fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða fjárlög. Ég hef reynt að halda mig við stóru myndina í þessari umræðu. Af hverju held ég mig við stóru myndina? Vegna þess að stóra myndin skiptir öllu máli. Ég fullyrði að enginn af þessum flokkum, Samfylkingunni, Viðreisn eða Flokki fólksins, hafi lofað því eða sagst ætla að gera það sem er í þessu frumvarpi. Heyrði einhver forystumenn þessara flokka segja: Við ætlum að hækka skatta? Heyrði einhver þau segja það? Menn geta sagt: Jú, við ætluðum að hækka skatt á sjávarútveginn. Allt í góðu. Þau ætluðu að vísu að hækka þann skatt á tíu árum en gerðu það að sínu fyrsta verki. Allt í góðu, tökum það út fyrir sviga. En allir hinir skattarnir? Sögðu forystumenn þessara flokka það við kjósendur að þeir ætluðu að hækka þessa skatta: tekjuskattinn, erfðafjárskattinn, krónutöluhækkunina? Formaður Samfylkingarinnar og nú hæstv. forsætisráðherra sagði að það væri, ef ég man rétt, árás á almenning að hækka þá skatta þegar hæstv. forsætisráðherra var í stjórnarandstöðu. Sagði einhver þetta? Nei, virðulegur forseti. Sögðu þau einhvern tímann: Við ætlum að nota tækifærið, þegar við munum breyta fyrirkomulaginu varðandi innheimtu á gjöldum af umferð, og hækka þá skatta stórlega? Sögðu þau það? Nei, það var ekki minnst á það einu orði. Og sögðu þau einhvern tímann annað en það að þau ætluðu að sýna ábyrgð og ráðdeild í ríkisrekstrinum? Ég held bara aldrei. Ég held að þau hafi alltaf notað þau orð að sýna ábyrgð og aðhald og ráðdeild þegar kæmi að opinberum rekstri. Hver er niðurstaðan? Niðurstaðan er sú að í fyrstu fjárlögunum hækka þau útgjöldin um 143 milljarða. Einhver kynni að spyrja: Er þetta ekki alltaf gert? Hækkar þetta ekki alltaf um einhverja 143 milljarða á hverju ári? Nei, virðulegur forseti, það er bara ekki þannig. Og fjárlögin þar á undan voru kosningafjárlög og almenna reglan er sú að kosningafjárlög þýði það að aukningin er gríðarlega mikil. Þá var það ekki 143 milljarða aukning, það var 70 milljarða aukning. Það er svolítið mikill munur þar á og enginn þarf að vera neitt sérstaklega góður í reikningi til að sjá það.
Skattahækkanirnar — nú er það þannig, virðulegi forseti, að ekki bara fyrir kosningar sögðu þau að þau ætluðu ekki að hækka skatta heldur sögðu þau við framlagningu frumvarpsins að það væru engar skattahækkanir. Þá er mjög auðvelt að benda á bls. 121 í fjárlagafrumvarpinu. Þar er þetta sérstaklega tilgreint, þá skattahækkanir upp á 27 milljarða. En það var ekki nóg þannig að á milli umræðna þá fór ríkisstjórnin af stað. Fyrst var haldinn mjög sérkennilegur blaðamannafundur í góðu hverfi í Reykjavík, í Úlfarsárdal, þar sem húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur. Það var búið að tilkynna að hann ætti að koma síðasta vor en hann kom nú um hávetur. Margt ágætt var sagt þar og sérstaklega áhugavert að loksins sáu þau ljósið varðandi séreignarleið Sjálfstæðisflokksins sem á sér langa sögu. Ég er mjög stoltur af að hafa komið að því að berjast fyrir því í gegnum áratugina því að við byrjuðum á því sem ungir Sjálfstæðismenn að berjast fyrir slíkri leið. Allt í góðu með það. En þetta hafði ekkert með þetta að gera, þau voru ekki að gera þetta til að koma með lausnir í húsnæðismálum, ef undan er skilið að halda í einhverri mynd áfram með séreignarleiðina sem hefur skilað gríðarlega góðum árangri fyrir fólkið í landinu. Nei, það var til þess að segja frá því að þau ætluðu að hækka skatta um 2,3 milljarða af því að 27 milljarðarnir voru ekki nóg, þannig að það bættist við. Hvaða afleiðingar hafa slíkar skattahækkanir? Þau ætla að hækka skatta á húsaleigutekjur. Hvaða afleiðingar hefur það? Það hækkar auðvitað leiguna. Það er ekkert flóknara en það og hefur komið fram í svörum frá ráðuneytinu.
