157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:31]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér 4. desember fjárlög í 2. umræðu fjárlaga, dálítið seint. Umræðunni seinkaði sennilega um hálfan mánuð frá því sem áætlað var og eins og við þekkjum öll þá er bagalegt að það sé verið að taka ákvarðanir svona seint inn í desember því þegar 2. umræðu er lokið og atkvæðagreiðslu er lokið þá fer málið aftur til nefndar og kemur hingað í 3. umræðu eftir einhverja daga, í stysta lagi viku, kannski hálfan mánuð og þá erum við komin vel inn í desembermánuð og margt af því sem hér er að fara að gerast tekur síðan gildi 1. janúar. Það veldur auðvitað auknu álagi úti í samfélaginu þegar svona er gert og auðvitað ekki til eftirbreytni og eiginlega sérstakt að fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar, sem talaði mikið um hvað hún væri mikil verkstjórn, skipulögð og afkastamikil, komi ekki hraðar til þingsins en raun ber vitni. Þar ofan í kaupið vil ég bæta við að þau mál er tengjast fjárlögunum, tekjuhliðin, bandormar og reyndar bara einstök mál eins og kílómetragjaldið, hafa til skamms tíma ekki verið tekin út úr efnahags- og viðskiptanefnd þrátt fyrir að við séum að ræða fjárlög og þær tölur séu inni í fjárlagafrumvarpinu, sem er auðvitað líka óheppilegt, ég held að það hljóti allir að vera sammála um það. Þótt einhver geti fundið einhver fordæmi í sögunni um að þetta hafi gerst áður þá er þetta ekki gott. Það er auðvitað bagalegt og ekki í anda þessarar ríkisstjórnar, ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem sagðist vera svo mikill verkstjóri og þetta væri svo mikil verkstjórn, að koma svona fram við almenning og fyrirtækin í landinu. Þetta er hluti af stóru myndinni.

Annar hluti af stóru myndinni er að í aðdraganda kosninga sögðu sérstaklega Samfylkingin og Viðreisn að hér yrðu ekki hækkaðir skattar á venjulegt fólk. Ergo: Þá eru þessi fjárlög ekki um venjulegt fólk því að hér er verið að hækka skatta um einhverja 25 milljarða. Ég kem aðeins inn á það á eftir. Þannig að spurningin er: Eru fjárlögin ekki um venjulegt fólk? Er það ekki venjulegt fólk sem þarf að kaupa nýja bíla eða býr við það að tekjur hjóna eru mismunandi og þau hafa nýtt samsköttun hjóna til þess að standa undir útgjöldum heimilisins? Er það ekki venjulegt fólk?

Annar þáttur sem ég vil nefna hérna í innganginum, þáttur sem mér finnst vera mjög bagalegur af hálfu ríkisstjórnarinnar, er einfaldlega að við lifum á viðsjárverðum tímum. Það eru alls konar stríð í heiminum, það er meira að segja tollastríð í heiminum og við höfum séð að ýmislegt hefur gengið á hér í íslensku samfélagi núna síðustu mánuðina og það horfir til verri vegar, því miður, í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar, fyrir utan að það eru auðvitað enn í gangi jarðhræringar á Reykjanesi sem geta auðvitað tekið til alls konar verkefna. Það er auðvitað tekið á því að einhverju leyti í fjárlögunum en það getur alltaf eitthvað komið upp á og sérstaklega þegar það eru viðsjárverðir tímar. Ríkisstjórnin velur að fara mjög óvarfærna leið. Hún dregur varasjóðinn niður í lágmark, 1%, 16–17 milljarðar, og meiri hlutinn lækkar meira að segja varasjóðinn í tillögum við 2. umræðu um 600 milljónir. Á sama tíma var í fjárlögunum búið að strika út alla varasjóði málaflokkanna, sem við gerðum reyndar í ríkisstjórninni í fjárlögunum í fyrra, en það var af ástæðu. Það var búið að kanna það að þeir væru eiginlega allir nokkuð vel fjármagnaðir þar sem ráðuneytin höfðu í mörgum tilfellum ekki verið að nýta þá síðustu ár, höfðu fært á milli. En ef þú gerir það aftur þá eru þeir orðnir tómir. Þá er ekki hægt að grípa til varasjóðanna þegar eitthvað óvænt kemur upp á.

