvaðan koma þessir peningar sem fara í þetta? Þetta kannski hljómar í stóra samhenginu ekki eins og miklar upphæðir en mér finnst þetta miklar hækkanir til einstakra alþjóðastofnana þannig að ég myndi vilja fá svör við því.

Síðan er það liður 7.21. Þar á að kaupa blendingsbréf Alþjóðabankans til enduruppbyggingar og framþróunar fyrir hönd Íslands fyrir allt að 150 millj. kr. Það væri fínt að fá upplýsingar um hvað blendingsbréf eru. Ég átta mig engan veginn á hvað það er. Þegar þetta er allt saman tekið eru þetta bara heilmiklar hækkanir sem hér eru á ferð sem eru í rauninni, held ég, óútskýrðar nema það sé kannski einhvers staðar að finna sem ég hef ekki fundið eða ekki séð, það væri fínt að fá upplýsingar um það.

Síðan eru liðir 7.24 og 7.25. Það er varðandi losunarheimildir eða væntanlega ETS-kerfið og mig langar, þar sem ég á svolítinn, reyndar ekki mikinn tíma eftir, aðeins að fara inn í ETS-kerfið, nýta smá tíma sem ég hef hérna til þess að fara inn í það vegna þess að það hefur samkeppnishamlandi áhrif á Ísland, finnst mér. Þetta kerfi var innleitt í lög 2023 og er með stigvaxandi innleiðingu og mér skilst að það sé stefnt að 100% skilaskyldu árið 2026. Raunar tel ég að við allt þetta bix hafi hagsmunagæslu Íslands verið ábótavant og hér þurfi að vinda ofan af vitleysunni. Reynsla íslenskra fyrirtækja af innleiðingu ETS sýnir að kerfið hefur reynst afskaplega íþyngjandi og kemur einstaklega illa við eyríki eins og Ísland sem reiða sig á flug og sjóflutninga með útflutningsvörur og fólk til og frá landinu, höfum engar aðrar leiðir. Af kerfinu leiðir gríðarlegan kostnaðarauka fyrir íslenskt atvinnulíf sem bitnar óhjákvæmilega á útflutningsgreinum, leiðir til hærra innflutningsverðs, gerir okkur einangraðri sem þjóð og skerðir samkeppnishæfni fyrirtækja og þar með lífskjör í landinu. Mér finnst ólíðandi að þetta ETS-kerfi bitni svona harkalega á Íslandi.

Þetta kerfi hefur víða verið gagnrýnt á undanförnum árum og bent á að aðgerðir sem eru illa undirbúnar eða ekki í takt við raunverulegar aðstæður geti valdið meiri skaða en gagni. Á Íslandi á það sérstaklega við þegar innleidd eru alþjóðleg kerfi, í þessu tilviki ESB-regluverk, án þess að tekið sé mið af eyríkisstöðu landsins og sett eru markmið eða álögur sem auka verulega kostnað og skerða samkeppnishæfni samtímis án raunhæfra valkosta. Við höfum ekkert val. Þetta er flug eða sjóflutningar, það er ekkert val. Hér eru t.d. ekki lestakerfi, það er haf allt um kring. Flutningsleiðin til og frá landinu er með flugi eða sjóflutningum. Íslensk skipafélög greiða 100% ETS-gjald milli Íslands og ESB-ríkja auk 50% ETS-gjalds á milli Íslands og Bandaríkjanna. Á meðan greiða skipafélög sem sigla beint á milli ESB og Bandaríkjanna einungis 50% ETS-gjald af allri siglingaleiðinni. Með öðrum orðum greiða íslensk skipafélög helmingi hærri ETS-gjöld en þau evrópsku fyrir vöruflutninga milli Evrópu og Bandaríkjanna. Mér finnst þetta hreinlega ólíðandi ástand.