Sömuleiðis var ekki nóg að bæta þessum skattahækkunum við. Það sem þau gerðu var, og ég átti orðaskipti við hv. þm. Þorgrím Sigmundsson áðan um það, að þau ákváðu að hækka erfðafjárskattinn. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að undanfarnar vikur hafa fjármálaráðherra Bretlands og forsætisráðherra Bretlands verið í nauðvörn vegna þess að þau eru ásökuð um að hafa ekki sagt satt og rétt frá varðandi forsendur fjárlaga og hvað er í fjárlögum þeirrar ríkisstjórnar. Hér liggur það hins vegar fyrir, staðfest og skjalfest, að hæstv. ríkisstjórn kemur með inn í þingið frumvarp um breytingar sem fela það í sér að erfðafjárskattur, þ.e. skatturinn sem fólkið sem erfir þarf að borga, mun hækka gríðarlega. Það er ekki bara það sem snýr að bændum. Þeir sem fylgdust með samskiptum okkar hv. þm. Þorgríms Sigmundssonar áðan eru kannski einhverju nær hvað þetta þýðir fyrir fólk í sveitum í rekstri sem við viljum halda úti. Ég held að þegar öllu er á botninn hvolft þá vilji menn að íslenskur landbúnaður verði til staðar þó svo að menn viti að hann hefur ekki, sérstaklega varðandi sauðfjárbúskapinn, verið arðbærasta atvinnugreinin, ekki bara á undanförnum árum heldur í nokkuð lengri tíma. Kynslóðaskipti í þeirri grein, og ég held að nákvæmlega það sama eigi við um mjólkurbúskapinn og fleira, verða ómöguleg vegna þess að í stað þess að miða við það sem menn hafa miðað við, það hefur verið skýrt og gagnsætt fasteignamat, ætla menn að finna markaðsvirði á lóð og lendur; ekki bara í landbúnaði, fólk getur átt lóð og lendur alls staðar og það getur verið háð ýmsu hvert markaðsvirðið er. Hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson nefndi vindmyllur og frístundabyggð, hótel og hvað það nú er, það breytir markaðsvirðinu mjög mikið. Og við hvað á að miða í því? Aðalatriðið er að ég held að flestum finnist erfðafjárskatturinn ekki vera réttlátur skattur og höfum við barist fyrir, og náðum í gegn í síðustu ríkisstjórn, að hækka frítekjumarkið sexfalt. Það er samt mjög lítið, það eru 6 milljónir og ef því sleppir þá þurfa menn að borga 10% af öllu sem þar er og það er af eignum sem er búið að borga alla skatta af í gegnum tíðina. Það er bara þannig, virðulegi forseti, að fáir eru með tugmilljónir inni á reikningi sem þeir geta reitt út þegar fráfall, í langflestum tilfellum foreldra, verður til þess að viðkomandi einstaklingar fái arfinn. Ef menn ætla að fara í það, sem er flókið og ekki gagnsætt eins og kemur fram hjá umsagnaraðilum, að þurfa að reikna það upp í háar fjárhæðir, þá liggur það alveg fyrir að í mjög mörgum tilfellum, vegna þess að einstaklingar eiga almennt ekki tugi milljóna inni á bankareikningnum, þurfa menn að selja og hætta í því tilfelli búrekstri. Þetta á við um allt land en ef við förum í þéttbýlið og óskráð félög, þá ætla menn að fara að höndla það með einhverjum öðrum hætti en áður hefur verið gert, taka fasteignir út úr þeim félögum og setja markaðsvirði á það og greiða erfðafjárskatt af því sem er bæði flókið, ógagnsætt en mun aðallega bara hækka