Tökum dæmi. Nú er Vegagerðin með of litla fjármuni í almenningssamgöngur á landsbyggðinni. Við í síðustu ríkisstjórn gerðum samning við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um stuðning upp á, ef ég man rétt, rúmlega 3 milljarða við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni er þessi upphæð sennilega 1,4 milljarðar og hún er of lítil. Vegagerðin er núna, sem ríkisstofnun sem þarf að standast fjárlög, að koma með tillögur um breytingar á því, fækka stoppistöðvum til að mynda í Reykjanesbæ úr átta í tvær, ætlar að skilja eftir hverfi eins og Ásbrú þar sem búa margir námsmenn. Í öllu venjulegu tilliti er Vegagerðin að framkvæma það að reyna að sinna sinni þjónustu innan sinna fjárlaga og í öllu venjulegu tilliti hefði ráðherrann getað farið í varasjóð málaflokksins og fjármagnað þetta og opnað þriðju stoppistöðina, til að mynda í Ásbrú. En því er ekki að heilsa. Það er enginn varasjóður í málaflokknum.

Næsta ár eða á þessu ári kláraðist fjármagnið til Loftbrúarinnar, sem er hluti af almenningssamgöngum á landsbyggðinni, 600 milljónir. Það kláraðist held ég í október. Einhvern veginn tókst ríkisstjórninni að bjarga því fram á þetta ár. Það er hins vegar engin hækkun á næsta ári og ekki á næstu árum, ef ég man rétt, í fjármálaáætlun. Það hefði líka verið hægt að grípa til hins almenna varasjóðs í innviðaráðuneytinu til að gera það eða almenna varasjóðsins í heild sinni en ekki þegar hann er kominn alveg niður í lágmark, þá geturðu ekki gripið til slíkra aðgerða. Þá verða hlutirnir einfaldlega ekki fjármagnaðir eða menn fara í einhverjar flóknari æfingar til þess að færa peninga á milli.

Ég er hér að benda á að ríkisstjórnin tók við búi sem var miklu betra heldur en hún hafði haldið fram í tvö ár, miklu betra. Fjárlög þessa árs sögðu að við stefndum í 62 milljarða halla. Þegar tekjuuppfærsla vorsins var komin inn í umfjöllun í lok fjármálaáætlunar í sumar kom í ljós að fundist hefðu 80 milljarðar í auknar tekjur og það stefndi í 15 milljarða halla á þessu ári. Nú vitum við náttúrlega ekki nákvæmlega í hverju hann endar en í sumar var það 15 milljarða halli. Þegar ríkisstjórnin kom fram með fjárlögin þá lagði hún ekki í að eyða út þessum 15 milljörðum heldur skilaði tillögu að 19 milljarða halla á næsta ári, sem er síðan búið að hækka upp í 27 milljarða, ef ég man rétt, af hálfu meiri hluta fjárlaganefndar. Þannig að það er ekki eins og ríkisstjórnin hafi nýtt þessa miklu betri stöðu sem hún fékk upp í hendurnar til að gera miklu betur. Og af hverju var það ekki? Jú, það var vegna þess að þau ákváðu að hækka útgjöld í fjárlögunum á milli ára um 125 milljarða. Núna er meiri hluti fjárlaganefndar að leggja til 18 milljarða hækkun til viðbótar. Það er 143 milljarða hækkun á milli ára í fjárlögum sem snúast um 1.600 milljarða, tæp 9% hækkun í 4% verðbólgu, 9% hækkun útgjalda. Til þess að vera nú ekki með allt niður um sig þá fara menn og teikna upp alls konar tekjur, ég kem inn á það á eftir, hækka skatta.

Við bentum á þetta í umræðu um fjármálaáætlun í vor. En ég ætla að tala hér í fjórum köflum, ef ég kemst yfir það, frú forseti, um álit 1. minni hluta, Stefáns Vagns Stefánssonar, fulltrúa okkar í Framsókn í fjárlaganefnd. Fyrst hvernig við nálgumst umfjöllun um fjárlögin þetta árið, ég ætla síðan í öðrum kafla að tala aðeins um tekjuhliðina, ég er aðeins búinn að koma inn á hana, svo útgjöldin í þriðja kafla og svo í lokin smá samantekt. Nefndarálit 1. minni hluta er gríðarlega mikið plagg, tæplega 100 síður. Það kemur einfaldlega í kjölfarið á réttmætri gagnrýni okkar og fulltrúa okkar í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar, í vor í umræðu um fjármálaáætlun, en þar bentum við á að ríkisstjórnin væri ekki að umgangast lög um opinber fjármál með réttum hætti, jafnvel brjóta þau. Það skorti markmið og mælikvarða. Ríkisstjórnin sagðist ætla að bjarga þessu með einhverjum mælaborðum uppi í ráðuneytum, en þau komu nú seint og illa. Það er algerlega óboðlegt fyrir þingmenn, fjárlaganefnd og Alþingi að eiga að fara að hlaupa á eftir einhverjum mælaborðum í ólíkum ráðuneytum og stofnunum til að fylgjast með því hvort fjárlög standist þá mælikvarða sem eru til staðar eða ekki. Fyrir utan það að þessi mælaborð eru auðvitað breytanleg af hálfu þeirra sem stjórna þeim, bara frá einum degi til annars. Við höfum séð slíkar breytingar. Þú tekur skjáskot af einum degi og svo er það bara breytt daginn eftir. Hvernig á þingið að geta haft sitt eftirlitshlutverk í hæstu hæðum með framkvæmdarvaldinu þegar undirbúningurinn er þessi? Við bentum á að þetta væri algerlega óásættanlegt.

