157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:01]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég kem hér aftur upp til þess að ræða fjárlög, fyrstu heilu fjárlög skattaríkisstjórnar Samfylkingar og Viðreisnar. Ég vil byrja á að segja að við erum hér með sterkan ríkissjóð eftir að hafa verið byggður upp mjög markvisst síðastliðinn áratug, stoðirnar styrktar. Samt leggja þau fram fjárlög án þess að leggja til að fara betur með fjármagn skattgreiðenda. Landsmaður góður: Án þess að fara betur með peningana þína þá leggja þau fram fjárlög sem krefjast þess að það sé farið dýpra í vasa þína, farið dýpra í vasann með skattahækkun upp á 30 milljarða, 30.000 milljónir. Skattahækkanir sem leggjast beint á fjölskyldurnar í landinu, beint á landsbyggðina, beint á fyrirtækin í landinu akkúrat þegar þrengir að. Það hefur ekki enn þá sést hér ein hagræðingartillaga í þessum fjárlögum eða frá þessari ríkisstjórn. Þau hafa talað um að þetta sé sett inn í ráðuneytið, þetta sé öðruvísi útfært og fjármálaáætlunin byggi á 100 milljarða hagræðingartillögum frá almenningi en þær eru hvergi nefndar. Ég hef heyrt eina nefnda í fréttatilkynningu eða eitthvað slíkt frá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um að stytta atvinnuleysisbótatímabilið. En það frumvarp hefur ekki komið fram eða litið dagsins ljós enn þá. Ég veit ekki hvað tefur hjá hinni samhentu verkstjórn.

Þetta er staðan í því máli sem við erum að ræða hér í dag. Við erum með sterkan ríkissjóð sem stendur á sterkum grunni en það eru áskoranir í íslensku efnahagslífi í dag. Það eru áskoranir í íslensku efnahagslífi á sama tíma og það hefur gengið erfiðlega í þessari ríkisstjórn að lækka verðbólguna, lækka vextina. Þá koma þau með fjárlög þar sem útgjöldin eru aukin gríðarlega og ekki er gerð tilraun til að fara betur með fjármuni skattgreiðenda heldur er hagrætt á tekjuhliðinni með því að auka skatta. Svona er þetta, farið dýpra í vasa landsmanna og það að vera ekki ábyrgari í meðförum á peningum landsmanna er stóra málið sem er í gangi hér.

Ég ætla að fara örstutt aftur yfir þessa helstu skatta sem er verið að hækka á fólkið og fyrirtækin í landinu. Þeir sem hafa sýnt fyrirhyggju og séð lánin sín lækka undanfarinn áratug geta ekki lengur greitt séreignarsparnað skattfrjálst inn á íbúðalánið. Það á að afnema það. Fólk getur ekki hagrætt fjárfestingunni sinni þegar það er að fjárfesta í þaki yfir höfuðið. Séreignarsparnaðurinn fer hjá þeim sem eru búnir að vera með hann í áratug. Samsköttun hjóna, sem er gríðarlega mikilvæg skattaleg aðgerð til þess að heimilishald hjóna gangi upp, sérstaklega þegar eru sérstakar aðstæður — það gætu verið barneignir, veikindi, nám, tegund vinnu, vinnufyrirkomulag og áfram mætti telja — nei, fjölskyldan skal bera ábyrgð á sköttum hvers annars en má ekki hagræða nýtingu skatta hvers annars eftir því sem hentar fjölskyldunni best. Samskömmtunarríkisstjórnin vill ekki að það megi. Hún skal skammta ráðstöfunartekjur, hún skal skammta frelsið.

Sama fjölskylda þarf að fara að borga nokkur hundruð þúsund krónum, ef ekki milljónum, meira fyrir hinn venjulega heimilisbíl í vörugjöldum. Það er bara þannig. Hún þarf líka að vera alltaf reglulega í baráttu við Skattinn að skrá kílómetragjaldið og borga bakreikningana, uppfæra þetta, svo eru seðilgjöldin. Það þarf að vísu að bæta við hér, það er breytingartillaga meiri hluta fjárlaganefndar til þess að láta báknið fá 100 milljónir í viðbót við það sem áætlað var að þetta myndi kosta til að geta framkvæmt kílómetragjaldið, fyrir utan þá milljarða sem þetta mun kosta íslenskt atvinnulíf. Nei, við þurfum að eyða meiru, má ekki hagræða.

