157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:28]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það kom einmitt fram í ræðu minni og í nefndarálitinu að ég vil kannast við verkin, þann árangur sem okkur hefur tekist að ná í að hagræða, borga niður skuldir þannig að ekki þyrfti að hækka álögur á fólk og fyrirtæki; það hefur verið dregið úr þeim álögum, við drógum úr þeim um 300 milljarða. Svo er hv. þingmaður eitthvað að kveinka sér yfir 62 milljarða halla eftir að við höfðum þurft að setja inn 400 milljarða innspýtingu út af einum stærstu áföllum sem urðu hér langan tíma í röð. Hv. þingmaður ætti að skilja að útgjöld hjá hæstv. ríkisstjórn hafa aukist um 143 milljarða. Þetta er gríðarlegur vöxtur. Og fara að væla undan 62 milljörðum, það er hægt að redda þessu fyrir hádegi og það eru fullt af tillögum hér og við höfum reynslu af því og erum búin að sýna fram á það.

Varðandi útlendingamálin þá skal ég alveg kannast við ábyrgðina þar, algerlega. Við skulum bara athuga það að 18 mánaða reglan og aðrar slíkar reglur komu ítrekað frá okkur hér inn í þennan sal þegar það voru átta flokkar á þingi, þar á meðal samstarfsflokkar hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar sem lögðust gegn því. Þessi mál voru öll tilbúin á borði hæstv. dómsmálaráðherra þegar ríkisstjórnin sem hv. þingmaður styður tók við völdum og nú er komið ár og ekkert bólar á þessu. Af hverju er þetta ekki löngu komið? Ekki liggur fyrirstaðan hjá okkur. Hún er bara alls ekki hjá okkur og við skulum hafa það á hreinu að þegar það komu yfir 2.000 manns frá Úkraínu á sama tíma og sami fjöldi kom frá Venesúela, þá var það á okkar vakt sem náðist að snúa því við og auka brottför um 70% og draga úr komum um 70%. Við kláruðum hér tvenn útlendingalög og lögreglulög til að takast á við skipulagða brotastarfsemi. Við erum fullfær til þess að takast á við það og treystum okkur til að vita hvar ábyrgðin er.