Síðan koma fjárlög og í nefndaráliti okkar fulltrúa í fjárlaganefnd, 1. minni hluta, bendum við einfaldlega á að þau markmið sem ólík ráðuneyti hafa sett sér eru engan veginn fullnægjandi. Þau eru óljós. Auðvitað eru í mörgum tilfellum fín, málefnaleg og skynsamleg markmið en í mjög mörgum tilfellum eru þau það alls ekki. Þau eru tæknilegs eðlis, það er eins og það sé bara verið að vinna frá degi til dags í staðinn fyrir að hafa einhverja sýn um það hvert á að stefna og einhverja mælikvarða sem hægt er að fylgjast með og sjá hvort þetta gangi eftir, hvort það sé verið að fylgja þeirri stefnu sem ríkisstjórnin segist vera að fylgja. Þetta erum við að leggja áherslu á og við bendum á og komum með dæmi um ný markmið í ólíkum málaflokkum sem segja miklu meira um þá stefnu sem viðkomandi ráðuneyti á að sinna og þær stofnanir sem heyra undir viðkomandi ráðuneyti.

Nú er það ekki svo að við höfum ímyndunarafl til þess að ætla að leggja fram breytingartillögu um að breyta öllum þessum markmiðum. Við erum í raun og veru að leggja þessa vinnu fram til framkvæmdarvaldsins og segja: Hér er dæmi um hvernig hægt er að vinna miklu betur. Við erum eiginlega að leggja það til að framkvæmdarvaldið, fjármálaráðuneytið, taki þessa vinnu til sín núna í aðdraganda vinnu við fjármálaáætlun næsta vors og síðan fjárlög næsta árs og þá muni verða komin miklu skýrari sýn, skýrari markmið, skýrari mælikvarðar, sem gerir það að verkum að Alþingi getur rækt sitt eftirlitshlutverk.

Í nefndarálitinu er smá samantekt í upphafi þar sem við bendum á að það væri eðlilegt að endurmeta ýmsa hluti í fjárlögunum, einfaldlega vegna breyttrar efnahagsþróunar. Í greiningu Seðlabankans og greiningaraðila á markaði hefur t.d. verið bent á það að hagvöxtur á árinu 2025 verði langt undir væntingum og 2026 verði jafnvel líka talsvert erfiðara, það er margt sem bendir til þess. Þess vegna kallar það á endurmat, kannski ekki síst á tekjuhliðinni. Það ætti líka að þýða að menn fari varfærnislegar í útgjöldin. Við bendum á að það sé skortur á varfærni og svona staða eins og uppi er í efnahagslífi okkar í dag kallar á markvissari framkvæmd fjárlaga og að það sé miklu meiri varfærni í framsetningu þeirra. Við höfum líka bent á að það þurfi að endurskoða markmið sem eru undirstaða áætlanagerðarinnar fyrir þessi 35 málefnasvið sem liggja hér undir.

Við komum með breytingartillögur, ekki um að breyta öllum markmiðunum, við leggjum þá vinnu einfaldlega inn til framkvæmdarvaldsins í þessu skjali, en við komum fram með breytingartillögur sem byggja á fimm megináherslum og mynda heildstæða nálgun við endurskoðun fjárlagafrumvarpsins. Við leggjum til að menn fari auðvitað í endurmat á útgjaldaáherslum og sjálfbærni þeirra með varfærni. Við viljum fá markvissari framkvæmd fjárlaga með skýrari markmiðum. Við bendum á að það þurfi á köflum metnaðarfyllri tillögur, til að mynda í heilbrigðismálum, sem er gott dæmi. Ríkisstjórnarflokkarnir, þegar þeir voru í stjórnarandstöðu, gagnrýndu hér látlaust að það skorti verulega á fjármögnun í heilbrigðiskerfinu. Þegar þau eru komin í stjórn þá líta þau svo á að það sé ekki meiri vanfjármögnun en svo að þau taka bara þau fjárlög sem voru í fyrra og halda áfram með þau og bæta litlu við. Það er ekki verið að bæta miklu við á meðan við höfum á síðustu árum svarað þessu kalli. Við höfum áhyggjur af því að þarna sé ekki nóg að gert og erum með um milljarð króna í breytingartillögum. Við bendum á að það þurfi einfaldlega að setja talsvert miklu meiri fjármuni í geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna og leggjum til 400 milljónir. Við leggjum til lækkun á lyfjakostnaði vegna þess að við vissum ekki og fengum ekki upplýsingar frá kerfinu um það hvernig staðan væri, upp á 500 milljónir. Við leggjum líka til eflingu á þjónustu sérgreinalækna upp á 200 milljónir. Við viljum leggja áherslu á menntamál, lestrarfærni og íslensku og þar erum við að leggja til um 486 milljónir sem fari í það til viðbótar við fjárlögin, sem eru einhverjar 200 milljónir umfram það sem meiri hlutinn leggur til.