skattinn gríðarlega mikið. Nú kynni einhver að segja að þetta sé allt sanngjarnt að fólk greiði mikinn skatt af þessu, fólk mun hvort eð er greiða skatta af þessu ef það selur þessar eignir. Þannig að hér gæti, eins og Deloitte Legal bendir á, sama eign verið tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eignar vegna arftöku. En aðalatriðið er þetta, virðulegi forseti, að ríkisstjórnin sagði ekkert frá því að hún væri að hækka skatta, hvorki fyrir kosningar og ekki einu sinni þegar frumvarpið var lagt fram. Það er algerlega óboðlegt og stenst enga skoðun þegar hæstv. ráðherrar segja: Heyrðu, þetta var ekki hugsað sem tekjuöflun. Fyrsta spurningin er þá: Af hverju var þetta þá lagt fram? Þau hefðu nú örugglega sagt frá því ef þau ætluðu að lækka skatta og það var ekki. En í ofanálag er það þannig að þegar hæstv. ráðherra flytur málið þá segir hann við þingheim og þjóð: Heyrðu, þið þurfið að huga að bændum, skoða það sérstaklega. Af hverju sagði hæstv. ráðherra það? Jú, hann sagði það vegna þess að þetta hækkaði skatta, hækkaði erfðafjárskattinn og það er erfitt hvað varðar kynslóðaskipti í landbúnaði. Ef þetta hefði ekki hækkað neitt skattinn hefði hæstv. ráðherra ekkert minnst á þetta.
Nú er það þannig, virðulegi forseti, að við í hv. fjárlaganefnd höfum svolítið verið að klóra okkur í höfðinu þegar kemur að breyttri tekjuáætlun fyrir þessi fjárlög, því að þrátt fyrir að hagvöxturinn færi niður og verðbólgan vissulega upp, þá gerðu menn ráð fyrir aukningu á öllum skattstofnum nema tekjuskatti einstaklinga. Það átti að minnka aðeins en allt annað fór upp, en þó sérstaklega erfðafjárskatturinn. Hann átti að hækka frá september fram í nóvember um 2,1 milljarð. Við spurðum eðlilega um þetta og fengum að vita að þetta væri lýðfræðileg þróun sem væntanlega var ekki á þeim tíma heldur var verið að vísa í eitthvert spálíkan sem menn notuðu alltaf. Væntanlega notuðu menn það ekki í september. Gott og vel, gefum okkur að það hafi verið gerð mistök í ráðuneytinu. Þetta voru mistök, þetta hafi ekki haft með það að gera að menn ætluðu að ná 2,1 milljarði í viðbót út af því að menn voru að hækka annars staðar eða voru að semja frumvarp um að hækka skattinn. Gefum okkur það. Þá er næsta spurning: Hvar er gert ráð fyrir þessum hækkuðu tekjum út af þessu frumvarpi, hækkun erfðafjárskattsins, ef það er ekki þarna inni í þessum 2,1 milljarði? Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað en það liggur alveg fyrir að þetta mun stórhækka skattinn og ég hef heimildir fyrir því að það sé mikið að gera hjá endurskoðendum og lögfræðingum núna því að fólk er að reyna að gera allt hvað það getur til að koma í veg fyrir að í framtíðinni þurfi arfurinn að fara eftir nýju frumvarpi, vegna þess að þetta hækkar skattinn. Það er óþolandi að hér sé ríkisstjórn í landinu sem vogar sér að koma fram með skattahækkunarfrumvörp og segja ekki frá því. Það er algerlega óboðlegt og í öllum löndum sem við berum okkur saman við, í öllum löndum, þætti þetta vera gríðarlega alvarlegt mál og það er það.
