157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:24]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér það tækifæri að ræða þau mikilvægu mál sem hann kemur inn á. Eftir röð stórra og mikilla áfalla, kórónuveirufaraldur, jarðhræringar, tvenn stríð og annað slíkt, þá fékk þessi ríkisstjórn 80 milljörðum betri stöðu ríkissjóðs en áætlanir höfðu gert ráð fyrir, 80 milljörðum betri stöðu. Það var ótrúlega sterk staða miðað við þau stóru áföll sem fyrri ríkisstjórn brást við, t.d. með 400 milljarða kr. innspýtingu. Núna eru áföll og samt aukast útgjöld ríkissjóðs án þess að verið sé að bregðast við áföllunum í efnahagskerfinu. Þessi ríkisstjórn er ekkert að bregðast við, ekki neitt, en við brugðumst við og skiluðum samt 80 milljarða betri afkomu til þessarar ríkisstjórnar.

Talandi um báknið þá skal ég alveg ræða það, báknið nefnilega stækkaði ekkert í ráðuneytum Sjálfstæðisflokksins. Við bjuggum til Stafrænt Ísland. Við fækkuðum stofnunum töluvert, við sameinuðum held ég einu sinni allar stofnanir í fjármálaráðuneytinu og líka í umhverfis- og orkumálaráðuneytinu. Við breyttum rekstrarformi heilsugæslunnar og lengi væri hægt að telja. En opinberum starfsmönnum fjölgaði vissulega í stærra velferðarkerfi hjá sveitarfélögunum og t.d. eru einkareknu læknarnir taldir með opinberu starfsmönnunum. Þó að við getum alveg viðurkennt að við höfum örugglega gert einhver mistök og hefðum getað gert betur, það var fullt af verkefnum sem við náðum ekki að klára, erum við alveg til í að halda áfram að vinna að þeim verkefnum hvenær sem er.