Við sjáum varnaðarmerki í íslensku samfélagi um að það sé að hægja verulega á og atvinnuleysi að aukast. Þess vegna teljum við mikilvægt að efla nýsköpun og leggjum þar til um 500 milljónir og m.a. að stofnaður verði svokallaður nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar. Ég sé að í tillögum meiri hlutans er lagt til að hækka Rannís og Tæknisjóð um 300 og 700 milljónir, þ.e. milljarð. En staðreyndin er sú að ef við skoðum hvernig úthlutunin er þá fer ótrúlega lítið út á land, bara ótrúlega lítið, miklu minna heldur en sem nemur íbúafjölda eða fjölda fyrirtækja sem þar starfa. Við höfum verið að leggja til að menn geti þá m.a. farið inn í þennan sjóð, áður en kemur að Kríu, sem sagt í upphafi, þarna sé hægt að setja inn ákveðið startfé til að ýta undir sköpun og ný störf fyrir framtíðina. En við höfum líka bent á að það þurfi markaðsátak fyrir útflutningsgreinar okkar. Við tökum eftir því í meirihlutaálitinu að þar er ekki verið að setja mikla fjármuni í þær, hvorki landbúnað, sjávarútveg, iðnað eða ferðaþjónustu, bara alveg ótrúlega litla hluti. Við erum að leggja hér til markaðsátak, að ferðaþjónusta, iðnaður og matvæli fái um milljarð. Síðan leggjum við til neytendamarkaðssetningu fyrir ferðaþjónustuna upp á milljarð. Við erum líka að leggja til hér stuðning við ungt fólk á vinnumarkaði upp á 200 millj. kr. Við vitum að það eru erfiðari tímar fram undan en við höfum lifað núna mörg síðustu ár.

Við leggjum hins vegar líka til ábyrgar sparnaðaraðgerðir. Við leggjum til að aðhaldskrafan verði ekki 1% heldur 2% og finnst það ekki langt gengið, þegar aukning ríkisstjórnarinnar er 9% á milli ára, að vera með 2% aðhaldsaðgerðir sem myndu skila um 2,5–3 milljörðum af þeim 143 sem ríkisstjórnin er að auka á milli ára, með áherslu á einföldun stjórnsýslu og hagræðingu en undanskilja þjónustu við fólk, þ.e. heilbrigðiskerfið, menntun, lögreglu og Landhelgisgæslu. Við leggjum til að fresta framkvæmdum sem ekki eru brýnar, þar á meðal Stjórnarráðshúsið og einhver slík verkefni sem geta algjörlega beðið eitt ár enn og við höfum frestað margoft á síðustu árum. Svo höfum við bent á að þetta er gott plagg fyrir undirbúning fjármálaáætlunar.

Ef ég vind mér aðeins yfir í tekjuhliðina þá er hún með ólíkindum, en kannski ekki fyrst ríkisstjórnin hafði hug á því að fara í 143 milljarða aukningu á milli ára, 9% af 1.600 milljörðum, þá er ekki ósennilegt að það þurfi að hækka tekjuhliðina. Við sjáum að skattar eru að hækka um rúma 25 milljarða. Þetta er hækkun á venjulegt fólk, á venjuleg heimili, venjulegar fjölskyldur, venjuleg fyrirtæki, alveg ólíkt því sem ríkisstjórnarflokkarnir sögðu fyrir kosningar. Það er bara verið að hækka skatta á venjulegt fólk. Samsköttun hjóna — varðar hún ekki yfir 30.000 manns? Er það ekki venjulegt fólk? Ég myndi halda það og kalla það venjulegt fólk. Vörugjöld eiga að hækka um 7,5 eða 6 milljarða, sem við höfum reyndar bent á að munu engan veginn skila sér vegna þess að almenningur og fyrirtækin grípa til aðgerða með fótunum og fara og kaupa núna alla bílana sem þessi vörugjöld áttu að leggjast á á næsta ári og þessar tekjur munu því ekki skila sér í ríkissjóð. Það vita það allir. Meiri hlutinn veit það. Hann hendir bara þessum tölum fram því hann getur ekki annað, hann er kominn í spennitreyju, það er búið að auka útgjöldin svo mikið og er með stöðugleikareglu sem á að þýða að ekki aukist útgjöld umfram 2%. Þá eru þau bara í spennitreyju og verða að halda inni tekjum þó svo að þau viti að tekjurnar verða ekki til. En leggjast þessi gjöld ekki á venjulegt fólk? Er það ekki venjulegt fólk sem kaupir bíla?

