fjárlög 2026.
Frú forseti. Það er nú örlítið kómískt að hlýða á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma hér upp eins og hreinir sveinar og tala eins og þeir hafi bara skilað öllu hér í góðu lagi og við séum að taka við virkilega góðu búi. Svo er auðvitað alls ekki. Það var tugmilljarða halli sem þeir skiluðu af sér. Það er óumdeilt og það er mjög sérstakt þegar hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma hér og tala um báknið. Hverjir reistu það bákn aðrir en hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins og eiga allan heiðurinn af því? Það sem við erum að gera hér í ríkisstjórninni er að skoða þennan rekstur upp á nýtt og leita leiða til hagræðingar. Ef við förum yfir hagræðingartillögur Sjálfstæðisflokksins, hverjar eru þær? Jú, efst á blaði er að selja Landsbankann. Hvernig fór síðast þegar hv. þingmenn stóðu fyrir sölu á ríkiseignum? Eigum við að rifja upp Borgun eða eigum við að rifja upp þegar Landsbankinn var seldur síðast? Hvernig fór það? Jú, það endaði illa. Það endaði með því að fólkið í landinu missti þakið yfir höfði sér. Heimilin fóru mjög illa og það er ástæðan fyrir því að við erum hér með allt of stóran hluta af fólki á leigumarkaði. Við í ríkisstjórninni erum að vinda ofan af verkum og óstjórn Sjálfstæðisflokksins. Sú er staðan og það er alveg stórundarlegt að menn komi hér og tali digurbarkalega um hagræðingaraðgerðir þegar þeir eru sjálfir búnir að búa til þetta bákn sem þeir vilja síðan ekkert kannast við nokkrum mánuðum, um 11 mánuðum, eftir að þeir yfirgáfu ráðherrastóla. Þá koma þeir hér eins og hreinir sveinar og hreinar meyjar í ræðustól og tala um hagræðingu, skattalækkanir. Þetta er óboðlegt.