fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það má alveg færa rök fyrir því að þetta ýti undir freistnina til að hækka skatta en ég held að hún sé alveg nægilega mikil nú þegar. Það sem mér finnst hins vegar leiðinlegast í þessu og alvarlegast — við vitum að vinstri stjórnin hækkar skatta og eykur útgjöld og þessi stjórn er farin úr öllum fötunum og situr á vinstri brókinni, það þarf ekkert að koma mikið á óvart, þetta er öllum ljóst núna. Málið er það að lög um opinber fjármál voru tíu ár í undirbúningi, þvert á flokka. Þau samþykktu allir þingmenn og allir lögðu sitt af mörkum til að reyna að búa til umgjörð sem myndi vanda fjárlagagerðina, algjör pólitísk samstaða var um það í öllum flokkum. Svo kemur þessi ríkisstjórn og byrjar á því að brjóta lögin og byrjar líka á því að breyta reglunum; hún tekur skuldaregluna eiginlega bara úr sambandi og kemur svo með þessa stöðugleikareglu sem einhver spunameistari hefur sagt að hljómi mjög vel. Látum veika útgjaldareglu heita stöðugleikaregla og segjum: Við erum alltaf undir henni og það sé svo gott. Í stað þess að reyna að vinna þetta almennilega og setja alvöruútgjaldareglu og ná þokkalegri samstöðu um hana — þannig að við myndum ná samstöðu um það þvert á flokka eins og gert var þegar við sögðumst ætla að bæta lög um opinber fjármál — þá bara keyrðu þau þetta í gegn í einhverju frasaflóði og eru enn í þessu frasaflóði með engu innihaldi. En ég kann ekki að segja frá því hvort vinstri menn hækki skatta meira eða minna með stöðugleikareglu eða ekki, ég held að ekkert stoppi þau í því. Við skulum heldur ekki gleyma því að hallinn sem þau eru með, það verða líka skattar framtíðarinnar.