Svo er sérkennilegt að trúa því að virðisaukaskattur aukist. Auðvitað er verðbólgan of há og við þekkjum það að í hárri verðbólgu koma tekjur af verðbólgunni til ríkissjóðs. Hér trúa menn því að virðisaukaskattur, þó svo að hagvöxtur minnki umtalsvert, aukist um 7,5 milljarða. Auðvitað er það venjulegt fólk sem greiðir það, venjuleg heimili, venjulegar fjölskyldur. Það er hækkun á skatti af leigutekjum sem var hluti af húsnæðispakkanum, þ.e. í stað þess að greiða einungis 25% skatt af leigutekjum þegar þú ert að leigja út eina íbúð, til þess að búa til hvata til þess að menn hafi þær á leigumarkaði, þá á að hækka þann skatt í 50%. Hvað gerist þá? Er ekki líklegt að leigusalinn komi þeirri hækkun yfir á leigutakann sem þýðir að þeir sem eru á leigumarkaði munu greiða hærri leigu? Er það ekki hækkun á sköttum og gjöldum á venjulegt fólk? Ég myndi halda það.

Síðan er hér sérstakt mál sem varðar erfðafjárskatt og er algerlega óútskýrt af hálfu meiri hlutans. Annars vegar er einhver uppfærsla sem er auðvitað hægt að útskýra með því að menn hafi farið yfir gögnin og komist að því að þetta skili einfaldlega meiru á þessum árum, en hins vegar eru einhverjar óljósar hugmyndir um hvort framkvæmdarvaldið sé að elta það að yfirskattanefnd eða Skatturinn hafi tapað máli og sé að reyna að girða fyrir það. Afleiðingin er algerlega ófyrirséð og þetta er alveg órætt í salnum. Þýðir þetta til að mynda það, af því að það er talað sérstaklega um lönd, að það sé verið að beina einhverri skattheimtu sérstaklega að kynslóðaskiptum í landbúnaði? Eru þau ekki nægilega erfið fyrir? Og hvað á þetta að skila miklum tekjum? Það veit enginn. Þeir sem búa í dreifbýli og á jörðum, er það ekki líka venjulegt fólk sem á þá að fara að greiða mun hærri erfðafjárskatt?

Tekjuhlið fjárlaga snýst að mjög stóru leyti um það, finnst mér og sýnist mér, að ríkisstjórnin er að teikna upp tekjur sem ekki verða til annars vegar og hins vegar er hún að leggja álögur á venjulegt fólk, á venjuleg heimili, á venjulega Íslendinga, venjuleg lítil fyrirtæki, verulega auknar álögur. Hvað gera fyrirtækin? Þau hagræða og spara. Hvað gera heimilin? Þau hagræða, draga saman seglin, einkaneyslan minnkar. Það liggur í augum uppi. Virðisaukaskatturinn eykst ekki við það. Það liggur í augum uppi. Maður hefði haldið að ríkið hefði staðið með venjulegu fólki og sýnt aðhald og varfærni í sínum fjármálum til þess að styðja við vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Í staðinn setur það þungann yfir á venjulegt fólk. Það er það sem hér er verið að gera.

