fjárlög 2026.
Frú forseti. Jú, vissulega hefði Sjálfstæðisflokkurinn og hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar átt að gera betur. Ég vil bara spyrja hv. þingmann: Hver hefur borið ábyrgð á málefnum útlendinga á umliðnum árum? Var það einhver annar en Sjálfstæðisflokkurinn? Erum við ekki hér í ríkisstjórninni að takast á við þau mál, m.a. 18 mánaða regluna og það að ekki hefur verið hægt að vísa brotamönnum, sem hafa framið alvarleg afbrot, úr landi; að reglurnar séu svipaðar hér og á Norðurlöndunum? Jú, við erum að gera það. Mér finnst þessi málflutningur hjá hv. þingmanni frekar billegur. Við erum hér að taka við fjárlagagati upp á 62 milljarða þannig að ég myndi gjarnan vilja að þessi umræða um fjárlög væri uppbyggileg. Þetta er svolítið billegt að koma hér nánast eins og nýhreinsaður hundur og kannast ekki við hlutina. Við erum hér virkilega að reyna að takast á við ríkisfjármálin ásamt því að byggja upp innviði og ég vona svo sannarlega að við fáum í kjölfarið uppbyggilegar tillögur aðrar en þær sem koma hér nánast næstefst á blaði, fyrir utan að selja Landsbankann, þ.e. að leggja niður ÁTVR. Þetta er svo billegt, eitthvað brennivín í búðir. Vissulega er ég ekki mótfallinn því en þetta mál og hvernig framsetningin er, þetta er ekki ábyggilegt. Það væri mjög gott að fá þarfar ábendingar þannig að við getum átt jákvætt samtal um ríkisfjármálin. Þetta eru fjármálin okkar og hvernig við getum byggt upp þetta samfélag. Þá segi ég fyrir hönd okkar í Flokki fólksins: Ég þakka fyrir góðar ábendingar og uppbyggilegt samtal en ekki þennan göslagang þar sem menn kannast ekkert við verk sín á umliðnum árum.