157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:13]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hrósið við þetta plagg. Gríðarlega metnaðarfull vinna liggur þar að baki hjá minnsta þingflokknum á þessu þingi. Við erum ekki með heilt Stjórnarráð eða ráðuneyti á bak við okkur til að vinna alla þessa vinnu en það tókst á þessum tíma. Við vorum að grínast með það að við ættum að binda hana inn og gefa hana sem jólabókina í ár til allra þingmanna og allra starfsmanna í alla vega fjármálaráðuneytinu. Ég veit af fyrri veru minni þar að einhverjir þar yrðu glaðir að fá slíka jólabók. Uppleggið er að styðja við þá hugmyndafræði sem við lögðum af stað með með lögum um opinber fjármál og vorum síðan að þróa til að búa til betra tæki til þess að fjárlögin væru markvissari. Það væru, svo ég noti orðfæri hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar, færri glufur, minna um göt og skýrari og markvissari framsetning á stefnum og þeim útgjöldum sem menn ætluðu í til þess að ná þessum árangri sem menn stefndu að í stefnunum. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir að benda á þetta og hvetja alla aðra til að lesa þetta nefndarálit. Þótt það sé tæpar 100 blaðsíður þá er það þess virði.