fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu og ábyrga nálgun á verkefnið með því að koma með jákvæðar ábendingar og málefnalega umræðu um það verkefni sem við höfum með höndum, þ.e. að setja fjárlög fyrir næsta ár. Ég vil einnig nota tækifærið og þakka fyrir nefndarálitið. Þetta nefndarálit er eitthvað sem ég tel að geti verið gagnlegt. Ýmsar hugmyndir koma þar fram um það hvernig við nálgumst verkefnið og ég tel að þetta sé mjög jákvætt plagg, mér finnst rétt að nefna það í byrjun. Ég vil þó vekja athygli á því að ef flett er upp á bls. 9 í þessu góða nefndaráliti þá er kannski ljóst að ekki er mjög mikill munur á nettóáhrifum af útgjöldum og hagræðingu. Burt séð frá því eru vangaveltur og hugmyndir um að nálgast verkefnið með nýjum hætti jákvæðar og ég er sannfærður um það að einmitt svona nefndarálit geti nýst okkur í að gera betur. Mér finnst rétt að koma hér og þakka fyrir það. Það er ólíkt sumum öðrum nefndarálitum, m.a. nefndaráliti 3. minni hluta sem ég hef áður minnst á í umræðunni, sem mér finnst vera hálfgert glamur.