Við sjáum þessa aukningu ríkisútgjalda á milli ára um 143 milljarða. Hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson benti á það í óundirbúnum fyrirspurnum að þetta væri um 12% aukning og tvöföldun varðandi aukninguna milli fjárlaga, þ.e. hvernig við berum saman fjárlögin 2025 og 2026, þ.e. hver aukningin var frá 2024–2025 og síðan núna frá 2025–2026. Í ofanálag er samt sem áður halli, þrátt fyrir að tekjurnar aukist og skattarnir hækki, upp á 25 milljarða. Í meðförum meiri hlutans fór þetta úr 15 milljörðum í 25 milljarða. Menn tóku við gríðarlega góðu búi og alveg ljóst að hallinn á þessu ári, sem gert var ráð fyrir að yrði 63 milljarðar, verður miklu lægri og miðað við töluna í september er gert ráð fyrir að hann verði 19 milljarðar. Menn myndu ætla að það væri auðvelt að loka því gati. Nei, útgjöldin eru aukin, skattarnir hækkaðir og hallinn aukinn. Hallinn segir ákveðið en í raun er hollt að skoða hve mikið lán þarf að taka á næsta ári því að sumt er svolítið bókhaldslegt þegar kemur að þessum fjárlögum. Lánsfjárþörf ríkissjóðs á næsta ári er 82 milljarðar, hallinn 25 en lánsfjárþörfin er 82. Það er líka augljóst að það eru miklir veikleikar þegar kemur að þessum fjárlögum. Ég vísa til þess sérstaklega sem við tökum fram í nefndaráliti okkar, að þegar kemur að vörugjöldum þá er gert ráð fyrir hækkun tekna sem nemur 7,5 milljörðum kr. Það er miðað við, eftir okkar bestu upplýsingum, meðaltal í sölu bifreiða og það er bara reiknað, hækkuð vörugjöld, stórhækkuð vörugjöld — og ég vil taka fram, virðulegi forseti, að það er fullkomin fásinna og ósannindi að halda því fram að sá sem hér stendur beri ábyrgð á því eða hafi verið að undirbúa það í tíð fyrri ríkisstjórnar. Þetta var ekki einu sinni á mínu borði og ég er ekki mjög hress með að verið sé að reyna að klína einhverju á mig sem tengist mér nákvæmlega ekki neitt eins og sumir hafa gert. En látum það liggja á milli hluta í bili.
Það liggur fyrir að frá því að þessi fyrirætlun ríkisstjórnarinnar var lögð fram þá hefur verið gríðarlega mikið að gera hjá bílasölum. Af hverju? Vegna þess að fólk er að kaupa sér bíla á gömlu gjöldunum, eðlilega. Ég held að allir hafi áttað sig á því að þetta myndi gerast nema hæstv. ríkisstjórn. Fólk kann alveg að reikna og þú ert með tvo valkosti, að flýta bílakaupum og borga miklu lægri vörugjöld eða bíða fram á næsta ár og borga þá miklu meira fyrir bílinn. Og vitið þið hvað? Fyrirtæki og fólk tekur þá ákvörðun að flýta bílakaupum til þess að þurfa ekki að borga háu vörugjöldin. Við erum ekki búin að fá allar tölur í hús vegna þess að það er enn verið að selja bíla. Það er enn brjálað að gera á bílasölum. Það sem við vitum er að bílaleigur, sem alla jafna eru með 50% plús mínus af nýskráningum á bílum, eru búnar að kaupa í nóvember 535% meira af bílum en á sama tíma í fyrra; þær eru búnar að kaupa 163% meira af bensín- og dísilbílum í október, þetta kom fram um miðjan október, 535% meira í nóvember og desember á eftir að koma inn. Hvað þýðir það? Það er sagt að þetta snúist um að hjálpa til við orkuskipti, það er markmiðið, en það er ljóst að þessi aðgerð hefur valdið öfugum orkuskiptum, valdið því að það eru að koma fleiri bensín- og dísilbílar inn á markaðinn en áður. Þetta var allt saman fyrirséð. Allir sáu þetta nema ríkisstjórnin. En nú myndi maður ætla, virðulegi forseti, að þegar við sjáum þetta þá myndi ríkisstjórnin hlaupa til og verða við beiðni stjórnarandstöðunnar