Svo er það erfðafjárskatturinn, við skulum gera hann ógagnsæjan, hækka hann svolítið með því að fá eitthvert óljóst mat, alveg óljóst hvað það er sem á að meta. Það stendur að það eigi að meta land. Það er bara ekki til skilgreining á því hvað orðið land þýðir en hins vegar er til skilgreining á því hvernig mismunandi fasteignir eru metnar og hvernig þær eru skráðar.

Leiguskatturinn, við skulum hækka hann um 50%, já, já. Fjölskyldan er með aukaíbúð innan hússins eða eitthvað, það má ekki. Öryrkjabandalagið hefur nú látið í sér heyra út af þessu. Það er erfitt á fasteignamarkaði og ekki er talað um stimpilgjöldin. Ég hef ítrekað lagt til að taka stimpilgjöldin af fasteignakaupum til íbúðarhúsnæðis. Þá kom nú flokkur hæstv. fjármálaráðherra, Viðreisn, og lagði til að öll stimpilgjöld færu, hvert eitt og einasta, þannig að ég var að vonast til þess að sjá þá tillögu hér en hún er ekki.

Svo er ekki nóg með að fjölskyldan þurfi að borga tugþúsundir króna til Ríkisútvarpsins í áskriftargjöld eða nefskatt, hún á að fara að borga streymisveituskatt líka.

Hérna hef ég nú bara aðeins farið yfir þetta. Þetta er fyrir utan allar krónutöluhækkanir og allt það. Ég vil benda á það að í áliti 3. minni hluta kemur Sjálfstæðisflokkurinn með skýrar tillögur um hvernig betur er hægt að fara með fjármagn ríkisins, hvernig er hægt að hagræða og draga úr útgjöldum, hvernig er hægt að losa um eignir til að draga úr vaxtakostnaði ríkisins og hvernig við myndum vilja forgangsraða þeim peningum; í minni útgjöld fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu, auka viðnámsþrótt íslensks efnahagslífs á sama tíma og þar eru áskoranir. Þessar tillögur eru allar byggðar á þeim árangri og þeirri reynslu sem við höfum haft síðasta rúma áratuginn sem við vorum í fjármálaráðuneytinu og sýndum þar gríðarlegan árangur sem sést á öllum hagtölum í dag.

Mig langar aðeins, af því að tíminn fer svo hratt, að minnast á það sem var rætt hér áðan, að allt mat á bak við þessa skatta er svolítið skrýtið. Það er fullt af sköttum þarna sem munu draga úr tekjum ríkisins en er áætlað að hafi — ég ætla að koma með eitt stutt dæmi. Nú hefur loksins verið birt nefndarálit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar og það er svolítið athugavert, virðulegi forseti, hvernig við höfum verið komin vel inn í þessa umræðu um fjárlögin án þess að efnahags- og viðskiptanefnd væri búin að birta sitt nefndarálit en allar tekjurnar grundvallast á þeirri vinnu. Það er svolítið sérkennilegt. En þar er lögð til ein góð breyting um að lækka álögur, lækka innviðagjald á skemmtiferðaskip vegna þess að það kom í ljós að þar var farið of bratt og þá tapaði ríkissjóður tekjum. Það hafði áhrif á atvinnulífið. Það eru nákvæmlega sömu áhrif, sem þessi ríkisstjórn er að bregðast við núna í svokölluðum bandormi með því að lækka álögurnar, nákvæmlega sömu neikvæðu áhrif af öllum hinum sköttunum sem ég fjallaði um áðan. Það er alltaf talað í hringi hérna.