Ég ætla að fara yfir í þriðja kafla, um útgjöldin. Í hvað fara þessir 143 milljarðar eða, svo nánar sé skilgreint, þessir 18 milljarðar sem meiri hluti fjárlaganefndar bætti inn til viðbótar við aukninguna sem var umtalsverð, 125 milljarðar milli ára, hann bætti 18 við? Jú, í breytingartillögunum sem og í nefndaráliti meiri hlutans er farið ágætlega yfir það. Ég ætla að renna yfir og benda á nokkra þætti. Þingmenn meiri hlutans hafa stært sig af því hvað þeir hafa verið að gera vel. Það er jákvætt og ágætt að það er verið að auka hér fjármuni upp á 345 milljónir við meðferðarúrræði við fíknivanda; SÁÁ, Stuðlar, Hlaðgerðarkot, Krýsuvíkursamtökin, Rauði krossinn, Landspítali, bara fínt. Svo er fjallað hérna um endurhæfingarstofnanir, þar eiga að fara 700 milljónir, ég kem aðeins nánar inn á það. En ég vil bara að við munum eftir því að á sama tíma lagði þessi sama ríkisstjórn niður úrræðið Janus og fólkið sem var þar, NEET-hópurinn, er á vergangi, ágætu þingmenn. Úrræðið sem átti að taka við, það virkar ekki. Það er ekki hentugt, það virkar ekki og þetta fólk er á vergangi í kerfinu okkar sem getur ekki hafa verið hugmyndin. Það er ekki verið að gera vel. Það er verið að sparsla. Ef við tökum endurhæfingarstofnanirnar þá minnir mig að það hafi borist beiðnir frá hinum og þessum, þar á meðal Náttúrulækningafélagi Íslands sem rekur Heilsustofnun í Hveragerði, Reykjalundi sem rekur líka endurhæfingu, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, Alzheimersamtökunum, Parkinsonsamtökunum. Svo var líka Ljósið sem var skorið niður í fjárlögum um 280 milljónir. Það er bara umtalsvert fyrir þá starfsemi. Ég veit, af því að ég hef kynnt mér og farið í heimsókn til Heilsustofnunarinnar í Hveragerði og ég hef heyrt frá Ljósinu og ég hef séð umsagnir og beiðnir Reykjalundar, að beiðnirnar eru umtalsvert hærri en 700 milljónir fyrir utan þessa þrjá hluti. Þegar menn koma og segja: Við erum að gera vel, við erum að setja hér 700 milljónir og við ætlum að láta ráðuneytið deila þessu út, þá eru menn í raun að segja: Nei, við ætlum ekki að fjármagna það sem þið eruð að biðja um.

Hér hafa margir þingmenn og ráðherrar sagt að auðvitað ætli þeir að styðja við hið góða starf Ljóssins sem er að taka á móti sífellt, því miður, fleira fólki sem er að ná sér eftir krabbameinsmeðferð. Það er upp á 280 milljónir. Segjum að það yrði svo veruleikinn, að 280 milljónir færu til Ljóssins, hvað er þá eftir af þessum 700? Eru það ekki 420 milljónir? Á það að duga fyrir beiðnum upp á 500–1.000 milljónir frá annars vegar Reykjalundi og hins vegar Heilsustofnun NLFÍ, og hvað þá öðrum stofnunum? Nei, það þýðir að það er verið að segja nei. Það er ekki verið að auka í. Með því að segja ekki nei í fjárlögum — meiri hlutinn segir: Við erum að setja 700 milljónir, aldeilis frábært hjá okkur. Nei, við erum ekki að því. Við erum hér að segja nei, sem er ekki gott.

Ég nefndi áðan í innganginum að það hefur verið merkilegt að fylgjast með því að þessir stjórnarflokkar, sem áður voru stjórnarandstöðuflokkar, gagnrýndu vanfjármögnun heilbrigðiskerfisins hvert einasta ár. Það var alveg sama þó að við í meiri hlutanum bættum 12 milljörðum einu sinni við eitt árið, 12 milljörðum. Þá var sagt árið eftir að það væri ekki nóg. En svo hefur greinilega komið í ljós þegar þetta var skoðað að við vorum búin að gera bara býsna vel af því að fjárlögin halda sér. Það er ekki mikil aukning, hún er einhver og það er bara ágætt. Hér er verið að setja 207 milljónir í aukið aðgengi að öruggari heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Fínt, fínt, en dugar það? Ég ætla að fullyrða að svo sé ekki.

Aðeins um samgöngumál. Hér kynnti ríkisstjórnin samgönguáætlun í gær og var með stærilæti og miklar yfirlýsingar um að hér væri fullfjármögnuð samgönguáætlun til 15 ára. Það vita allir að samgönguáætlun er aldrei fjármögnuð til 15 ára. Hún þarf hins vegar að ríma við fjármálaáætlun til fimm ára. Hver ríkisstjórn getur ekki sett fjármagn lengra fram. Og það að halda því fram að síðasta fjármálaáætlun og síðasta samgönguáætlun hafi ekki rímað, er bara rangt. Menn geta bara farið og borið það saman. Var skekkja upp á 500 milljónir eða milljarð milli ára? Hvað er það í samhengi hlutanna þar sem er verið að tala um 100 milljarða á ári eða 70 milljarða á ári og 930 milljarða á 15 ára tímabili, sem mig minnir að síðasta samgönguáætlun hafi hljóðað upp á? Þessi 15 ára samgönguáætlun nýrrar ríkisstjórnar hljóðar upp á rúmlega 1.000 milljarða, það er ekki einu sinni aukning vegna verðbólgu síðustu ára. Þetta er bara svipað uppsett. Auðvitað er þetta ekki fullfjármögnuð samgönguáætlun til 15 ára, enda hefur ríkisstjórnin ekki vald á því. Hún hefur bara vald á sínu kjörtímabili en hún getur teiknað upp fjármálaáætlun til fimm ára.