og endurreikna forsendurnar vegna þess að augljóslega gengur þetta ekki upp. En nei, þau ætla bara að stinga höfðinu í sandinn, þau ætla ekki að endurreikna forsendurnar. Það sér það hver maður að þau eru ekki að ná 7,5 milljarða hækkun á vörugjöldum á næsta ári vegna þess að fólk er að kaupa bílana núna fyrir lok þessa árs og mun þar af leiðandi ekki kaupa bílana á næsta ári. Og ef það kaupir ekki bílana á næsta ári þá innheimtast ekki vörugjöld og reyndar ekki virðisaukaskattur heldur. Ríkisstjórnin segir: Nei, nei við ætlum ekkert að endurmeta þetta. Af hverju skyldi það vera? Það er vegna þess að ríkisstjórnin er í svolitlum leik. Hún byrjaði á því að brjóta lög um opinber fjármál og setti vinnulagið í kringum fjárlagagerðina og fjárlagavinnuna áratugi aftur í tímann. Það var auðvitað mjög ámælisvert og maður hugsaði: Af hverju var það gert? Það var gert vegna þess að þau vildu ekki sýna á spilin, að þau eru að stórauka útgjöld, þau ætla svo sannarlega ekki að greiða niður skuldir og hækka skatta. Þau treystu sér ekki í það en til að láta þetta allt saman líta vel út, þannig að spunameistararnir hefðu eitthvað til að vinna með, sögðu þau: Við erum hér komin með stöðugleikareglu sem reyndar er ekki stöðugleikaregla heldur útgjaldaregla, veik útgjaldaregla vegna þess að það er svo margt sem er undanskilið í því. Það eru alveg fyrirmyndir og í grunninn er gott að setja útgjaldareglu en hún verður þá að virka. En þessi stöðugleikaregla er í rauninni — við getum bara kallað hana stöðuga skattareglu eins og hér hefur verið nefnt. Þess vegna hafa þau verið að hækka skatta til þess að geta sagt að við séum ekki að brjóta þessa veiku útgjaldareglu. Við erum að halda okkur innan 2% af aukningu á ríkisútgjöldum sem auðvitað stenst ekki þegar þú tekur allt saman. En það liggur alveg fyrir að þrátt fyrir að þau hafi þráfaldlega sagt að þau yrðu aldrei alveg í toppnum á þessu, ef eitthvað kæmi upp á þá myndu þau reyna að halda sér þar inni, þá eru þau algjörlega í toppnum þrátt fyrir að útgjaldareglan sé veik. Það er algerlega á hnífsoddi hvorum megin hryggjar þetta liggur. Ef við reiknum upp vörugjöldin, virðulegi forseti, ef við reiknum það upp að fólk er að kaupa bíla núna og mun þar af leiðandi ekki kaupa bíla á næsta ári, þá er þessi svokallaða stöðugleikaregla fallin. Það er ástæðan. Þannig að viljandi, meðvitað, er þessi ríkisstjórn að setja tekjur niður á blað sem þau vita að þau munu ekki fá, til að geta sagt: Sjáið, hvað við erum dugleg, ofsalega dugleg, við erum innan stöðugleikareglu.
Síðan eiga veiðigjöldin líka eftir að koma. Það verður áhugavert að sjá hvort þær forsendur gangi eftir og ýmislegt fleira mætti nefna. Það er hins vegar ekkert ólíklegt, ef þau ætla sér að fara þá leið að klára frumvarp um hækkun á erfðafjárskatti, sem þau eru búin að boða og er komið í þinglega meðferð, að tekjur af þeim skatti verði mun hærri. Og því er svona lætt í gegn. Kannski ætla þau að ná þessum 7 milljörðum þar. Kannski er það þannig, virðulegi forseti. Það er alla jafna þannig að við erum fæst alla daga að skoða þessi mál. En erfðafjárskatturinn virkar þannig að þú verður að borga skattinn frá þeim degi sem viðkomandi fellur frá og það breytir engu þó að eitthvað breytist í framtíðinni. Ýktasta dæmið, það fór fyrir dómstóla og viðkomandi einstaklingur sem fékk arfinn tapaði en lét á það reyna, var einhver sem erfði fyrir efnahagshrunið mikið af hlutabréfum í bönkum og