Það er eins með vörugjöldin. Það er talað hér í fjárlögunum um að þau eigi að vera tekjuöflun til að borga vegakerfið. En svo er talað í útfærslunni um að það sé verið að gefa frá sér tekjur til að hvetja fólk til að kaupa rafmagnsbíla og borga engin vörugjöld. Þarna fer bara ekki saman hljóð og mynd. Og talandi um þessa skatta og gjöld sem eiga að leggjast á bílaleigur, 11–12 milljarðar — nei, ekki á bílaleigur, aðeins að hluta til, heldur á notkun ökutækja, fjölskyldubílinn þar á meðal og á atvinnulífið þannig að þeir sem nota bifreiðar eru að fara að borga 12 milljörðum meira inn í ríkissjóð. Það fer ekki ein króna af því til samgöngumála, ekki ein. Og svo kemur hæstv. ríkisstjórn ítrekað, virðulegur forseti, afsakið orðbragðið, með lygi, lýgur að þjóðinni. Þetta er stór ásökun. En þetta er bara þannig. Þau segjast vera að hækka öll þessi gjöld til að borga innviðina. Svo koma þau hér og kynna samgönguáætlun í gær. Ræsum vélarnar. Í fyrsta sinn er fullfjármögnuð samgönguáætlun lögð fram. Það er bara ekkert fjármagnað. Þau segjast vera komin með samkomulag um að ætla að stofna innviðafélag. Það er ekki einu sinni komið fram frumvarp um innviðafélag, þau eru ekki einu sinni búin að ákveða hvaða eigið fé fer inn í það. Þau eru ekki einu sinni búin að leggja fram fjármálaáætlun og það er ekki minnst á það í þessum fjárlögum hvaða eigið fé eigi að fara í þetta og hvaða eignir eigi að fara þarna inn. Það er hvergi heimild. Samt fullyrða þau bara að þetta sé fjármagnað. Það sést bara ekkert í þetta innviðafélag, hvergi. Það er bara ekkert fjármagnað.

Svo segjast þau vera að fara í þessar og þessar framkvæmdir. Einu framkvæmdirnar sem eru í gangi og verða áfram í gangi eru framkvæmdir sem fyrri ríkisstjórn setti af stað. Hér fyrir ekki löngu var lögð fram fjögurra ára framkvæmdaáætlun, í samgönguáætlun, og ef hún hefði verið lögð fram sem sérplagg, þótt hún hefði verið til fimm ára, hefði það verið autt blað. Nánast allar framkvæmdirnar sem ríkisstjórnin var að berja sér á brjóst með í gær voru framkvæmdir sem fyrri ríkisstjórn hóf eða eitthvað sem byrjar 2031, á seinna tímabili, tímabili 2 í samgönguáætlun, þegar þessi ríkisstjórn verður vonandi þá löngu farin frá völdum. Þvílíka lygin, ég hef bara aldrei séð annað eins, ég bara trúði ekki mínum eigin augum þegar ég horfði á þetta. Segja svo að þetta sé fullfjármagnað. Það eru bara engin merki um það, engin, af því að allar framkvæmdir sem þau töluðu um ná ekki einu sinni inn í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar. Ég sé bara hvergi fjármagn í þetta, hvergi.