Inni í þessu var einn jákvæður hlutur, sem var reyndar í síðustu samgönguáætlun líka, þar var fjallað um innviðafélag. Í fjárlögum fyrir næsta ár frá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er ekki orð um innviðafélag, ekki króna í það, ekki heimild til að stofna það, ekki neitt. Það er nýjungin í fjármálaáætlun og svo breytt jarðgangaáætlun sem við getum farið yfir síðar. En ég vil fyrst og fremst einblína á fjárlögin, þar er ekki króna sett til innviðafélags. Það mun kalla á frumvarp á næsta ári til að veita nýja heimild og hvar verða þeir peningar teknir? Verður það innan stöðugleikareglunnar eða utan hennar? Það er alla vega ekki í fjárlögunum. Verður það innan almenna varasjóðsins? Sjáum til.

Ég ætla að fara aðeins hraðar yfir sögu, ég sé að það gengur nokkuð hratt á tíma minn. Hér eru byggðamál. Ég nefndi áðan að það væri ekki mikið sett til atvinnuveganna, eiginlega sáralítið, átakanlega lítið vegna þess að þeir eru að ströggla. Við erum að sjá atvinnuleysi aukast. Það er verið að setja peninga í Atvinnuleysistryggingasjóð því að atvinnuleysi mun aukast og það getur vaxið meira, sem er mjög vont fyrir íslenskt samfélag. Í íslensku samfélagi gengur yfirleitt allt vel þegar allir hafa vinnu. Hefði þá ekki verið skynsamlegt að horfa eitthvað til þess í því hvar menn setja þungann?

Ég ætla að nefna það sem við í Framsókn höfum verið að benda á alveg frá því í stefnuræðunni sem ég hélt í febrúar á þessu ári. Við höfum séð að ríkisstjórnin horfir ekki til landsbyggðarinnar með sömu augum og við og ég held að flestir Íslendingar séu sammála okkur þar. Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson flutti hér ágæta ræðu 4. nóvember í störfum þingsins og, með leyfi forseta, ætla ég að hlaupa aðeins yfir hluta af henni. Hann nefnir tíu dæmi sem sýna fram á að ríkisstjórnin kemur ekki eins fram við landsbyggðina og restina af landinu, því miður, við atvinnulífið og íbúa á landsbyggðinni. Hann nefnir hækkun vöruverðs á landsbyggðinni vegna breytinga á kílómetragjaldi, þ.e. á vörubifreiðar, flutningskostnaður mun aukast. Hann nefnir í öðru lagi ferðaþjónustu á landsbyggðinni en hærra kílómetragjald á bílaleigur mun hafa áhrif á dreifingu ferðamanna, þeir munu keyra styttra. Hann nefnir áhrif hækkunar veiðigjalda, áhrif sem við höfum séð raungerast með uppsögnum og minni fjárfestingargetu, því miður. Hann nefnir í fjórða lagi hækkun vörugjalds á bensín- og dísilbíla en það eru einmitt bílarnir sem talað er um í málinu um kílómetragjald að landsbyggðin keyri á. Í fimmta lagi er boðuð breyting á búvörulögum sem mun hafa veruleg áhrif á kúabændur, umbylta 20 ára kerfi sem hefur verið sátt um í landinu. Í sjötta lagi sameining sýslumannsembætta þar sem á að taka sjö eða átta æðstu embættismenn ríkisins af landsbyggðinni og færa eitthvert annað, leggja þá niður. Í sjöunda lagi breytingar á framhaldsskólanum þar sem á að leggja niður stöður skólameistara, við sáum nú kannski upphafið að því í dag eða gær, og færa í miðlægar stofnanir en það mun kippa stoðum undan fjárhagslegu sjálfstæði stofnananna. Ekki mun það efla sjálfstæði landsbyggðarinnar. Hann nefnir í áttunda lagi frumvarp um jöfnun atkvæða, í níunda lagi sameiningu heilbrigðisfulltrúa svæðanna, leggja niður heilbrigðiseftirlit, fækka þar með um níu af þeim framkvæmdastjórum sem starfa úti á landi. Í tíunda lagi skert starfsemi Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni og áfram mætti telja, t.d. kom það fram í vor að það er ekki hægt að reka meðferðarheimili úti á landi því að það er svo langt í þjónustu, að mati ráðuneytisins, það var umræða um meðferðarheimili í Skagafirði. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni þegar hann endaði ræðu sína og sagði: „Of langt er í þjónustu því að ríkið er að taka hana alla í burtu.“

