157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:40]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti mun verða við því. Forseti áttaði sig líka á því að hv. þingmaður var að leggja fram ákveðnar fyrirspurnir og vangaveltur um ýmsa liði. Forseti upplýsir að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er ekki skráður í hús en hér er þó formaður fjárlaganefndar og fleiri nefndarmenn frá meiri hlutanum sem mögulega geta kannski komið að gagni í þeim efnum ef hv. þingmaður óskar svara. Annars þyrfti hv. þingmaður kannski að leggja fram fyrirspurn til hæstv. ráðherra með öðrum hætti.