157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar fyrirspurnir. Fyrst aðeins út af erfðafjárskattinum. Það er gott og mikilvægt að halda því til haga, af því að ég var ekki viðstaddur, að hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hafi fengið hæstv. ráðherra til að koma með þessa yfirlýsingu. Ég er hins vegar ósammála hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni, þó að við séum oft sammála, um að þá hafi hæstv. ráðherra áttað sig á að hann væri ekki með gott mál í höndunum. Það er útilokað að það hafi gerst þar. Gefum okkur að það hafi verið þannig því að allir eru mannlegir, allir gera mistök og það er margt á borðinu. Gefum okkur að þegar hæstv. ráðherra var að flytja málið hafi hann allt í einu áttað sig á því að mál sem hann hélt að væri hlutlaust og ætti ekki að skila neinum peningum — ég get bara ekki séð hvernig í ósköpunum það ætti að gerast því að þetta er skattahækkun — væri það ekki. Ef svo hefði verið þá hefði hæstv. ráðherra dregið málið til baka. Ef hann hefur ekki áttað sig á þessu og einhvern veginn verið blekktur af embættismönnum til að flytja málið, en hafi ekki áttað sig á því hve gríðarlega mikil skattahækkun er þarna á ferðinni, þá væri hann búinn að draga það til baka. Ríkisstjórnin er ekki búin að draga þetta mál til baka.

Stöðugleikareglan er náttúrlega bara eitthvað sem menn ákveða af góðum hug að hafa. Ég held að þau væru samt sem áður að hækka skatta þó að þau hefðu ekki farið í þennan leik með hana; að þau væru bara hér með hallann upp á, alla vega sem tölu á blaði, 35 milljarða í staðinn fyrir 25. Ég held að þau séu ekkert að hækka skatta út af stöðugleikareglunni. Ég held bara að þau hækki skatta af því að þau vilja hækka skatta, af því að þau vilja hafa svo gríðarlega mikil útgjöld. Spunaleikritið í kringum stöðugleikaregluna er samt svolítið snúið hjá þeim og verður ekki einfaldara.