Það er uppbygging á landsbyggðinni, það hefur verið umtalsverð uppbygging á landsbyggðinni á síðustu árum. Byggðastofnun hefur verið lykilatriðið í að efla þá uppbyggingu, hefur verið aðallánveitandi bæði í landbúnaði og ferðaþjónustu og öðrum greinum. Það hefur verið vaxandi þörf og þetta hefur gengið vel. Byggðastofnun hefur skilað jákvæðri afkomu í mörg ár og þetta hefur gengið vel. Byggðastofnun hefur farið fram á að fá 8 milljarða lánsfjárheimild. Ríkisstjórnin ætlar að veita henni 5 milljarða heimild. Með öðrum orðum, takmarka getu stofnunarinnar til að styðja við það jákvæða sem er úti á landi. Myndi þetta nú skipta máli? Nei, þetta hefur ekki áhrif á afkomuna. Þurfa þessir peningar allir að koma frá endurlánum sem eru á vegum Seðlabankans? Nei, þeir þurfa þess heldur ekki. Þetta væri nú jákvætt skref og ég hvet hv. þingmenn meiri hlutans til að skoða það, þarna væri hægt að sýna fram á að menn vildu ganga fram með jákvæðum huga og reka af sér þetta slyðruorð um að þeir séu andstæðingar landsbyggðarinnar eða séu andlandsbyggðarlegir, sérstaklega hefur þetta verið nefnt um Viðreisn. Ég held að það væri alla vega jákvætt.

Örlítið um útgjöld önnur. Ég nefndi ferðaþjónustuna, það er ekki króna til neytendamarkaðssetningar þrátt fyrir að það sé verulegt ákall um það og augljósar breytingar sem þar verða. Í sérhæfðri sjúkrahúsþjónustu er verið að fjármagna tækjakaup upp á tæpan milljarð hjá Grensás og um hálfur milljarður fer í aðgerðaþjarka á Landspítala, það er jákvætt, fín mál. Síðan eru nokkur útgjöld vegna þess að ekki hefur náðst samkomulag eða fundist fyrirkomulag á því hvernig eigi að jafna örorkubyrði milli lífeyrissjóða án þess að það hafi áhrif á örorkulífeyrisþega og við skiljum það. En þetta kostar 5 milljarða. Síðan gerist það að hér er verið að lækka lífeyri í fjárlögunum, annars vegar að útgjöld vegna ellilífeyris lækki um 800 milljónir. Þetta er bara útkomuspá. Rökin hjá meiri hlutanum eru: „Helsta ástæða fyrir lægri útgjöldum á málefnasviði aldraðra er hærri aðrar tekjur ellilífeyrisþega.“ Ráðstöfunarfé ellilífeyrisþega lækkar líka um 700 milljónir, þetta eru sem sagt samtals 1,5 milljarðar. Aftur eru rökin þau að tekjur eldri borgara séu svo háar. Bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og útgjöld vegna heimilisuppbótar lækka um 1,5 milljarða. Þarna eru komnir 3 milljarðar sem er verið að lækka frá því í fjárlögum. Helsta ástæðan fyrir lægri útgjöldum er að mati meiri hlutans að tekjur aldraðra séu svo háar. Síðan er verið að leggja til að 2.000 millj. kr. verði bætt við rekstrarheimild til öryggisúrræða. Það er jákvætt mál og það sama gildir um milljarð til Barna- og fjölskyldustofu, það er líka jákvætt mál. En það er auðvitað ekki jákvætt mál að hér er verið að hækka framlag til Atvinnuleysistryggingasjóðs um tæpa 2 milljarða vegna þess að atvinnuleysi er að aukast. Það er ekki jákvætt, það er alvarlegt. Ég var búinn að nefna almenna varasjóðinn og sértækar ráðstafanir. Það er ekki jákvætt að fara með svo óvarfærnum hætti af stað.

Ég ætla að benda hérna í lokin á samantekt: Árið 2007 settist Samfylkingin í ríkisstjórn. Hún jók útgjöldin með Sjálfstæðisflokknum um 10% á milli ára, 10%, sem ég held að hafi verið met. Tveimur árum seinna — við munum öll hvað gerðist. Hér er verið að leggja til 9% hækkun á fjárlögum milli ára, 9% hækkun. Engin varfærni. Útgjöldin eru bara öll tekin og nýtt í botn, stöðugleikareglan er nýtt í botn, það er óljóst hvort hún standi. Í staðinn fyrir að nota stöðugleikaregluna sem vörn og (Forseti hringir.) til að búa til trúverðugleika um að menn séu að fara fram með varfærni og aðhaldi til að styðja við það markmið að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ég hef áhyggjur af þessari framsetningu, frú forseti.