Í lokin langar mig aðeins að nefna nokkur mál sem ég á eftir, ég sé til hvað ég kemst langt í þessari ræðu. En ég talaði áðan um leiðir til þess að fara betur með fjármagn. Ég sé það í nefndaráliti meiri hlutans að þeim er umhugað um að vera ekki með einstaka styrki í fjárlaganefnd. Ég tek heils hugar undir þær ábendingar og hef alltaf gert. Það var tilgangurinn með lögum um opinber fjármál, að færa þetta frá, en einhvern veginn hlustar Stjórnarráðið því miður ekki, hvort sem það eru starfsmennirnir eða ráðherrarnir eða bæði, á Alþingi. Það er eins og þeir séu að nýta sér það að við hér, löggjafarvaldið og fjárlaganefnd, förum í mjúku málin eins og fíknivandamál og fleiri og látum þau fá fjármagn, þriðja geirann, við skulum bara segja þriðja geirann, við skulum ekki taka neitt annað. Þriðji geirinn muni alltaf fá peningana í gegnum fjárlaganefnd, Stjórnarráðið þurfi ekki að nota sína peninga. Ég sé að þetta er að trufla og þau í meiri hlutanum vilja setja fjármagnið meira til landshlutasamtakanna. Sumt getur alveg átt heima þar en ekki allt. Við höfum rætt þetta mikið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hvort löggjafinn ráði eða framkvæmdarvaldið. Það er alveg augljóst að löggjafinn sendir hér skýr skilaboð, hann er löggjafinn, við í þessum sal, og með fjárveitingavaldið, og framkvæmdarvaldið á að framkvæma það sem við ákveðum. Það er alveg ótrúlegt, sama hvað við segjum hér í þingsályktunartillögum og fjárlögum, að þá kemur þetta alltaf aftur. Ég vil taka dæmi: Við erum að styrkja t.d. ár eftir ár mikilvæg verkefni eins og SÁÁ, Hlaðgerðarkot, Hugarafl og fleiri slík góð og nauðsynleg verkefni, með þeim skýru skilaboðum að fagráðuneytin eigi að finna þessu farveg, gera samninga við þessa aðila og ráðstafa fjármunum í þessa þjónustu, tryggja í það minnsta að þessi þjónusta sé til staðar. Það er ekkert ákjósanlegt að við séum að útdeila peningum til einstakra félagasamtaka hér, bara alls ekki. Góð lausn á þessu væri sú að fagráðuneytin myndu bjóða út þá þjónustu sem þessi þriðji geiri er að veita. Þá gæti þriðji geirinn bara boðið í það og gert þjónustusamning. Ráðuneytið gerir í útboðinu þær kröfur sem eiga að vera. En ég vil leggja áherslu á að það verður að tryggja samt að þjónustan sé fjölbreytt. Það getur ekki allt verið gagnreynd þjónusta. Það verða að vera til opin úrræði. Það verða til fyrsta stigs, annars stigs og þriðja stigs úrræði. Ef framkvæmdarvaldið myndi bara að bjóða þetta út og gera þessa samninga þá sætum við ekki uppi með þetta eins og þetta er. Aðalatriðið er að þjónustan sé til staðar. Það eru kröfurnar sem við gerum hér, ekki hver veitir hana, hvort það sé hið opinbera eða þriðji geirinn eða einhver einkaaðili, bara að það sé fjölbreytt þjónusta sem mætir þörfunum og það sé gert á sem faglegastan og hagkvæmastan hátt. Svo skammast þau í okkur hér í þinginu þarna uppi í Stjórnarráði en gera ekkert í að leysa málin. Hérna eru lausnirnar til.

Hvernig hefði það verið ef við hefðum gert þetta sama t.d. með liðskiptaaðgerðirnar? Við töluðum ítrekað um það hér að við vildum að liðskiptaaðgerðum yrði sinnt og settum peninga í það. Ef við hefðum bara látið Klíníkina fá peninginn beint þá hefði það ekki verið rétt leið. En það er það sem við erum að gera í þessum þriðja geira af því að fagráðuneytin bjóða ekki út þjónustuna og tryggja ekki að hún sé til staðar. Það þýðir ekkert að rífast bara og gera svo ekkert í málunum. Ég kom aðeins inn á það í fyrri ræðu minni líka að það er fullt af stöðum þar sem er hægt að taka út sóun.

En ég vil nota síðustu mínútuna til að koma aðeins inn á Grindavík. Í þessu máli eru veittir fjármunir þangað til að takast á við mál slökkviliðsins og sprunguviðgerðir, sem er vel og ég fagna. Ég vil benda á að ef það yrði leyst úr ákveðnum málum varðandi Grindavík þá færi Grindavík að hætta að þurfa að fá einhvern fjárstuðning og færi að skila töluverðum tekjum í ríkissjóð út af verðmætasköpun, eins og sveitarfélagið hefur alltaf gert. Grindavík hefur alltaf skilað gríðarlegum verðmætum í ríkissjóð í gegnum þá miklu verðmætasköpun sem þar er. Náttúruhamfaratrygging Íslands, þar þarf að vera öruggt að við eigendaskipti eða nýbyggingar sé hægt að tryggja. Þórkatla, þar þarf að tryggja að fólk geti og hafi tök á því að komast í húsin sem fyrst. Og það þarf að fara að borga fasteignagjöld í Grindavík, tryggja þær lögbundnu tekjur. Þá þarf ríkissjóður ekki að hafa miklu meiri áhyggjur af því svæði í nánustu framtíð. Það fer að skaffa ríkissjóði.