fjármálafyrirtækjum sem á þeim degi sem viðkomandi féll frá var hátt metið. Ég veit ekki hvaða upphæðir það voru. Gefum okkur að það hafi verið milljarður, það var alveg fólk sem átti svoleiðis. Viðkomandi einstaklingur mátti borga 100 millj. kr. í skattinn þrátt fyrir að þetta, sem var á milljarði þegar viðkomandi aðili féll frá, hafi verið orðið algerlega verðlaust og ekkert hafi fengist fyrir það, ekkert. Það er meginreglan í þessum skatti sem er óréttlátur. Við erum búin að sjá þessar æfingar sem ríkisstjórnin er með í ýmsum málum og mér sýnist að þarna séu menn hugsanlega að reyna að ná til baka þeim tekjum sem ekki munu innheimtast af vörugjöldunum í gegnum hækkun á erfðafjárskattinum. Gefum okkur að ríkisstjórnin segi satt og að ekki sé gert ráð fyrir þessum 2,1 milljarði, hækkuninni sem var frá september fram í nóvember, í áætluninni, af því að í sjálfu sér hafa hagvöxtur og verðbólga ekki mikil áhrif á erfðafjárskatt, það eru aðrar forsendur — gefum okkur að þau séu bara að segja satt og rétt frá því að þeim hafi yfirsést eitthvað þegar þau voru að endurmeta þetta — þá sést hvergi hvar hækkunin, þessar auknu tekjur af hækkun á erfðafjárskatti, kemur fram; þau hafa hvergi sýnt það, ekki 1 kr. Það vita þetta allir, allir umsagnaraðilar og meira að segja ráðherrann sjálfur, þó hann hafi ekki sagt það beinum orðum. Bara með því að biðja fólk um að skoða bændurna og kynslóðaskiptin er hann að viðurkenna hið augljósa, þ.e. að þetta er gríðarleg hækkun. En þetta kemur hvergi fram. Ég velti því fyrir mér, virðulegi forseti: Er þetta einn af spunum ríkisstjórnarinnar með fjárlögin, að ætla að ná því sem þau munu ekki ná í vörugjöldum? Þau vita að þau ná þessu ekki í vörugjöldunum og það vita allir að þessi 7,5 milljarða hækkun á vörugjöldum mun ekki nást á næsta ári. Það er útilokað. Ætla menn að ná þessum 7 milljörðum í gegnum hækkun á erfðafjárskatti? Er það það sem vakir fyrir ríkisstjórninni? Ég veit það ekki. Þess vegna tel ég að við þurfum að ræða þetta og það væri ekki verra að sjá einn stjórnarliða hér í salnum, fyrir utan virðulegan forseta sem stendur sig vel eins og ávallt. En það er ekki einn einasti stjórnarliði hér að ræða fjárlög í 2. umræðu, sem þarfnast umræðu vegna þess að hér er mörgum spurningum ósvarað. Það er líka mjög mikilvægt að allur almenningur og það fólk sem kaus þetta fólk sé meðvitað um að stjórnarflokkarnir hafa svikið öll þau kosningaloforð sem þau voru kosin út á. Það er bara staðreynd. Þau eru búin að hækka skatta, bæði á venjulegt fólk og fyrirtæki, þvert á gefin loforð. Þau eru búin að auka ríkisútgjöld með slíkum hætti á fyrsta árinu að það er með ólíkindum. Þau ætla ekki að greiða niður skuldir og þrátt fyrir að þau séu í kjörstöðu til að ná endum saman í ríkisfjármálunum ákveða þau að auka hallann eftir því sem þau vinna meira í þessum fjárlögum.
Virðulegi forseti. Ég mun gera hvað ég get, það er ekkert leyndarmál, til að vekja athygli á þessum staðreyndum og ég mun gera hvað ég get til að fá svör við þeim spurningum sem hér hafa komið fram. Ég tók nú alls ekki öll málin fyrir og bið virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá. Þessi umræða er ekki tæmd. Það væri ekki verra ef virðulegur forseti gæti hlutast til um að fá þótt það væri ekki nema einn úr meiri hluta hv. fjárlaganefndar til að taka þátt í þessari umræðu því að það er enginn bragur á því og fyrir neðan allar hellur að stjórnarliðar þori ekki að taka þessa umræðu.