Það segir sig sjálft að Ísland á ekki að búa við hærri flutningskostnað og skerta samkeppnishæfni undirstöðuatvinnugreinar vegna skakkrar innleiðingar á regluverki ESB. Í flugi eru leiðir til og frá Íslandi með þeim lengstu í Evrópu sem þýðir að áhrif ETS á íslenskt flug eru óhóflega mikil. Með afnámi sérstakrar undanþágu árið 2026 mun kostnaður íslenskra flugfélaga aukast verulega. Það mun að öðru óbreyttu leiða til fækkunar flugleiða, lægri tíðni flugs, hærra miðaverðs og skertrar samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar gagnvart öðrum flugvöllum. Það kann síðan að leiða til þeirrar kaldhæðnislegu stöðu að ETS-kerfið auki kolefnislosun ef flug og flutningar færast af þessum sökum til annarra svæða þar sem ferðir eru lengri eða óhagkvæmari í eldsneytisnotkun. Þessu þarf að breyta hið fyrsta.

Svo nokkur orð um sérstöðu Íslands. Í ETS-umræðunni er mikilvægt að halda til haga að Ísland hefur einstaka stöðu í alþjóðlegu samhengi. Hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi er með því hæsta sem þekkist í heiminum og er losun á hverja framleiðslueiningu lág í alþjóðlegum samanburði. Þá er þjóðin fámenn með hátt hlutfall orkufreks iðnaðar og mikinn ferðamannafjölda miðað við höfðatölu. Þrátt fyrir þetta er Ísland borið saman við ríki sem búa við gjörólíkar forsendur og standa Íslandi mun aftar þegar kemur að orkuskiptum. ETS-kerfið er hannað fyrir stóran meginlandsmarkað en ekki fyrir fámennt hagkerfi sem reiðir sig á flutninga fólks og vara til og frá landinu til að skapa útflutningsverðmæti. Ísland er eyríki, algerlega háð sjóflutningum, með mikla fjarlægð frá helstu mörkuðum. Ólíkt meginlandi Evrópu hafa til að mynda farmflytjendur enga raunhæfa eða aðra kosti en flug og siglingar. Því leggst þetta ETS-kerfi mun þyngra á Ísland en önnur ríki. Innleiðingin hefur þegar leitt til verri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og ef ekki verður brugðist við er fyrirséð að áhrifin verði viðvarandi. Við verðum að bregðast við. Eins fáránlegt og það hljómar þá er gert ráð fyrir að Ísland þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir a.m.k. 11 milljarða til að geta staðið við skuldbindingar í loftslagsmálum þar sem ekki hefur tekist að halda í við markmið á síðustu árum. Sá kostnaður mun lenda á einstaklingum og fyrirtækjum sem standa undir lífskjörum í landi þar sem verðmætasköpun er þegar ein sú umhverfisvænasta í heimi. Fyrir hvern er þetta kerfi eiginlega? Það er ekki fyrir Ísland og ég tel að hér hafi hagsmunagæslu verið stórlega ábótavant.

Að lokum þetta: Í andsvörum við hv. þm. Jens Garðar Helgason, þar sem verið var að ræða ETS-frumvarpið sem liggur fyrir þinginu, sagði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, með leyfi forseta:

„Ég held að það væri mjög til bóta fyrir samkeppnishæfni t.d. íslenskra skipaflutninga ef frekar tæki við alþjóðlegt kerfi af þessu ETS-kerfi. Þá þyrfti auðvitað um leið að tryggja að ETS-kerfið myndi fasast út samhliða. Ég held að fyrir samkeppnishæfni Íslands væri betra ef við lýði væri alþjóðlegt kerfi heldur en evrópskar sérreglur. Þetta er eitthvað sem við erum sérstaklega með augun á m.a. í Evrópusamstarfinu.“

Þetta ETS-kerfi ESB er skaðlegt og dregur úr samkeppnishæfni Íslands. (Forseti hringir.) Ríkistekjum vegna ETS-kerfisins er ekki varið í þágu loftslagsmála, hef ég fengið upplýsingar um, og í hvað fara þessar skatttekjur?

Virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Já, ræðutíminn er búinn þannig að ég óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá, ég náði ekki að klára.