157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:51]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór yfir marga hluti í sinni ræðu og nefndi m.a., sem er rétt, að hæstv. ráðherra hafi augljóslega haft áhyggjur af að þarna væru á ferðinni afglöp er varða erfðafjárskattinn og benti á að sérstaklega þyrfti að skoða bændur í því sambandi. Spurning mín varðar reyndar ekki það heldur eingöngu að koma á framfæri, svo að það liggi bara fyrir hér, að þetta sagði hæstv. ráðherra eftir að hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hafði lokið ræðu sinni þar sem hún tók hluta ræðu sinnar í að tæta nákvæmlega þennan hlut í sig. Ég held að það hafi þá runnið upp fyrir ráðherra að þarna var hann ekki með gott mál í höndunum. Ég held að það sé mikilvægt að við höldum þessu til haga.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, af því að hann tjáði sig eðlilega dálítið um þátt stöðugleikareglunnar: Hvert er hans mat á þeim vangaveltum mínum að stöðugleikareglan eigi talsverðan þátt í þeim skattahækkunum sem við erum að horfa á, jafnvel þó að orðfærið hafi verið þannig, þegar hún var kynnt til leiks í stað gömlu útgjaldareglunnar, að þar sé verið að búa til eitthvert þak sem ekki verði farið upp í nema bara í neyð? Tilfinning mín var sú á sínum tíma að þetta væri ekki alveg rétt. Ég get farið betur yfir það í seinna andsvari en mig langar að vita hvert mat hv. þingmanns er á því hver hlutur stöðugleikareglunnar er í þeirri þróun sem við erum að sjá í skattahækkunum ríkisstjórnarinnar.